Fréttablaðið - 27.11.2009, Page 34
4 föstudagur 27. nóvember
✽ útlit og förðun
tíska
Þ að var fullt út úr dyrum á sýningu á vor- og sumarlínu Givenchy 2010 í París. Hönnun Riccardos Tisci vakti mikla athygli, en í vorlínu hans mátti sjá allt frá svarthvítum rokkuðum jökkum, kjól-
um og leggingsbuxum yfir í rómantíska blúndukjóla.
Riccardo Tisci er nú kominn í hóp eftirsóttustu hönnuðanna Parísar. Ólíkir straumar hans í vænt-
anlegri vorlínu komu vel út og augljóst var að hugað var að hverju smáatriði. - ag
Stílhreint
Flottur hvítur
jakki við mittis-
háar svartar
buxur.
Töff Höfuðföt og upp-
háir, þykkbotna skór
voru áberandi á sýn-
ingu Givenchy í París.
Munstrað
Munstrað-
ar buxur og
skyrtur voru
áberandi hjá
Givenchy.
MASKARI Í STAÐ GERVIAUGNHÁRA? Bobbi Brown hefur sent frá sér nýjan maskara
sem kallast Extreme party mascara. Hann hefur þann eiginleika að hægt er að byggja hann upp
með mörgum umferðum yfir daginn, en þess á milli haldast augnhárin aðskilin og mjúk. Þú getur
geymt gerviaugnhárin heima þegar maskarinn er annars vegar því með hverri umferð þykkjast
augnhárin og verða meira áberandi, án þess að maskarinn klessist eða flagni af.
Nýtt jólaútlit frá Mac
Snillingarnir í Mac hafa komið með partílegustu línu desember-
mánaðar í formi alls kyns augnskugga og kinnalita. Línan sem kall-
ast Twinkle Twinkle Superstar einkennist af bleikum og fjólubláum
tónum á augu og varir, rósrauðum og gylltum tónum í kinnaliti og allt
er þetta með sérlega fallegri glitrandi áferð sem er fullkomin í jóla-
boðin. Umbúðirnar utan um öll herlegheitin eru líka svo fallegar að
þetta er kjörin gjöf í skóinn handa elskunni. - amb
Rómantík
Riccardo Tisci
hugaði að
hverju smáat-
riði fyrir vor-
og sumarlínu
sína.
Svart og hvítt
Munstraðar legg-
ingsbuxur og töff
skyrta úr sumar- og
vorlínu Givenchy.
ROKKAÐIR
TÍSKUSTRAUMAR
M
Y
N
D
IR
/G
E
T
T
Y