Vaka - 01.11.1927, Page 72

Vaka - 01.11.1927, Page 72
390 RITFREGNIR. [vaka] Stanley Melax: ÁSTIR. Tvær sögnr. Reykjavík, Prent- smiðjan „Acta“ 1920. Sögurnar í „Ástum“ lieita „Æska og ástir“ og „Tvenn- ir elskendur“. Fyrri sagan lýsir lífi konu, sem Elísabet heitir. Barneignir svifta hana heilsu, og hún deyr á bezta aldri. Boðskapurinn, sem sagan flytur, er þessi: Takmarkið barneignirnar. En eins og mennirnir munu almennt vita, hefir allmikið verið um það deilt, hvorl heilbrigðara sé að láta náttúruna ráða í þeim efnum eða taka fram fyrir hendurnar á henni. Síðari sagan segir frá tvennum elskendum, eins og nafn hennar bendir á. Baldur framkvæmdarstjóri gerir þungaða Katrínu, Unnustu Karls verkstjóra sins, og þegar Karl veit, hversu komið er, skýtur hann Baldur. Katrín verður gagntekin af sorg og örvæntingu og ætlar að fyrirfara sér, en unnusta Baldurs bjargar henni og tekur hana að sér. Elur Katrín harn sitt í húsum henn- ar og nýtur hjá henni samúðar og bliðu. Báðar eru sögurnar ádeilur, en hvörug þeirra er lík- leg til áhrifa. Höfundinn virðist vanta það skap og þá skerpu, sem þarf til þess að sækja svo mál, að sóknin sé hrífandi. Frá listarinnar sjónarmiði eru sögurnar mjög svo lítil- fjörlegar. Fyrri sagan er afar-langdregin og rís hvergi hátt. Frásögnin er fjörlítil og persónulýsingarnar rauna- lega tilþrifalitlar. Það er eins og höfundurinn hafi skrif- að söguna sér til sunnudagsafþreyingar. Sú siðari er sömuleiðis bragðdauf. Lesandinn hlýtur hreint og beint að undrast vetlingatök höfundar. T. d. um vetlingatökin vil ég nefna það, að frá því unnusta Karls verkstjóra segir honum, hvernig komið sé, og hann þýtur burt frá henni, fáum vér ekkert um hann að heyra, fyr en „Morgunblaðið“ flytur þá t'regn, að hann hafi myrt Baldur. Nú er það enginn hversdagsatburður á landi hér, að menn drepi náunga sinn, en samt finnst höfundi „Ásta“, séra Stanley Melax, engin þörf á að lýsa þvi sálarástandi Karls, sem kemur honum til að skjóta Baldur. Málið á bókinni er víða klaufalegt og stíllinn daufur og viðvaningslegur. Á blaðsíðu 174 farast höfundi þannig orð: „Hið dökka, velsnúna yfirskegg, sem hann nú bar, fór honuin vel, og augun, sem voru orðin hvassari og festu-

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.