Fálkinn - 18.07.1966, Síða 38
• LSÐ____________
Framh. af bls. 35.
Þetta eru dæmigerðar LSD-
myndir, líkar þeim sem við
höfum þegar séð í íbúðum þessa
fólks. Abstraktmálverk með
röndum, punktum og teiknuð-
um útlinum sem minna á fóst-
ur; litirnir glossalegir — fjólu-
blátt, purpuralitað, rauðgult,
svarblátt og sterkgrænt.
Hamptoppapípan gengur á
milli manna,, eins og friðarpípa
hjá Indíánum. Á. langa borðinu
við arininn liggur lítið eitt af
maríhúana, venjulegt tóbak,
sígarettupappír og skál með
sykri. Stykki af hamtoppi
(toppur af indversku hampjurt-
inni) er vafið inn í bréf. Stærð
þessara hampstykkja er alltaf
miðuð við, að hægt sé að gleypa
þau í snarhasti, ef lögregiu-
menn skyldi bera að garði.
Fyrir stuttri stundu bættist í
hópinn hjá Bart George And-
rews, bandarískur rithöfundur
og skáld. Hann vinnur að því
að skrifa „Bókina um grasið",
yfirlitsrit um „leit mannsins að
algleymi.“
Andrews vill taka upp það
fyrirkomulag í nautnalyfjamál-
um, að fólk geti látið skrá sig
hjá lyfjaverzlunum og fái þá
kort með skömmtunarseðlum,
útgefnum af ríkinu, fyrir
ákveðnu magni af nautnalyfj-
um eins og maríhúana, hamp-
toppum og LSD. — Það mundi
kippa fótunum undan svarta-
markaðsbraski glæpasamtak-
anna, segir hann. — Og menn
eins og við fengju sinn skammt
af þessum lyfjum á löglegan
hátt.
Andrews er því mótfallinn,
eins og reyndar allir hinir í
litla hópnum okkar, að LSD
sé neytt eingöngu af ævintýra-
og nautnafíkn. En hvar eru
mörkin milli fíknar og raun-
verulegrar sjálfsskoðunar, af
því tagi, sem sumir áhangend-
ur lyfsins trúa á? Þeir trúa
því statt og stöðugt, að LSD
sé betra til sálgreiningar en
nokkur sálfræðingur, og að
það endurfæði þeirra innri
mann.
í Lundúnum hafa myndast
hópar bóhema og ýmiss konar
listamanna, sem koma saman
til LSD-„ferða“ reglubundið
eins og eins konar trúariðkana.
Það er ekki gott að segja um,
hversu útbreiddar þessar iðk-
anir eru, en þeirra sjást víða
merki: — á málverkasýning-
um „avant garde“ málara, í
bókaverzlunum, í skreytingum
og í litavali nýju fatatízkunn-
ar.
LSD veður uppi í dægur-
lagaheiminum í Englandi. Við
hittum að máli Philip Robert-
son umboðsmann, og hann segir
okkur, að Bítlarnir frægu séu
einnig í hópi áhangenda þessa
dularfulla nautnalyfs.
Philip Robertson segir frá:
— Þegar ég var umboðsmað-
ur hljómsveitarinnar „Moody
Blues“, leigðu drengirnir sér
fallegt hús í Roehampton. Dag
einn komu bítlarnir John
Lennon og George Harrison í
heimsókn. George sagði okkur
frá því, að bandaríski þjóð-
lagasöngvarinn Bob Dylan
hefði samið marga þekktustu
söngva sína undir áhrifum
LSD. George stakk upp á, að
við prófuðum þetta allir einu
sinni, upp á grín. Og það gerð-
um við.
BÍTILLINN HÉLT
AÐ HANN VÆRI HITLER
Að því er Robertson sagði
okkur, varð hús „Moody Blues“
brátt samkomustaður þeirra,
sem vildu bregða sér í „ferð“.
En því var stranglega haldið
leyndu, að Bítlarnir kæmu
þangað til þess að „ferðast“.
Robertson: — Kvöld nokk-
urt gleypti John Lennon LSD-
skammt í Roehampton og fékk
þá flugu í höfuðið, að hann
væri Adolf Hitler. Hann setti
m. a. s. á sig svart gerviyfir-
skegg.
Lögreglan hefur lítið skipt
sér af þessum málum. Ennþá
fyrirfinnst ekkert lagaboð í
Bretlandi, sem bannar fólki að
eiga LSD í fórum sínum.
Það er bjargföst sannfæring
Bart Huges og kumpána hans,
að innan fimm ára verði eitur-
lyfjalöggjöfin meðal allra sið-
aðra þjóða orðin svo rúm, að
þeir geti refsingarlaust reykt
maríhúana og hamptoppa. LSD
er náttúrlega ekki hægt að
leggja að líku við þessi tiltölu-
lega meinlitlu nautnalyf, það
er svo margfalt sterkara og
hættulegra. Og Bart Huges
viðurkennir, að það hafi komið
einum vini sinna á geðveikra-
hæli. Annar þeysir á mótor-
lijóli um ensku landsbyggðina
í því skyni að „kristna“ enska
biskupinn til LSD-dýrkunar —
fremur vonlítið fyrirtæki.
Fólk sem tekið hefur LSD
undir lækniseftirliti í tilrauna-
skyni, segir frá því, að það
hafi upplifað sköpun alheims-
ins. Aðrir segjast hafa skegg-
rætt við Plató. Bandarísk kona
skrifaði bók um það, hvernig
fíx'xíí
liiiii
'wKvIvK'i
Hvert er
förinni heifið?
Faxarnir rata
England, Skotland, DanmÖrk, Noregur,
Færeyjar...
Flugfélagið sér yð.ur f y r i r A a r i
á (slandi og um víða veröld
FLUGFELAG ISLANDS
ICELANDAIR
FALKINN