Fréttablaðið - 27.11.2009, Qupperneq 44
8 •
Dikta sendi á dögunum frá sér plöt-
una Get it Together, sem er þeirra
þriðja og sú sem skartar langflott-
asta umslaginu, að mínu mati. Ég
hitti Hauk og Jón Þór inni í þröngu
viðtalsherbergi á dögunum og átti
við þá notalegt spjall.
Frábær plata
– Hvernig finnst ykkur þessi plata?
Haukur: „Fáránlega góð, bara.“
– Fáránlega góð?
Haukur: „Hún er betri heldur en við
bjuggumst við að hún yrði.“
– Hvað er svona gott við hana?
Haukur: „Þetta eru bara svo góð
lög.“
Á þessum tímapunkti er Jón Þór
byrjaður að hlæja. Hann furðar sig
á félaga sínum, sem er yfirleitt hóg-
værðin uppmáluð, ljúfur drengur sem
er ekki gefinn fyrir stæla. Haukur er
fljótur að gefast upp og fer að tala
af alvöru um plötuna.
Haukur: „Við vorum tilbúnir með
30 lög…“
Vúps. Ég kannast við það sem
Haukur er að segja og reyni að muna
hvar ég las það. „Ahh, já,“ hugsa ég.
„Þeir voru í viðtali í Fréttablaðinu
fyrir skömmu.“ Þegar Jón Þór tekur
við og byrjar að tala um að þeir unnu
plötuna sjálfir, sneru tökkunum og
stjórnuðu upptökum reyni ég að
beina umræðunni í annan farveg
– enda flest búið að koma fram um
plötuna sem þarf að koma fram.
Eftir langt spjall um hversu langan
tíma vinnsla plötunnar tók, hvernig
lýðræðið virkar í hljómsveitinni og
hversu góðir vinir strákarnir eru get
ég ekki setið á mér lengur.
– Ef ég myndi stilla ykkur við hlið-
ina á Mínus, þegar hún var upp á sitt
besta, myndi sjást mikill munur – er
Dikta ljúflingaband?
Haukur: „Mínus er líka ljúflinga-
band.“
Jón: „Við gerum allavega ekki út á
það að vera „bad ass“.“
– Gefið þið til góðgerðamála?
Haukur: „(Hlær) Ef við ættum
peninga aflögu myndum við gera
það.“
Jón: „Þú sækir reglulega sæðis-
banka, þannig að þú gerir það sem
þú getur.“
Haukur: „Já, reyndar.“
– Í alvöru?
Báðir: „Nei.“
Trommarinn stelur viðtalinu
Haukur sleppur aldrei við að ræða
um starf sitt í viðtölum, enda er hann
læknir. Jón Þór virðist ekki hafa spurt
Hauk nægilega mikið út í starfið þar
sem hann tekur yfir viðtalið í stutta
stund til að ræða við Hauk.
Jón: „Þurftirðu einhvern tíma að
starfa á húð- og kynsjúkdóma-
deild?“
Haukur: „Já.“
Jón: „(Hlær) Það hlýtur að vera
svolítið spes að vera kannski 25
ára karlmaður með kynfæravörtur
og koma í skoðun og þar er kannski
söngvarinn í uppáhaldshljómsveit-
inni hans.“
Haukur: „Ég get ekkert tjáð mig
um það.“
Jón: „(Hlær) Þú værir kannski að
skoða á honum félagann og á meðan
væri hann eitthvað: „Djöful er gott
lagið þarna …“ Og svo fer jafnvel
blóð að renna í félagann.“
(Allir hlæja)
Jón: „Má fólk biðja um einhvern
annan?“
Haukur: „Jú, það má alveg.“
Jón: „Hefurðu lent í því?“
Haukur: „Nei. Fólk ber mikið traust
til mín. Ég hef samt gefið eiginhand-
aráritun í vinnunni.“
– Ertu viss um að það hafi ekki
verið á lyfseðil?
Haukur: „Það var einmitt á vottorði.
Ég skrifaði á vottorðið og spurði
hvort það væri ekki nóg.“
– Hefurðu bjargað lífi?
Haukur: „Örugglega … alveg pott-
þétt.“
– Svona fólk lætur mér líða illa á
kvöldin. Ég hef ekki áorkað neinu.
Svo er fólk sem er aðeins eldra en
ég að bjarga mannslífum.
Gríðarleg keyrsla
Eftir stuttar umræður um atvinnu-
flugnám Jóns, pólitík, skítkast,
flokkapólitík og vangaveltur um
popp og hvernig fólk komst af án
Netsins byrjum við aftur að ræða
um plötuna. Það er ekki mikið pláss
eftir undir viðtalið, svo að það er
best að koma sér að efninu.
– Hvað viljið þið að platan geri fyrir
Diktu? Er búið að redda dreifingu í
útlöndum og bóka túr og svona?
Haukur: „Nei. Útlönd eru algjörlega
óráðin. Við vildum í fyrsta lagi koma
plötunni út á Íslandi og fylgja henni
vel eftir. Við héldum náttúrulega
útgáfutónleika á fimmtudaginn
– mættirðu?“
– Já, sáuð þið mig ekki? Ég hitti
þig! (bendir á Jón)
Jón: „Já.“
BURÐAR-
STÓLPAR
SAMFÉLAGSINS
DIKTA Í VIÐTALI UM NÁN-
AST EKKERT (ENDA ALLT
BÚIÐ AÐ KOMA FRAM)
Það hefur oft komið fram að Haukur Heiðar, söngvari
Diktu, sé læknir. Spurður hvort hann hafi bjargað lífi
svarar hann: „Örugglega“. Þvílík hógværð. Það sem ég
vissi ekki áður en ég tók viðtalið var að hinir meðlimir
hljómsveitarinnar eru einnig í gríðarlega mikilvægum
hlutverkum í samfélaginu. Trommarinn Jón Þór verður
væntanlega orðinn fullgildur flugmaður um áramót-
in og Jón Bjarni gítarleikari og Skúli bassaleikari eru
báðir að læra að verða kennarar. Það mætti því segja
að framtíð Íslands standi og falli með hvort meðlimir
Diktu standi sig í starfi. Þeir eru burðarstólpar samfé-
lagsins – og þeir eru ekki einu sinni orðnir þrítugir.
EKKI BAD ASS Drengirnir í
Diktu eru afar ljúfir að sjá.
ORÐ: Atli Fannar Bjarkason
MYNDIR: Stefán Karlsson
„ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA
SVOLÍTIÐ SPES AÐ VERA
KANNSKI 25 ÁRA KARL-
MAÐUR MEÐ KYNFÆRA-
VÖRTUR OG KOMA Í
SKOÐUN OG ÞAR ER
KANNSKI SÖNGVARINN
Í UPPÁHALDSHLJÓM-
SVEITINNI HANS.“
OPIÐ: MÁN-FÖS 12-18 / LAU 10-16 / SUN 12-16
STENDUR TIL 13 . DESEMBER
Drífa ehf. - Suðurhrauni 12c - Garðabæ - Sími 555 7400 - www.icewear.is
hö
nn
un
: s
ki
ss
a
2.400,- 2.400,-
3.500,- 3.500,-
Tilvalin jólagjöf!
Dömu og herra loðfóðraðar rússkinnsvörur