Fálkinn - 18.07.1966, Side 9
Þó að frúin sé nú ánægð
OG GERl ADRIR BETLR
Hann var eins og svo margir aðrir fallhlífarhermenn, var
í 500 metra hæð, stökk út ásamt 500 öðrum á æfingu yfir
írlandi. 499 fallhlífar opnuðust, en fallhlíf þessa Skota, því
Skoti var hann, opnaðist ekki, og samstarfsmennirnir
horfðu á hann bruna á undan sér niður á jörð, — og upp
aftur inn í eilífðina. En viti menn, hann lenti í mosa, já,
í blautum mosa, og brákaðist á baki, svo eilífðin verður
að bíða.
ÞETTA ER í ÆTTINNI
Eva María Mariotti var heimsfræg fyrir tuttugu árum,
þegar hún var sökuð um auðgunarmorð á ekkju nokkurri
í Hamborg. Þessi ágæta kona fór frá Þýzkalandi fyrir
nokkru og sagðist ætla að opna gistihús á Kanaríeyjum.
Hún hafði dótturbarn sitt með sér, en móðirin situr í fang-
elsi og afplánar dóm fyrir ávísanafölsun.
DÆMDUR SAKLAUS
í tuttugu og eitt ár hefur ítalskur lögregluþjónn setið á
bak við lás og slá fyrir morð. Einn af starfsbræðrum hans,
kom því til leiðar fyrir skömmu að málið var tekið upp að
uýju og þá kom í ljós að lagavörðurinn liafði alls ekki
framið neitt morð. Vitnin viðurkenndu öll, að þau hefðu
logið að réttvísinni fyrir tuttugu og einu ári.
SKAUT Á BRUNABODA
Andrew Owens heitir hundhcppinn maður í San Francisco.
Glæpamaður réðist á hann með skothríð, en kúlan fór beint
í gegnum Owens og í næsta brunaboða, sem fór í gang og
eftir nokkrar sekúndur var bæði lögregla og slökkvilið á
staðnum, — nógu snemma til að góma hinn seinheppna
skotmann.
NLI ER VANDALÍTIÐ AÐ VIÐHALDA UNGU UTLITI DG AUKA
Á FEGURÐ SÍNA
EINFALDLEGA MEÐ ÞVÍ AÐ NGTA SNYRTIVQRURNAR FRÁ:
REYNIÐ ÞESSAR HEIMSFRÆGU GÆÐAVDRUR GG SANN-
FÆRIZT UM ÁHRIFAMÁTT ÞEIRRA
FÁST í FLESTUM LEIÐANDI SNYRTIVÖRUVERZLUNUM
SINYRTIVÖRLR HF. HEILDVERZLUN SÍMI 11020 11021
FALKINN
9