Vaka - 01.11.1927, Page 28

Vaka - 01.11.1927, Page 28
346 HERMANN JÓNASSON: [vaka] réttlætis. Svo var ekki — heldur hreint og beint hið gagnstæða. Það var einmitt kirkjan, sem setti það fram í rökfræðilegu kerfi, að refsingin ætti og yrði ófrávíkj- anlega að vera kvalafullt böl. Kirkjan sló því föstu í eitt skifti fyrir öll, að löggjafarnir væru fulltrúar Guðs og allur hegningarréttur væru því G,uðs lög. Afbrota- maðurinn, sem braut hegningarlögin, braut á móti Guðs boði og þessvegna refsaði Guð honum — fyrir milligöngu kirkjunnar, sem var umboðsmaður, er Guð hafði sett á jarðríki til að framkvæma refsingarnar. Kirkjan sagði: mótgerðir við menn er unnt að fyrirgefa, en brot gegn Guði sjálfum aldrei. Afbrotamaðurinn hafði brotið gegn Guði og fyrir það voru engar refsingar nógu ægilegar. Maður verður að hafa það í huga, að þessi röksemdaleiðsla var ekkert gaman, heldur rótgró- in og trylll sannfæring, sem nákvæmlega var fylgt í verkinu. í íslenzkum lögum frá 1846, sem nú eru i gildi, er talað um „dómstól þeirra manna, sem settir eru af Guði til þess, að þeir h a r ð 1 e g a refsi“, þar er talað um Guð sem „endurgeldur opinberlega, sem Iét bðlvun útfara, svo hún kæmi yfir þjófsins hús“ o. s. frv. Þegar afbrotamaðurinn, syndarinn, sem kallað- ur var, engdist af kvölum á bálinu, blánaði í gálgan- uin eða rotnaði í myrkrastofunni, meðan fólkið horfði á og æpti fagnaðaróp, sá það alls ekki lengur í söku- dólgnum manninn, heldur oft hreint og beint djöful- inn, sem hafði tekið manninn í þjónustu sína til að vinna á móti Guði. III. Þessar skoðanir á refsiframkvæmdum breyttust í lok átjándu aldarinnar. Margir mannúðarmenn voru að verki við að rífa þær niður og sýna fram á, hve ó- mannúðlegar þær voru. Rithöfundar franska upplýs- ingartímabilsins áttu ekki lítinn þátt í þessu verki, þeir rifu slæðu trúarinnar frá augum fólksins; þeir

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.