Fálkinn - 02.05.1966, Page 36
SVEFNSÓFASETT
Ný gerð af settum. Sófanum má breyta í svefn-
sófa með einu handtaki. Þægileg húsgögn í ein-
staklingsherbergi og litlar íbúðir.
Póstsendum.
SEDUUS s.f.
IIÍySGAGNAVEIIZLUN
Hverfisgötu 50 — Sími 18830.
• Brjóstaaðgerðir
Framh. af bls. 23.
í skynsamlegan megrunarkúr.
Hvaða vit er í að setja tvo
smáa blómknappa á of feitan
líkama?“
Sjúklingurinn er fyrst látinn
gangast undir alhliða rannsókn
á heilsufari og þyngd. Síðan
eru brjóstin rannsökuð til þess
að ganga úr skugga um, að þau
séu í góðu ásigkomulagi. Að
því loknu ákveður skurðlæknir-
inn hvort um meiri háttar að-
gerð verði að ræða og hvernig
lögun þeirra verði bezt bætt.
Ef þau eru of stór, er megrunar-
kúr fyrst nauðsynlegur, síðan
meiri háttar skurðaðgerð. Því
fylgir tíu daga lega á sjúkra-
húsi og kostnaðurinn er kring-
um £250.
Aðgerðin er all flókin og
vandasöm. Skurður er gerður
kringum brjóstroðann, annar í
beina línu niður eftir brjóstinu
og sá þriðji í boga undir brjóst-
ið. Húðinni er flett frá, hluti
af kirtlinum numinn brott og
húðfliparnir saumaðir saman
aftur.
Geirvartan helzt áföst við
brjóstvefinn undir henni, næm-
leiki hennar er ekki skertur og
konan getur haft barn á brjósti
eftir sem áður. En henni er
lyft með annarri aðgerð, þar
sem hún myndi annars verða
neðan á brjóstinu. Oft geta stór
brjóst valdið konunni svo mikl-
um óþægindum, líkamlegum
sem andlegum, að aðgerð sem
þessi verður að teljast nauð-
synleg.
Gagnstætt algengara vanda-
máli eru vanþroskuð brjóst.
Margar aðferðir hafa verið
reyndar til lagfæringar á þessu
— sumar hverjar lífshættuleg-
ar, eins og innspýtingar með
vaxi, sem inniheldur paraffin,
og sannáð hefur verið að valdi
krabbameini. Aðrar hafa reynzt
endast um takmarkaðan tíma,
eins og að græða fituvef á
brjóstin. Þetta stækkar þau í
fyrstu en líkaminn dregur
smátt og smátt í sig fituna
aftur og þau fá sína upphaf-
legu stærð.
Þriðja aðferðin notuð til
skamms tíma er sú, að koma
fyrir undir húðinni púða
(prosthesis) úr svampkenndu
efni, sem er skaðlaust- fyrir
brjóstvefinn. Þetta er ekki
heldur varanlegt. Árangurinn
er góður í fyrstu, en púði af
þessu tagi vill rýrna og harðna.
Hann veldur óþægindum auk
þess sem konum mun finnast
það léleg uppskera af sjúkra-
húslegu og ærnum tilkostnaði
að vera svo kallaðar harð-
brjósta!
En nú hefur ný aðferð verið
fundin af amerískum lækni, dr.
Thomas J. Cronin, sem gerði
sér ljósa þá möguleika, sem
silicone gæti haft fyrir brjósta-
aðgerðir. Þegar tilraunir í efna-
rannsóknarstofum höfðu sann-
að, að efnið gæti engin skað-
leg áhrif haft, gerði hann
fyrsta uppskurðinn þar sem
hann notaði silicone púða til
þess að stækka brjóstið.
Silicone er hið ákjósanleg-
asta efni í brjóstpúða. Silicone
gúmmí sem framleitt er til
lyfjanotkunar er nærri alger-
lega hlutlaust efni, það hvorki
harðnar né gengur úr sér og
það helzt kyrrt á sínum stað án
þess að síast út í eða hafa að
öðru leyti áhrif á aðliggjandi
vefi. Púðinn er poki, gerður úr
silicone himnu og fylltur af
hálffljótandi, glæru, hlaup-
kenndu silicone. Gagnstætt
þeim efnum, sem áður hafa
verið notuð, helzt silicone
hlaupkennt. Þetta þýðir, að
brjóstin verða ekki aðeins
fögur á að líta, heldur einnig
eðlileg viðkomu.
Að koma silicone prost-
hesis fyrir undir brjóstinu
krefst meiriháttar skurðaðgerð-
ar. Skurður er gerður og pok-
anum stungið innfyrir. Pokinn
er á undirstöðu úr Dacron neti,
sem heldur honum kyrrum á
sínum stað við brjóstvegginn.
Húðin er síðan saumuð saman
og yerða örin ósýnileg á
skömmum tíma.
Silicone brjóstpúðinn er flutt-
ur inn frá Ameríku og kostar
£75. Aðgerðin öll, að með-
taldri fjögurra daga sjúkrahús-
dvöl, kostar um £315.
Þessi aðgerð er framkvæmd
á konum, sem orðið hafa að
gangast undir ítrekaðar skurð-
aðgerðir vegna meinlausra
æxla og hafa fengið eins konar
„krabbameinsmeinloku“. Ráð-
leggur þá skurðlæknirinn þeim
ef til vill að láta fjarlægja
allan brjóstvefinn og setja sili-
cone púða í staðinn til þess
að firra þær frekari áhyggj-
um.
Silicone prosthesis aðgerð er
einnig framkvæmd ef brjóst-
in hafa misst allt lag og slapa.
En til er einfaldari aðferð til
að stækka vanþroskuð brjóst,
sem annars hafa góða lögun.
Hún er einnig miklu ódýrari
(um £105) og konan þarf ekki
að fara á sjúkrahús.
Framh. á bls. 38.