Fálkinn - 02.05.1966, Page 35
Hrúturinn, 21. marz—20. avríl:
í>ú œttir að nota timann til að vinna úr
fenginni reynslu á sviði f.iármála ok við-
skiota. Það liggur nokkuð ljóst fyrir hvers
aðrir ætlast til af þér, en óvíst er að þú
hafir löngun til að verða öðrum að iiði
nema að takmörkuðu leyti.
NautiÖ, 21. avril—21. maí:
Það er ekki skortur á tækifærum sem
kemur í veg fyrir framgang persónulegra
málefna þinna, heldur það að þú veizt varla
sjálfur hvað þú raunverulega vilt. Þetta
áttu að byrja á að athuga áður en til fram-
kvæmda kemur.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Aðstaða þín er nokkuð óörugg þessa
dagana, og þótt þér finnist að staða þín sé
trygg má búast við að aðrir hafi augastað
á henni oe muni neyta ýmissa ráða til að
fara á bak við þig. öfundarmenn þínir
kynnu að gera sér mat úr þvi.
Krabbinn, 22. iúni—23. iúlí:
Þú hafðir búizt við að vinir þínir og
kunningjar yrðu jákvæðari í þinn Earð en
nú kemur í ljós. Þeir munu á ýmsan hátt
valda þér vonbrigðum, sérstaklega yngra
fólk en þú ert. Þetta verður þó til að
metnaður þinn vaknar.
Ljóniö, 2k. júlí—23. áqúst:
Það mun koma í ljós í Þessari viku að
þér standa margar dyr opnar hvað starf
oe vinsældir snertir. Notfærðu þér þetta
tækifæri til að bæta stöðu þina, en treystu
fremur á eigin Eetu heldur en aðstoð ann-
arra.
Meyjan, 2h. áaúst—23. sevt.:
Einkamál þín nú fara rnikið eftir því
hvernig siðustu tvær vikur hafa gengið. Ef
þú hefur notfært Þér þær á jákvæðan hátt
muntu siá árangur þess nú. Ferðalög eru
nokkuð ofarlega i huga þér. Þó eru lang-
ferðir hagstæðari.
Voqin, 2h. sept.—23. okt.:
Þessi vika netur orðið mjög erfið og eril-
söm oe er hætta á að þú ofþreytir þig og
þú njótir ekki þeirrar hvíldar, sem bér er
nauðsynleg. Fréttir sem þér berast langt að
koma sér nokkuð illa fyrir þig.
Drekinn, 2h. oTct.—22. nóv.:
Vertu ákveðinn þeear um er að ræða
mál, sem snerta maka þinn eða félaga. Fjár-
málin sem þó virðast nokkuð hagstæð gætu
orðið fyrir óvæntu áfalli. Það er ekki ráð-
legt að leEEja út í fyrirtæki með öðrum
eins og stendur.
Boqmaöurinn, 23. nóv.—21. des.:
Þú hefur hugann of mikið við það hvern-
ie þú getur skemmt sjálfum þér bezt', en
tekur ekki eins mikið tillit til annarra í
fjöiskyldunni. Þú ættir að reyna nýjar leið-
ir í umgenEni við samstarfsmenn þína.
Steinqeitin, 22. des.—20. janúar:
Þetta er góður tími til að endurnyna
kynni við fyrrverandi vini og sýna þeim að
þú viljir ge'ra þitt til að koma á EÓðu sam-
komulagi. Þetta yrði langhagstæðast fyrir
þig sjálfan. Notfærðu þér eóða skipulags-
hæfileika þína.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. fébrúar:
Þú ert í dálitlum vafa með hvernig þess-
ari viku verði bezt varið. Þú ættir að snúa
þér að því þegar i byrjun vikunnar að finna
út hvernig þú getur bezt glatt fjölskyldu
þína og ef þér tekst það vel þá gleður þú
sjálfan þig um leið.
Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz:
Þú hefur á takteinum margar góðar hus-
myndir, en þú ættir endileea að notfæra
þér þær sjálfur í stað Þess að fá öðrum þær
í hendur. Það er lecejandi á síe töluverð
vinna til að vinna þær sjálfur i stað þess
að láta aðra fá heiðurinn af bvi.
e
VörubíBadekkin
endast yfir 100 þús. km.
BRIDGESTONE
mest seldu dekk á Islandi
T reystift
BRIDGEST ONE
BRIDGESTONE TIRE
FALKINN
35