Fálkinn - 02.05.1966, Page 24
•••>
BENEDÍKT VIGGÓSSON
SKRIFAR FYRIR
UNGA FÓLKIÐ
STÖÐVA
ÞEIR UMFERÐINA UM GRETTISGÖTU?
Þeir, sem áttu leið um Grettisgötu sl. sumar, hægðu marg-
ir hverjir ferð sína, er þeir nálguðust eitt fjölbýlishúsið.
Ástæðan var sú, að þaðan barst glymjandi gítarmúsik. „Fjárans
hávaði er þetta,“ sögðu húsmæðurnar og gáfu kjallaraglugg-
um hússins illt auga.
Mér lék hugur á að vita, hverjir stæðu fyrir þessum „háv-
aða“, og heimsótti piltana þeirra erinda kvöld eitt í marz-
mánuði. En þá kom upp úr dúrnum, að hér var um að ræða
fjögurra manna hljómsveit, sem nefnir sig FJARKA. En nú
höfðu þeir fengið betri æfingarstað í húsinu, en áður höfðu
þeir orðið að láta sér nægja þvottahúsið. sem sneri að göt-
unni, og þar kom skýringin á „hávaðanum“.
„Hvað er hljómsveitin gömul?“ varð mér á að spyrja fyrst.
„Ja, það er víst eitt og hálft ár síðan við byrjuðum að
spila saman, komum fyrst fram í Hlégarði í „pásunni” á
meðan LÚDÓ slappaði af. Síðan höfum við leikið víðs vegar
þó aðallega í ,,Búðinni“ og á dansleikjum Æskulýðsráðs, en
þeir eru mjög vel sóttir. Þá höfum við leikið fyrir dansi í
Borgarnesi, Félagslundi, Gaulverjabæ að ógleymdum Hreða-
vatnsskálanum. Það þótti hálfkalt í skálanum fyrst í stað og
ekki nema von, því gamall prímus var eini hitagjafinn. En
þegar líða tók á kvöldið, fjölgaði mannskapnum ískyggilega
og slagaði hátt upp í 500 manns, enda var svo þröngt, að
um leið og einum var hleypt inn, þá hrökklaðist annar út um
bakdyrnar. Hefði einhver farið að minnast á kulda, þegar
svona var komið, þá hefði hann verið álitinn meira en lítið
vankaður.
Þá er ekki síður líf í tuskunum. þegar við spilum í Grinda-
vík í landlegu, enda allir í feiknastuði og staðráðnir í að
skemmta sér, þó að því fylgi misjafnlega mikill hávaði.“
„Er það ekki feikna fyrirtæki að stofna ,,beat“ hljómsveit?"
„Það er alveg rétt. Sem dæmi um það máttu geta þess, að
hljóðfærin okkar eru metin á tæpar 300.000 krónur. Hver og
einn kéypti sitt hljóðfæri, en við slógum saman fyrir söng-
kerfinu."
Þá er bezt að kynna piltana fyrir lesendum. Trommuleikar-
inn er 15 ára, Kristbjörn Þorkelsson, en hann stundár nám
í Gagnfræðaskóla verknáms.
Á rythma-gítar leikur Jóhann Ögmundsson, 16 ára nemandi
í Gaggó Aust., eins og hann komst að orði.
Kristján Gunnarsson er í sama skóla, 16 ára, sólógítar.
Bassaleikarinn heitir líka Kristján, en hann er Baldursson,
17 ára og stundar nám í Iðnskólanum.
Piltarnir kváðust halda mest upp á Tempó og Dúmbó sextett
af innlendum, en Beatles og Hollies af erlendum hljómsveitum.
Piltarnir sögðust vera staðráðnir í að hætta ekki að aefa, ,
fyrr en þeir hefðu stöðvað umferðina um Grettisgötú. „Þá
verðið þið líka frægari en Hljómar," várð mér að orði.
Sónar leika í Rein
á Akranesi
Þættinum hefur borizt meðfylgjandi mynd af Skaga-
hljómsveitinni SÓNUM, sem bréfritari segir að leiki
alltaf fyrir troðfullu húsi í REIN enda eigi þeir
miklum vinsældum að fagna á Akranesi.
Hljómsveitina skipa:
Smári Hannesson Rythma-gítar
Bjarni Bjarnason Sóló-gítar
Brynjar Sigurðsson Bassi
Viðar Stefánsson Trommur.
Þátturinn þakkar myndina og biður þá, sem eiga
slíkar myndir. að senda þættinum ásamt upplýsing-
um. Pósthólfið er 1411.
>
(
24 FÁLKINN