Fálkinn - 18.07.1966, Side 40
Allt í viðleguna
tjöldin
eru sterk og gerð fyrir ís-
lenzka veðráttu. Þau eru
með föstum botni, sem
gengur upp á tjaldið til
varnar bleytu. Þau eru með
' þrem rennilásum. Þau eru
með rissúlum í staðinn
fyrir eina súlu í miðju.
5 manna fjölskyldutjöldin
með bláu aukaþekjunni, eru tjöld ársins! Kosta aðeins kr: 3.890,—
Þýzk hústjöld, svefntjöld og dagtjöld á kr: 5.850,—
svefnpokarnir
eru hlýjir, enda stoppaðir með íslenzkri ull. Verð frá kr: 685,—
PALMA-vindsængur
Verð frá kr: 485,—
Ferðaborðbúnaður í tösku. — Pottasett, margar gerðir. —
Ferðalagsprímusar. — Tjaldsúlur með rislagi. — Stög og hælar.
Munið eftir VEIÐISTÖNGINNI en hún fæst einnig í
PÓSTSENDUM
Verzlið þar sem hagkvæmast er
LAUGAVEGI 13.
veiði og það er gaman að vinna
úr þessu.
Hvað finnst ykkur um
skemmtanalífið í Reykjavík?
PÉTUR: Það er vægast sagt
mjög einhliða. Mér finnst, að
það ætti að lækka aldurstak-
markið niður í 18 ára aldur
að vínveitingastöðunum, en af-
greiða ekki fólk undir 21 árs
á barnum. Allavega vantar
mikið á til að verða við óskum
æskunnar í dag.
JÓN: Það hefur komið fram
góð hugmynd í sambandi við
þetta vandamál unga fólksins.
Nefnilega það, að dansstaðirnir
skiptist á að hafa þurrt kvöld,
þ. e. a. s. ekki vínveitingar
einu sinni í viku og þá áuð-
vitað um helgar, til þess að
gefa unga fólkinu tækifæri til
að skemmta sér á þessum stöð-
um, sem það beitir öllum til-
tækum ráðum til að komast inn
á, vegna þess að þau hafa svo
fáa staði til að skemmta sér
á, en hér á ég sérstaklega við
laugardagana. En þessi tillaga
var felld á Alþingi um svipað
leyti og bjórinn. *
PÉTUR: Þjónustan hér er
langt fyrir neðan það, sem boð- ,
legt má teljast. Fyrst er það nú
þessar einstaklega skemmti-
legu kreppuárabiðraðir fyrir
utan dansstaðina. Svo loksins,
er inn kemur, verður maður
að borga fatagjald, án tillits
til þess, hvort að maður sé með
yfirhöfn.
JÓN: Ég er á sama máli. Nú
og ef við erum ekki 4 eða 5
saman og allir æstir í að kaupa
vín, þá fær maður hvergi borð.
Þetta er staðreynd.
Hvernig aflið þið ykkur nýj-
ustu hljómplatnanna?
PÉTUR: Við höfum sérstak-
lega góð sambönd, hvað þetta
snertir, sem gerir okkur kleift
að leika hljómplötu áður en
hún kemur á markaðinn í Bret-
landi. Þessa sömu aðstöðu hafa
flestar útvarpsstöðvar í heim-
inum. Þetta byggist á því, að
E.M.I byrjar að dreifa plötunni
um allan heim viku áður en
hún kemur formlega út til þess
að hún fáist í öllUm löndun-
um fyrirfrám ákveðinn útgáfu-
dag, hvort sem landið er ísland
eða Japan.
JÓN: Ég vil að lokum fyrir
hönd okkar beggja þakka þeim
mörgu, sem sent hafa þættin-
um bréf, en þau hafa yfirleitt
verið lofsamleg í garð þáttar-
ins, en jafnframt viljum við
hvetja hlustendur um að skrifa
okkur sem oftast og benda á
það, sem betur má fara, að
þeirra áliti.
Þegar þetta er ritað, standa
til breytingar á þættinum, því
Jón Þór er að fara til Dan-
merkur á vegum íslenzka sjón-
varpsins, en ekki er ákveðið,
hver tekur sæti hans. Hins
vegar mun snið þáttarins verða
að öðru leyti óbreytt.
• Raquel Welch
Framh. af bls. 31.
myndum, svo sá kvikmynda-
framleiðandinn Saul David
hana og varð svo hugfanginn
af fegurð hennar og persónu-
töfrum, að hann vildi enga
FALK.I NN