Fálkinn - 18.07.1966, Page 28
JÁ=1966
<
. í../' •;
Brcytingarnar eru kannski
ekki stórvægilegar, en það
munar því sem dugar til þess
að þið klæðizt tízkunni 1966,
en eikki 1965. Þið sjáið þessa
stutterma peysu; þið getið not-
að hana jafnt við pils, síðbux-
ur, stuttbuxur eða yfir baðföt-
in þegar tekur að kólna í sól-
baðinu. Djarfir litir eru í tízku
og enn djarfari litasamsetning-
ar. Peysan á að vera há í háls-
inn og helzt með rúllukraga,
algerlega ermalaus, eins og á
myndinni að ofan. Ef þið eigið
peysu eins og þessa á neðri
myndinni skuluð þið leggja
hana til hliðar þangað til í
haust, en þá getið þið notað
hana undir golftreyju.
Slétt pils sem ná nið-
ur fyrir hné eru for-
boðin vara í ár. Ef
þið eigið pils eins og
á litlu myndinni, skul-
uð þið flýta ykkur að
stytta það og setja á
það mjótt belti. Pilsið
á stærri myndinni er
úr ljósu bómullarefni,
og slær sér svolítið út
að neðan. Og það má
ekki síðara vera, miðað
við hina síhækkandi
pilsfalda.
FALKINN