Fálkinn - 18.07.1966, Blaðsíða 25
Höfrungar
og tækni-
framfarir
eítir Sergei Shantyr
Furðulegasta niðurstaðan
af rannsóknum, sem gerðar
hafa verið á höfrungum, er
auðvitað skýrsla bandaríska
vísindamannsins John Lilly,
um að tilraunahöfrungur-
inn hans hafi „fengið mál-
ið“. Útlit er fyrir að dýrinu
hafi á endanum skilizt, að
maðurinn var ekki bara að
horfa á það, heldur að rann-
saka það. Daginn áður en
höfrungurinn dó í þágu vís-
indanna, sagði hann lágri
röddu við annan höfrung —
á ensku — „They deceived
us.“ Sem þýðir: „Þeir sviku
okkur“. Þessi segulbands-
upptaka hefur verið rann-
sökuð hvað eftir annað og
ávallt valdið vísindamönn-
um jafnmiklum heilabrot-
um.
Heimsbókmenntirnar eru
fullar af lýsingum á furðu-
legum atvikum tengdum
höfrungum. Höfundarnir
benda á gáfur, skarpan
skilning og skapgæði þess-
ara skepna, minnast atvika
þegar höfrungar björguðu
fiskimönnum úr bráðri
hættu og fólki frá drukkn-
un. Sergei Kleinenberg, sov-
ézkur vísindamaður og dok-
tor í náttúrufræði, segir
eftir 12 ára rannsóknir á
höfrungunum, að hann hafi
hvað eftir annað orðið sann-
færður um undraverða vin-
áttu þeirra í garð mannanna.
Fjöldi vísindamanna um
allan heim, eru um þessar
mundir að reyna að skilja
þessa veru, sem ef til vill
er næst manninum í þróun-
inni Þeir bjartsýnustu halda
því fram, að manninum
verði fært að skýra mörg
vandamál í sambandi við
sjóinn og afla nýrra upp-
lýsinga um líffræði sjávar-
ins, siglingafræði, hljóð-
myndunarfræði og starfsemi
heilans, þegar þeim hefur
tekist að komast í samband
við höfrungana. Hvalfiskarn-
ir munu hjálpa vísindamönn-
um að finna óþekkta neðan-
sjávarstrauma og mæla hita
og seltu víðáttumikilla haf-
svæða.
Höfrungar laga sig prýði-
lega eftir hitastigi, gtraum-
þrýstingi, seltumagni og
staðsetningu stjarna og sól-
ar. Og það sem meira er
um vert: Þeir vinna úr öll-
um upplýsingum um um-
hverfið með heilanum á
einu augabragði. í stuttu
máli: Það eru miklir mögu-
leikar bundnir við sam-
vinnu við þennan „merki-
leg.. sjávarbúa“, eins og vís-
indamennirnir eru farnir að
kalla höfrunginn.
Vísindamenn í haffræði-
stofnuninni í Sevastopol
hafa sett á sér það mark, að
upplýsa leyndardóminn um
hreyfingar fiska og höfr-
unga í vatni.
Yuri Aleyev náttúrufræði-
doktor við eina af undirdeild-
um stofnunarinnar segir:
„Maðurinn hefur fyrir
löngu komist fram úr dýr-
unum í lofti og á láði, með
því að gera bíla og járn-
brautarlestir, sem fara með
meiri hraða en nokkurt fer-
fætt kvikindi, og flugvélar,
sem komast lengra en nokk-
ur fugl. En í vatni hafa
frumbyggjarnir ennþá for-
ystuna. Hraðskreiðasti kaf-
bátur nær 50—60 km hraða
á klukkustund, en túnfisk-
ur kemst upp í 90 km hraða
á klukkustund og sverðfisk-
urinn allt upp í 130 km á
klukkustund.
í stríðinu var eitt sinn
smíðuð flugvél með ófleyg-
mynduðum vængjum, en
hún reyndist illa. Lögun
vængjanna var um að
kenna og var nauðsynlegt
að breyta henni og flugeigin-
leikar vélarinnar bötnuðu
um allan helming. En hjá
höfrungum og fiskum náðist
þessi áfangi í þróuninni
löngu áður en maðurinn
fann upp steinöxina fyrir
mörgum milljónum ára. Nú-
tíma tækni gæti grætt mikið
á því að rannsaka það sem
þegar er vitað.
Höfrungurinn er einn af
beztu sundgörpum heims.
Hreyfiflötur þeirra er ugg-
arnir og skrokkurinn, rétt
eins og hjá fiskunum. Eitt
sinn settu vísindamenn líkan
af hákarli í vindgöng og
komust að, sér til mikillar
undrunar, að hákarlsskrokk-
urinn, sem sekkur sé hann
hreyfingarlaus, fékk flot
þegar hann hallaðist 2 gráð-
ur miðað við fallstefnu. Með
núll gráðu halla var flot-
ið 4,6%. Jafnvægisuggarnir
eru mikilvægur þáttur í
þessu máli. Þeir vinna líkt
og „flaps“ sem flugvéla-
smiðir fundu upp til að
auka burðarflöt vængjanna.
Og raunar má bæta því við,
að staðsetning jafnvægisugg-
anna á höfrungum, hákörl-
um og styrjum, svarar ná-
kvæmlega til „flapsanna“ á
flugvélunum.
Floteðlisfræði og flugeðlis-
fræði (hydrodynamics og
aerodvnamics) eiga margt
sameiginlegt, og rannsóknir
á sköpulagi höfrungsins hafa
ekki aðeins heillað kafbáta-
smiði, heldur flugvélasmiði
ekki síður.
Til þess að rannsaka flot-
eiginleika höfrunga og fiska,
bjuggu vísindamenn stofn-
unarinnar til líkan af styrju,
en lögun hennar er áþekk
flugvélarvæng. Þetta var tré-
líkan þrisvar sinnum stærra
en venjuleg styrja. Líkanið
hafði flotið aðeins fyrir
neðan núll, en í ljós kom að
við drátt skapaðist flot í
fremri enda líkansins, líkt
og gerðist með flugvélar og
fyrir áhrif flotsins, hefur
líkanið jafnvel komist upp
á yfirborðið.
Niðurstaðan varð sú, að
stór hluti flotsins í fisk-
um og höfrungum felst í
skrokknum, en hinn í ugg-
unum.
Mikilvægt atriði í þessu
sambandi er geta hvalsins
til að kafa snöggt á mikið
dýpi. Maður með súrefnis-
geymi getur kafað hundrað
metra niður, en skíðishval-
ur kemst á kílómetersdýpi
og stenst hinn gífurlega
þrýsting sem þar er. Sannað
hefur verið að svitaefni
þeirra, myoglobin, er mikill
þáttur í þessu máli. Áður
en köfun fer fram bindur
það mikið magn af súrefni,
sem notast af vöðvunum.
Mörg vandamál hafa
leystzt með aðstoð höfrung-
anna. T. d. hjálpuðu þeir til
að finna ástæðuna fyrir ið-
unni sem myndast, þegar
hlutir hreyfast í vatni eða
lofti. Hjá fiskum, eins og
makrílnum, sem þó virðist
vera alveg straumlínulagað-
ur, ber mikið á þessari iðu.
Sannast hefur að leyndar-
dómurinn um mótstöðuleysi
hvala og höfrunga liggur í
hinni óvenjulega mjúku og
sléttu. húð. Vísindamaður
nokkur bjó til húð úr gervi-
efnum og setti hana utan
um tundurskeyti. Árangur-
inn varð sá, að mótstaðan
minnkaði um helming og
hraðinn jókst að sama skapi
miðað við sömu vélarorku.
Með rannsóknum á sjávar-
dýrum og fiskum, er hægt
að læra margt sem kemur
að góðu gagni í smíði kaf-
báta. Sá dagur er ekki langt
undan, að ýmsum náttúru-
lögmálum verður snarað á
vskiljanlegt mál af vísinda-
mönnum og af því verði til
tæki og vélar, sem taka
langt fram þeim, sem nú eru
þekkt. — APN.
FALKINN
25