Fálkinn - 02.05.1966, Qupperneq 9
Bunt af skvísum
Myndin cr tekin í stærsta
næturklúbb Japans, Mikado,
en hann fór á hausinn
með pompi og pragt eftir
Olympíuleikana, sem háðir
voru í Tókíó 1964. Nú hafa
nýir menn tekið við og opn-
að aftur með engu minna
pompi og engu minni pragt
og ráðið 1500 stúlkur til að
vera gestunum til afþreying-
ar. Ekki verður annað séð af
myndinni, en vel fari um
hópinn, enda er „vinnutím-
inn“ frá klukkan sex á
kvöldin til sólarupprásar.
1.1111» HAXGIR Á BLÁÞRÆÐI
Foreldrar systranna litlu hér á myndinni eiga ekki sjö
dagana sæla. Þannig er mál með vexti, að þeir mega ekki
sleppa augunum af þeim eitt augnablik, því þá getur farið
svo að þær verði ekki í lifenda tölu þegar við er snúið.
Systurnar þjást af mjög sjaldgæfum sjúkdómi, sem lýsir
sér á þann hátt, að þær mega ekki láta ofan í sig nokkum
venjulegan mat. T. d. myndi súkkulaðibiti ríða þeim að
fullu. Foreldrarnir verða að matast í öðru herbergi og
með leynd, til að hörnin komist ekki á bragðið. Þær mega
ekki ganga í skóla, eða leika sér með öðrum börnum því
einhver gæti tekið upp á að gefa þeim sælgæti og þar með
orðið þeirra hani. Nú lifa foreldrarnir aðeins í þeirri von,
að vísindamönnum takist einn góðan veðurdag að finna
lyf gegn sjúkdóminum svo að þær geti farið að lifa eðli-
legu lífi. Sjúkdómurinn nefnist plienylketonuria og tíðni
hans mun vera eitt tilfelli á móti hverjum 50 milljónum.
Telpurnar lifa á sérstöku fæði, sem læknar tilreiða, svo
sem kartöflum, eplum og banönum að viðbættum bætiefna-
ríkum drykk, sem kostar 15000 krónur íslcnzkar á viku.
NÚ ER VANDALÍTIÐ AÐ VIÐHALDA UNGU ÚTLITI DG AU<A
Á FEGURÐ SÍNA
EINFALDLEDA MEÐ ÞVÍ AÐ NDTA SNYRTIVDRURNAR FRÁ:
REYNIÐ ÞESSAR HEIMSFRÆGU DÆÐAVÖRUR DG SANN-
FÆRIZT UM ÁHRIFAMÁTT ÞEIRRA
FÁST í FLESTUM LEIÐANDI SNYRTIVÖRUVERZLUNUM
SIMVRTIVÖRIJR HF. HEILDVERZLUN SIMI. 11020 • 11021
FALKINN
9