Fálkinn - 18.07.1966, Page 27
.ÐUR
IN$ OG JARÐAR
rísa gegn henni. Bygging sólar hneigist svo greinilega til að
halda sjálfri sér við, að vandséð verður, hvers vegna sólin
ætti nokkru sinni að breyta jafnvægisástandi sínu, jafnvel í
þeim litla mæli, sem nauðsynlegur er til að gera grein fyrir
þessum loftslagssveiflum jarðar. Breytingar þær, sem nefndar
voru hér að framan, voru aðeins hugsaðar — þess vegna var
notað orðatiltækið „með einhverjum töfrum“.
HVERS VECIMA HELPIJR LJOSHVOtFIÐ
ÁFRAM AÐ SKÍMA ÍJT í RLMIÐ?
T^Á kemur að veigamiklu atriði: Hvers vegna heldur Ijós-
hvolfið áfram útgeislan sinni út í rúmið? Svarið er ein-
falt. Hvenær sem hitamunur verður innan í efni, hlýtur orka
að streyma frá svæðum með hærra hitastigi til svæða, sem
hafa lægra hitastig. Því hlýtur orka að streyma frá hinum
ofsaheitu iðrum sólar — nema þá að sólin væri öll jafnheit, yzt
sem innst. En ef svo væri mundi útgeislan ljóshvolfsins fljót-
lega valda kólnun, hitamismunur kæmi fram og orka mundi
taka til að streyma þegar í stað.
( Það kemur sér líka vel fyrir okkur; þetta síðasta atriði
er aðeins hugsaður möguleiki. Því að ef útgeislan sólar væri
aðeins 10 milljón stiga heit, mundi jörðin breytast í gufu-
mökk á nokkrum mínútum. En þótt þessi möguleiki sé aðeins
ímyndaður, að því er tekur til sólar, þá er hann þó staðreynd,
um sumar mjög sérstæðar stjörnur, sem sprengja skyndilega
af sér ytra byrðið með ofsa krafti. Þetta eru svonefndar
súpernóvur, og gefst síðar tækifæri til að ræða um þær í
sérstökum kafla.
Ástæðan fyrir því, að yfirborðshiti venjulegrar stjörnu —
svo sem sólar — binzt ákveðnu gildi byggist þá á eftirfarandi
rökum: Væri útgeislan lofthvolfsins meiri en orkuuppstreymið
að innan, mundi yfirborðið kólna. En væri útgeislan ljós-
hvolfsins minni en orkuuppstreymið, hlyti yfirborðshitinn að
aukast að sama skapi, unz jafnvægi væri náð.
Af þessu sést að stjarna hlýtur að öðlast annað jafnvægi,
þar sem orkuútgeislan yfirborðsins jafnast við orkuuppstreym-
ið innan frá; og er það þetta annað jafnvægi, sem ræður
fyrir yfirborðshita hverrar stjörnu. Má þvi sjá að það er
þrenns konar jafnvægisástand sem ríkir á sólu: Þrýstings-
jafnvægi, orkujafnvægi og jafnvægi yfirborðshitans.
BLAUPUNKT
BÍLTÆKI
„Standard'*
Festingar í
flestar tegundir
bifreiða.
FERÐATÆKI
með festingum
í bíla.
Einnig má setja
í samband
plötuspilara
eða segulband.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
mismunandi
tegundir ferða-
tækja með
bátabylgju.
Fcrða-
tæki
með innbyggðum
plötuspilara fyrir
allar stærðir af plöt-
um - battery og
220 volt
FULLKOMIN VIDGERÐAÞJÓNUSTA
RADIOVER SF.
Skólavörðustíg 8 Reykjavík - Sími 18525
FALKINN
27