Fálkinn - 02.05.1966, Page 38
Brjóstaaðgerðir
Framh. af bls. 36.
Þetta er gert á skurðstofu
læknisins í fjórum til átta hálf-
tíma heimsóknum og fer það
eftir stærðinni, sem óskað er
eftir. Lítill sársauki er því
samfara og það skilur ekki
eftir nein ör. Aðgerðin er ein-
faldlega fólgin í því að sprauta
litlu magni af silicone í brjóst-
in, þar sem það myndar eins
konar vasa fulla af óskaðlegu
hlaupi.
Þessi aðferð er notuð í æ rík-
ara mæli. Skurðlæknirinn, sem
ég heimsótti notar hana oftast.
Sjúklingurinn slappar af á
þægilegum, hvítum leðurstól í
sjúkrastofu hans. Þægileg
hljómlist er leikin af plötu.
Konan finnur varla fyrir nálar-
stungunni og á fáeinum mín-
útum er allt um garð gengið.
Eftir aðgerðina getur hún far-
ið út að verzla eða haldið heim
aftur til húsverka sinna. Eftir
síðustu sprautuna er ekki þörf
frekari læknisvitjana.
Skylt er þó að geta þess, að
ýmsir læknar hafa lýst sig
andvíga þessari aðferð, þar sem
silicone droparnir í brjóstinu
geta valdið erfiðleikum með
að finna meinsemdir, sem síðar
kunna að myndast í brjóstinu,
auk þess sem þeir verða ekki
á sama hátt og púðinn teknir
burt í fljótheitum ef eitthvað
skyldi fara úrskeiðis.
• Skurófæknirinn
Framh. af bls. 27.
neyddi sig til að vera glöð og
kát, til að eyðileggja ekki há-
tíðina fyrir þeim.
Þá h'afði hún þegar ákveðið
að binda enda á þetta allt, og
þann 19. janúar sl. reyndi hún
að svipta sig lífi með því að
stökkva út úr lestinni. En
harmleikurinn fékk gleðilegan
endi. Unnusti hennar gekk um
gólf fyrir utan sjúkrastofuna
meðan hættan eftir fyrri upp-
skurðinn leið hjá og þegar síð-
ari uppskurðurinn var afstað-
inn og búið að uppgötva hvað
að var, sökkti hann sér niður
í sjálfsásakanir. Hefði hann
aðeins vitað hvað að var, hefði
hann gert allt sem í hans valdi
stóð fyrir hana sagði hann.
En hann átti enga sök á mál-
inu. Hver var ábyrgur? Og
hvernig gátu svo örlagarík mis-
tök átt sér stað á sjúkrahúsinu?
Dr. Schröder, sem var yfir-
læknir á handlæknisdeild hér-
aðsjúkrahússins í Rinteln og
framkvæmdi uppskurðinn á
Evelyn árið 1963, var í sumar
sem leið veitt lausn frá emb-
ætti með eftirlaunum, þrátt
fyrir að hann var enn ekki
kominn á eftirlaunaaldurinn.
Þetta var áður en mál Evelyn-
ar kom fram í dagsljósið. Eii'
héraðssjúkrahúsið í Rinteln
hafði verið undir smásjá þess
opinbera nokkrum sinnum á
þeim árum, sem hann var þar
yfirlæknir. Árið 1952 komst
upp að tveim nýfæddum börn-
um hafði verið ruglað á sjúkra-
húsinu og árið 1964 urðu
tvenn óhöpp við uppskurði. í
annað skiptið gleymdist eittr
hvert verkfæri í sári og enn
varð einn af sjúklingunum að
gangast undir uppskurð á ný,
vegna þess að sárakompressa
hafði gleymzt inni í honum.
Dr. Schröder hefur enga
ástæðu til að kvarta yfir
meðferðinni á sér. Þegar hann
hætti störfum fékk hann út-
borguð laun, sem námu um
800,000 ísl. krónum, og hann
hefur opnað einkalæknisstofu
í annarri borg.
Evelyn er nú algerlega laus
við þjáningar og eins hamingju-
söm og hægt er að vera. Hún
mun brátt ganga að eiga þann
mann, sem yfirgaf hana ekki
þegar verst stóð á fyrir henni.
En samúð vor beinist ekki
hvað sízt að þeim manni, sem
fann orsökina fyrir þjáning-
um Evelynar, dr. Albert Jonas.
Hann er ekki myrkur í máli,
þegar hann segir frá hinni væg-
ast sagt kærulausu umgengni
fyrirrennara síns við skurð-
læknistæki. Nú hefur hópur
vestur-þýzkra lækna ráðizt að
honum fyrir ófélagslegt athæfi,
að þeirra áliti. Hann hefði ekki
átt að kalla hlutina sínum
réttu nöfnum. En sé samvizkan
hrein hjá nokkrum manni, þá
er hún það hjá honum, og hann
getúr þess vegna látið þessar
árásir sem vind um eyrun
þjóta.
Sendibréf
Framh. aí bls. 31.
ár er það spurðist frá Rúðu-
borg á Frakklandi, að íslenzk-
ur farmaður af Snæfellsnesi,
Pétur Sigþórsson frá Kletta-
koti, hafði verið myrtur þar.
Franskur sjómaður skaut hann
til bana.
Það skiptust sem sé á Ijós og
NÝI AUGLÝSINGASÍMiNN OKKAR ER 11782
38
FALKINN