Fálkinn - 02.05.1966, Blaðsíða 49
• Arfur án erfifigja
Framh. af bls. 45.
hæð í nýtízku sambýlishúsi rétt
hjá Barbarossa Platz. Þau fóru
þangað þrisvar sinnum, áður en
þau hittu hana heima.
Hún var digur, andstutt kona,
nálægt sextugu. Ibúðin var í
fyrirstríðs fúnkis-stíl ofhlaðin af
týrólskum skrautmunum. Hún
hlustaði með tortryggni á skýr-
ingar þeirra, áður en hún bauð
þeim sæti. Svo gekk hún inn-
fyrir og hringdi til manns sins.
Að stundu liðinni kom hún aftur
og kvaðst reiðubúin að svara
spurningum þeirra.
Ilse Schirmer var frænka henn-
ar og æskuvinkona, sagði hún.
„Eru þau enn á lifi?“ spurði
George.
„Ilse og maður hennar fórust
í sprengjuárásunum í maí 1942,“
túlkaði ungfrú Kolin.
„Hefur Frau Gresser erft lóð-
ina frá þeim?“ Frau Gresser
hlýddi á spurninguna með öll
merki um hneykslun og svaraði
fljótmælt:
Framh. í næsta blaði.
Kæri Astro!
Mig langar mikið til að vita eitthvað um framtíðina. Eg
cr fædd 1950. Ég hef mikinn áhuga á leiklist, teikningu og
ferðalögum, mestan þó á leiklist. Heldur þú, að það væri
ráðlegt fyrir mig að læra hana? Mig langar einnig til að
vita, hvaða starf mundi henta mér bezt. Einnig hvort ég á
eftir að ferðast eitthvað til útlanda, og ástamálin, hvernig þau
ganga, hvort ég giftist seint eða snemma. Hvernig ætli efna-
hagurinn verði? Hvað eignast ég mörg börn? Ég er með
strák núna, hvernig eigum við saman, og verður eitthvað
meira úr því?
Með fyrirfram þökk.
Svar til Dúnu:
Þú talar um, að þú hafir
áhuga á að læra leiklist. Þú
ert fædd í fiskamerkinu, og
einmitt í því merki eru margir
fæddir, sem hafa náð langt á
listabrautinni. Það er einnig
fleira í stjörnukorti þínu, sem
bendir til, að þú hafir hæfi-
leika í þá átt. Þeir, sem fæddir
eru í þessu merki, eiga mjög
auðvelt með að taka á sig
gervi annarra og lifa sig inn í
hlutverk og leggja mikla tján-
ingu í hlutverkin. Ég tel, að þú
hafir mikið til að geta orðið
leikkona, en það er ekki nóg
að hafa hæfileikana, því að
það kemur ekki af sjálfu sér
frekar en annað. Þú býrð ekki
yfir miklum metnaði eða eld-
móði, sem áreiðanlega er nauð-
synlegur til að komast áfram.
Þú þarft ávallt að hafa ein-
hvern sterkan persónuleika til
að ýta þér áfram og bvetja þig.
Það gæti til dæmis þessi pilt-
ur, sem þú talar um í bréfi
þínu, gert. Ég teldi þig mjög
heppna, ef þú fengir hann fyrir
lífsförunaut. Hann virðist vera
Dúna.
mjög jákvæður og duglegur og
það sem meira er, hann virðir,
að ég held, vilja annarra. Þú
skalt ekki búast við, að það
gangi fljótt fyrir sig, að þessi
piltur gangi í hjónaband. Hann
mun vilja kynnast tilvonandi
konu sinni vel, og þá er það
þér í óhag, ef þú verður of
óþolinmóð við hann. Árið 1967
er mjög heppilegt fyrir þig að
hefja nám. Einnig til ferðalaga.
Árið 1966 ættir þú ekki að
taka neinar mikilvægar fram-
ttíðarákvarðanir, því fyrir fiska-
merkinga er þetta ár nokkuð
erfitt á margan hátt. Þú munt
varla giftast innan við tvítugt,
en þú munt búa erlendis síðari
hluta ævinnar. Þú munt varla
eignast fleiri en eitt til tvö
börn. Það munu vera nokkuð
miklar sveiflur í lífi þínu, það
mun ganga upp og ofan, og
svo verður einnig með fjárhag-
inn. Þér er ekki mjög sýnt um
að halda á peningum, og hvað
mikið sem aflast er ávallt hætt
við, að meiru verði eytt. Ég
tel þó, að þú eigir fyrir hönd-
um gott hjónaband.
HRAÐBÁTAR
UTANBORÐSMÓTORAR
SJÓSKÍÐI
FROSKMANNATÆKI
SÓFASETT
VANDAÐ, STERKT OG STÍLHREINT
SÓFAR TVEGGJA-, ÞRIGGJA- OG FJÖGRASÆTA
VERÐ ER SÉRETAKLEGA HAGSTÆTT
GGÐ GREIÐ5LUKJÖR
HNOTAl%í
HÚSGAGNAVERZLUN
ÞÖRSGÖTU 1 SiMI 20820
FÁLKINN
49