Fálkinn - 18.07.1966, Qupperneq 41
qh.nema.hana sejm, stjörnu.í forn-
s aldarmyndjnni sem hann var
Í3 þá að undirbúa.
RAQUEL er forkunnarfögur
stúlka, há og vel vaxin
með sítt, dökkt hár, stór,
brún augu og langa fótleggi.
Hún er glaðleg og elskuleg í
framkomu, brosir oft og hlær
c enn oftar, og alltaf er hún
ánægð. Róleg og ánægð. Hún
er laus við taugaveiklun og
fær engin þunglyndisköst eins
og tíðkast meðal frægra kvik-
myndaleikkvenna. Hún brosir
ánægjulega í hótelherberginu
sínu, síðan í bílnum á leið út
á strönd, svo þegar farið er
að mynda hana í ýmsum stell-
ingum, klædd peysu og síð-
buxum, bikinibaðfötum og kjól-
um á víxl, þá í bílnum á heim-
leið og loks við kvöldverðar-
borðið á hótelinu. Hún talar
mikið og með fjörlegu handa-
pati, leikur sér að sólgleraug-
unum sínum, hlær dillandi.
í
lil hreingerninga
og r
uppþvottinn
Heildsölubirgðir
Kristján Ó. Skagfjörð
Sfmi 24120
Hún- er heilsuhraust og lyst-
argóð, sefur vel, vaknar full af
lífskrafti á morgnana, kennir
sér aldrei meins og finnur
aldrei til þréytu. Hún hefur
ekki áhyggjur af neinu, gerir
eins vel og hún getur og lætur
það duga. Hún elskar sjóinn,
en verður að gæta þess að láta
andlitið ekki verða of sól-
brúnt, því það er óæskilegt í
litmyndum. Hún fer alltaf
snemma í rúmið, reykir lítið
og smakkar ekki áfengi, henni
finnst gaman að dansa, en fer
sjaldan í samkvæmi sem standa
yfir hálfa nóttina, gaman á
meðan, en ekki morguninn
eftir. Hjónaband vill hún ekki
hugsa um strax, nú er starfið
aðalatriðið í hennar lífi, hitt
getur beðið. Eini löstur hennar
er tyggigúihmíið — án þess
getur hún ekki verið nokkra
stund, en það er líka gott fyrir
tennurnar, afsakar hún sig.
Hún hefur áhuga á fólki og er
fljót að kynnast því, enda er
hún bæði samúðarrík og hjarta-
góð, alltaf tilbúin að koma
öðrum til hjálpar. Hún þjáist
ekki af neinum komplexum og
virðist að sumu leyti barnaleg,
en jafnframt býr hún yfir fá-
gætum kynþokka og allt að
því leyndardómsfullu aðdrátt-
arafli.
HÚN er trúuð, en heldur sig
ekki við neinar kreddur.
„Ég trúi á einhvern æðri mátt
sem við getum leitað til í erfið-
leikum okkar,“ segir hún, „en
ég er viss um, áð hjálþin ein-
skorðast ekki við nein sérstök
trúarbrögð eða trúflokk.“ og
hún lítur björtum augum á til-
veruna. „Jafnvel þegar mér
hefur liðið verst — og auðvit-
að líður öllum einhvern tíma
illa — hef ég huggað mig við,
að margir væru miklu ógæfu-
samari en ég, og þess vegna
ætti ég að vera þakklát fyr-
ir hlutskipti mitt, en ekki
kvarta.“ Hún hefur aldrei ‘far-
ið til sálfræðings eða geðlæknis
og hlær við tilhugsunina, eins
og það væri fjarstæða. Hvers
óskar hún sér af lífinu? „Að
ég geti orðið alþjóðleg stjarna
á borð við Sofiu Lorne, sem
getur leikið gamanhlutverk og
harmleiki jöfnum höndum, sem
er fögur, auðug og dáð, sann-
kölluð drottning í heimi kvik-
myndanna.“ Og hvernig skil-
greinir hún hamingjuna? „Að
eiga frið í sálu sinni og innri
ró, hafa tíma til að hugsa og
ráða sjálfur yfir lífi sínu. Ég
hef komizt áfram upp á eigin
spýtur án þess að hafa nokkurn
tíma gripið til óheiðarlegra
bragða. „Ég óska eftir frægð og
velgengi, en vil ekki kaupa
hana of dýru verði... ég vil
heldur vera óþekkt og venju-
leg en að troða mér áfram á
kostnað annarra.“
Hún virðist tala í fullri ein-
lægni. Almenningur bíður þess
með eftirvæntingu að sjá kvik-
myndirnar hennar; við. eigum
eftir að heyra meira um Raquel
Welch. ★ ★
Yfir Atlansrhaf
Framh. af bls. 20.
sem þeir fengu ærlegar mót-
tökur, sem þeir höfðu vonazt
eftir, báturinn var borinn á
„gullstól" inn í miðbæinn,
undir dynjandi músík. Þetta
var mesta hátíð, sem haldin
hafði verið í Farsund, en það
endurtók sig hvergi annars
staðar í landinu. Og þegar
Gabriel Samuelssen hafði ver-
ið nokkrum sinnum í Ameríku,
án þess að finna gullið og ger-
semarnar, sem hann hafði fast-
lega vænzt, settist hann að í
Austad, — en þegar hann var
orðinn rúmlega sjötugur, sett-
ist hann að í heimabæ sínum,
Farsund þar sem hann lifði
síðustu ár sín.
Harboe dó fyrir um það bil
50 árum síðan, en ekkert er
vitað um síðustu árin, sem
hann lifði. En það gildir einnig:-
um hann, að umheimurinn,
gleymdi honum og í hverju
hann hafði átt, þegar hann var
annar af tvehnur, sem sigldi
á opnum árabát yfir Atlants-
hafið. Hann fékk 60 króna
verðlaun (ísl.), einu heiðurs-
launin, sem þessir tveir nor-
rænu víkingar , fepgu nokkurn
tíma.
Stjórnmálamaður er mað-
ur, sem segir þér hvað muni
gerast á morgun og segir þér
svo hinn daginn hvers vegna
það gerðist ekki.
* " ‘
Læknirinn: — Er yður
mjög umhugað um 'að lækn-
ast af þessum ósjálfráðu
hneigingum yðar?
Sjúklingur: — Já, það segi
ég yður satt. Ég kom á upp-
boð í gær og nú er ég eig-
andi að þremur píanóum,
fjórum ruggustólum og ein-
um páfagauk.
TRÚLCFUNAR
ULRICH FALKNER oulism
LÆKJARGÖTU 2 2. HÆO
HVERFISGÖTU 16
SÍMI 2-1355
Einangrunargler
Framleitt einungis úr úrvals
gleri — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
KORKIDJAINI H.F.
Skúlagötu 57 — Sími 23200.
FALKINN
41