Fálkinn - 02.05.1966, Page 30
JÓÐVERJI þessi var þó ekki alls kostar viss
um, að rétt stefndi, því að hann bætti við:
„Er ég hugsaði til komandi ára, þegar hin upp-
vaxandi kynslóð hefur tekið við völdum, gat
ég eigi að mér gert að líta döprum augum til
framtíðarinnar.“ Nú er það svo, að maðurinn
lifir ekki af brauðinu einu saman. Ekki gat
þjóðin heldur haldið sér uppi á sígarettum
þessara gæðamanna einum. Fleira varð að
koma til. Spænskt vín skorti að sönnu ekki í
landinu, og þá var ekki runnin upp sú öld, að það stæði fólki
fyrir svefni, þótt léttáfengt öl fengist ekki. Aftur á móti voru
þeir menn til, er fannst það böl í þungbærasta lagi, að veru-
lega sterka drykki skorti, þótt stöku maður gæti orðið sér úti
um ofurlítið af læknabrennivíni. Ýmsir vildu fúslega leggja sig
í nokkra hættu á þessu ári mannelskunnar til þess að bæta
úr þeirri vöntun og hlutu til þess liðsinni greiðamanna í út-
löndum. Það voru einkum mannúðarmenn í Þýzkalandi, sem
þar komu við sögu.
Það er upphaf þess kapítula, að bryti einn af íslenzku
strandferðaskipi, sem grannt hafði kynnzt því, hvar skórinn
kreppti að, var á ferðalagi í Þýzkalandi um það bil, er sól
tók heldur að hækka á lofti norður hér. Kynntist hann manni
einum í Hamborg, sem auðvitað var doktor eins og títt er
um Þjóðverja. Bar margt á góma þeirra á milli, því að þetta
voru menn, sem fundu til í stormum sinna tíða. Kom þar,
að í tal barst hinn sári hörgull á sterkum drykkjum, sem
þjakaði íslendinga meira en flest annað, og er skemmst af
að segja, að þeim fannst skylt að ráða þar bót á.
Þetta voru karlar í krapinu. Þeir urðu sér þegar úti um
gufuskip á stærð við lítinn togara, 148 lestir og hét Siegfried,
og létu bera á það gnæ-<ð af spíritus, rommi og konjakki,
alls um seytján þúsund lítra. Lét skipið síðan í haf frá
Cuxhaven, og til forsagnar á því var með skipstjóranum
brytinn góði, sem ég gef hér mitt eigið nafn til hægðarauka
og nefni Jón eins og vænn hluti íslendinga hét þá enn.
Nú víkur sögunni til íslands. Dag einn í byrjun marzmán-
aðar sjá menn á Suðurnesjum, að skip kemur af hafi. Sigldi
það inn á Kvíguvoga í hryssingsveðri og varpaði akkerum
norðan við Vogastapa. Að lítilli stundu liðinni var báti skotið
út, og stigu á hann sex menn, sem reru knálega til lands.
Einn mannanna var miklu bezt búinn, og þegar báturinn
kenndi grunns, brugðu ræðarar við og báru kumpán þennan
á land af þeirri lotningu. sem langöguðum, þýzkum hásetum
er eðlislæg gagnvart þeim er á farminn í skipi þeirra. Þarna
var kominn Jón okkar bryti að svala þorsta landa sinna.
Það var ekki við hæfi, að slíkur maður norpaði lengi þarna
í flæðarmálinu. Hann sveipaði að sér frakka góðum sem
hann var í, og gekk hröðum skrefum upp á þjóðveginn, án
þess að hafa tal af nokkrum manni þarna í byggðarlaginu,
og stefndi inn til Hafnarfjarðar. En illa tóksf til hjá sjó-
mönnunum þýzku. Jón bryti var ekki fyrr á brott, en yfir
skall hríðarhraglandi, og hvessti mjög í élið, svo að þeir
komu báti sínum ekki út. Stærði fljótt öldu. svo að þeir
urðu að dúsa þar, sem þeir voru komnir.
Mönnum þarna syðra fannst sem sæfarar þessir færu ein-
hvern veginn aftan að siðum, og kviknuðu grunsemdir um
erindi þeirra. Gerðu þeir yfirvaldi sínu viðvart, og er skemmst
af því að segja, að allt var tekið: Skipið og farmurinn, brytinn
Jón og skipverjar allir. Kom þá í ljós, að sitthvað var á
annan veg en siður var í siglingum landa á milli. Farm-
skírteini fundust engin, og ekki heldur skipstjóri sá, sem skráð-
ur var á fleytuna. Lengi vel þóttust engir vita, hverjir ættu
farminn, og kom þó þar um síðir, að hann vitnaðist sameign
brytans og doktorsins í Hamborg, og hafði verið í ráðum
að selja áfengið hérlendis á fimm krónur hvern lítra, en
sigla til Noregs með það, sem afgangs kynni að vera. En af
þeirri siglingu varð ekki, því að skipið var gert upptækt og
selt á uppboði. Ólafur B. Björnsson á Akranesi keypti það á
þrjátíu þúsund krónur. Og honum var sízt í hug að svala
áfengisþorsta manna, hvort heldur þeir voru íslenzkir eða
norskir.
Seinna á árinu kom hingað mikil og fræg hljómsveit frá
Þýzkalandi. skipuð ágætum tónlistarmönnum. En kannski hef-
30 FÁLKINN
ur það ekki verið beinlínis til minningar um þennan atburð,
að hún lék Siegfried-Idyll eftir Wagner fyrir Reykvíkinga. Og,
er kannski ekki viðeigandi að blanda saman spíritus og'
rommi og göfugri tónlist og gera úr kokkteil.
En sú var bót í máli í öllu þessu, að sumir sem fengust
við svipaða líknarstarfsemi, voru ekki gripnir jafnviðstöðu-
laust og mennirnir á Siegfried. Það voru til dæmis fiskimenn,
sem hittu fyrir þýzkan togara undir Jökli. Ekki er ljóst,
hvort gamall kunningsskapur var þar á milli eða gagnkvæmur
skilningur tendraði vináttu og greiðasemi við fyrstu kynni.
En með því að veður var dátt og þægilegt að athafna sig á
sjó, þá voru nítján hundruð lítrar af spíritus fluttir úr tog-:
aranum þýzka yfir í fiskibátinn íslenzka. Héldu íslendingar
síðan norður um land með feng sinn og höguðu sér svipað
og forsjálir heimskautsfarar gerðu á þessum árum: Þeir stöldr-
uðu víða við, gengu á land og komu sér upp birgðastöðvum.
Áður en lauk höfðu þeir grafið álitlegt safn spíritusbrúsa í
Selvík á Skaga, Héðinsfirði, Hrísey og kannski víðar. En
ógæfan dundi yfir, þegar þeir höfðu þetta starfað. Yfirvöldin
horðan lands komust á snoðir um, að ekki myndi allt með
felldu um ferðir þessa báts, enda kann að vera, að skvaldur-
samt hafi gerzt, þar sem hann kom. Lögreglumenn röktu
slóðina, tygjaðir pálum og rekum, og fengu uppgötvað átta
hundruð lítra.
Ekki verður annað sagt en heldur báglega tækist til fyr-
ir þeim mönnum, sem lögðu sig í líma fyrir þurfandi lands-
lýðinn. Reykvíkingum hefði þó til dæmis ekki veitt af ein-
hverju til dæmis að drepa tímann, því að um mitt sumarið
varð sementslaust í bænum, svo að allar byggingar stöðv-
uðust og fjöldi manna stóð uppi aðgerðarlaus. Það var ekki
einu sinni svo vel, að neinn fengist við að smygla sementi.
Og sementsskipið sat fast á skeri vestur á Breiðafirði.
N það var líf í mönnum á köflum, þrátt fyrir
brennivínsleysið, og stundum hitnaði þeim í
hamsi. Kvenfólkið átti til dæmis í deilu um
kaupið í fiskvinnunni og skarst mjög í odda
út af því hvort það ætti að fá áttatíu eða
áttatíu og fimm aura á klukkustund. Minnir
mig, að líka væri þras um „tiltölulaunavinn-
una“, er þá hét svo. Kom þar, að verkamenn
í Reykjavík gerðu samúðarverkfall og hugð-
ust stöðva skipin, en með því að enn var tízka,
að verkfallsbrjótar tækju upp þráðinn á vinnustöðum, þegar
verkalýðsfélögin höfðu fyrirskipað verkfall, og nytu jafnvel
verndar lögreglu, dró fljótlega til talsverðra tíðinda. Einn
leikurinn í þeim átökum, sem þá urðu, var að renna bif-
reiðum á þá, sem reyndu að hindra vinnu. Þá réðu atvinnu-
rekendur yfir bílakostinum, svo að verkamenn gátu ekki gold-
ið líku líkt. Þessa daga sagði Alþýðublaðið stundum sitthvað
ljótt um Helga í Tungu. Svo var það loks dag einn, að skipa
átti varningi í skjóli lögreglunnar út í hið góða Suður-
land, sem í förum var á flóanum. Hitnaði þá svo í kolunum,
að götubardagi tókst í Austurstræti, og barst leikurinn frá
lögreglustöðinni, þar sem hann hófst, allt út í Aðalstræti. Vopn-
fáir voru menn, og urðu því að treysta mest á hnefana. Segir
fátt af áverkum, þótt sjálfsagt hafi einhverjir hlotið ákomur
nokkrar, nema hvað þar var til jarðar sleginn bæjarfulltrúi
einn úr Hafnarfirði, þekktur fiskkaupmaður og útgerðarforkólf-
ur, Ólafur V. Davíðsson. Ekki skaddaðist hann þó til neinna
muna, og komu til stúdentar og fengu borgið honum.
Þegar menn höfðu með slíkum hætti veitt geðbrigðum sín-
um útrás, var fljótlega saminn friður, og lauk svo þessari
deilu, að báðir aðilar hlutu að láta nokkuð undan síga. í raun-
inni hafði þetta farið friðsamlega fram, og ólíkt var harð-
mannlegar að verið í verkföllum í Ameríku ,,the sweet land
of liberty“, þessi sömu misseri. Þar var fæðingarstofnunum
lokað fyrir konum verkfallsmanna.
Það gerðist aftur á móti hér, að sleginn var hringur um
borgarstjórann, Knút Zimsen, er hann ætlaði að reka háværa
og óróasama áheyrendur út af bæjarstjórnarfundi, og einhver,
sem tregur var til þess að víkja, spurði hann, hvort hann
ætti að drepa hann. Svör borgarstjóra við þessari alúðlegu
spurningu kunnum vér ekki að greina, og ekki þess getið,
að spyrjandi leitaðist við að láta framkvæmd fylgja boði sínu.