Fálkinn - 02.05.1966, Qupperneq 8
Dvr mymli llafliði
Drengurinn sem gengur við hlið móður
sinnar á myndinni er átta ára gamall og
heitir Tony Allen. Það er ekki langt síðan
hann varð fyrir því óhappi, að 19 ára
gamall rakaralærlingur, Brian Ronald
Josey. skaut á hann með loftbyssu og
hitti hann í augað með þeim afleiðingum
að hann missti sjónina á því. Dómstóll
hefur nú dæmt rakaralærlinginn til að
borga Tony reglulega skaðabætur allt til
ársins 2003, en þá verður hann fimmtug-
ur og verður búinn að taka við um 600
þúsund krónum.
Þáði ekki brullaupshoðið
Brúðkaupi þeirra Beatrix prinsessu af Hollandi og þýzku „stríðshetjunnar“
Claus von Amsberg, er nú lokið stórslysalaust, nema hvað nokkrar reyk-
bombur voru sprengdar í prósessíunni. Eitt af því sem mistókst í sambandi
við þetta brúðkaup, var að fá Elísabelu Englandsdrottningu til að vera við-
stadda og einnig að fá Önnu prinsessu dóttur hennar til að vera eina af
brúðarmeyjunum. Drottning vildi ekki láta bendla sig við vafasama athöfn.
Ennfremur ætlaði Beatrix að kynna sinn heittelskaða fyrir Elísabetu við
hirðina í London, en ekki hefur heldur orðið af því, þrátt fyrir alls konar
baktjaldamakk hinnar hollenzku prinsessu í þessu augnamiði.
7 sumt
Thunderball er kvæntur
Skúrkurinn í einni af nýjustu kvikmynd-
unum um James kempuna Bond, er skiljan-
lega ekki beinlínis elskaður af kvikmynda-
húsagestum, en samt eru honum ekki allar
bjargir bannaðar. Maðurinn heitir Adolfo
Celi og kvæntist nýverið ungri rúmenskri
Icikkonu, Veronicu Lazar. Þau hittust fyrst í
samkvæmi hjá hinum fræga Vittorio Gass-
mann, sem í eina tíð var trúlofaður Annettu
Ströyberg, en stakk af áður en af giftingu
varð.
0 FÁLKINN