Fréttablaðið - 27.11.2009, Qupperneq 64
27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
JIMI HENDRIX (1942-1970) FÆDD-
IST ÞENNAN DAG.
„Það er ég sem mun deyja
þegar tími minn kemur, svo
leyfið mér að lifa lífi mínu
eins og ég vil.“
Jimi Hendrix var bandarísk-
ur tónlistarmaður og einn
áhrifamesti gítarleikari rokk-
sögunnar. Hann lést aðeins
27 ára eftir að hafa tekið inn
svefnlyf með sterku áfengi.
Stofnfundur Ferða-
félags Íslands var
haldinn á þessum
degi árið 1927. Að-
alhvatamaður að
stofnun félagsins
var Sveinn Björns-
son, sem þá var
sendiherra í Kaupmannahöfn en
varð síðar forseti Íslands. Að hvatn-
ingu Sveins tók Björn Ólafsson stór-
kaupmaður að sér að stofna félag-
ið en Björn var mikill ferðamaður og
áhugamaður um óbyggðir Íslands.
Björn fékk til liðs við sig átta mæta
menn til að undirbúa stofnfund.
Stofnfélagar voru 63. Jón Þor-
láksson var kosinn forseti félagsins.
Hann var verkfræðingur að mennt,
hafði verið landsverk-
fræðingur og lengi
einn af áhrifamestu
stjórnmálamönnum
landsins, síðast for-
sætisráðherra.
Félagið er áhuga-
mannafélag og
eru félagsmenn þess um sjö þús-
und. Tilgangur þess er að stuðla að
ferðalögum um Ísland og greiða
fyrir þeim. Félagið hefur staðið fyrir
útgáfu árbókar og reist sæluhús víðs
vegar um landið.
Innan vébanda Ferðafélagsins
starfa tíu deildir víða um landið.
Þær eiga og reka skála og halda úti
ferðum allan ársins hring.
Heimild: www.fi.is
ÞETTA GERÐIST: 27. NÓVEMBER 1927
Ferðafélag Íslands stofnað
Þjóðræknisfélag Íslendinga var stofnað 1. desember 1939 í
húsi Eimskipafélags Íslands. Tuttugu árum áður hafði Þjóð-
ræknisfélag Íslendinga verið stofnað í Vesturheimi og þá í
kringum vesturferðir Íslendinga.
„Tilgangurinn hefur alla tíð verið að rækta menningar-
leg og félagsleg tengsl við Kanadamenn og Bandaríkjamenn
af íslenskum ættum,“ segir Ásta Sól Kristjánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Þjóðræknisfélags Íslendinga sem nú fagnar
sjötíu ára afmæli.
Félagið var virkt til að byrja með að sögn Ástu Sólar, enda
mikið um ferðir milli landanna. „Upp úr 1980 fór starfsemin
dvínandi og það var ekki fyrr en 9. október árið 1997, á degi
Leifs Eiríkssonar, sem félagið var endurreist,“ útskýrir hún.
Á svipuðum tíma var Vesturfarasetrið á Hofsósi stofnað og
árið 1999 var farið af stað með Snorraverkefnið, sem snýst
um ungmennaskipti milli landanna. „Snorraverkefnið er
mikilvægur þáttur í að viðhalda tengslunum,“ segir Ásta Sól
og bætir við að starf félagsins hafi verið blómlegt æ síðan.
Um 350 meðlimir eru í félaginu og á hverju ári fara hópar á
vegum Þjóðræknisfélagsins og Vesturheims sf. á Íslendinga-
slóðir. Í tilefni afmælisins verður afmælisdagskrá í Þjóð-
menningarhúsinu laugardaginn 28. nóvember frá klukkan
14. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flytur ávarp og
auk hans munu Gísli Pálsson prófessor og Atli Ásmundsson,
aðalræðismaður í Winnipeg, flytja erindi. Þá mun fulltrúi
frá Núna Now, sem er vorhátíð með íslenskum listamönnum
í Manitoba, segja frá hátíðinni.
„Svo hefur Sveinn Einarsson leikstjóri gert leikþátt um
Stephan G. Stephansson sem hann og Arnar Jónsson leik-
ari flytja,“ segir Ásta Sól. Eftir þingið verða myndasýningar
og kynningar frá Vesturfarasetrinu og Snorraverkefninu og
Jónas Þór kynnir ferðastarfsemi næsta árs. Auk alls þessa
kynna Elín Hirst og Ragnar Santos heimildarmynd sem þau
gerðu um fjölskyldu Elínar sem fór vestur um haf.
Á sjálfan afmælisdaginn, þriðjudaginn 1. desember, verða
afmælistónleikar í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 20. „Í
gegnum tíðina hafa fjölmargir tónlistarmenn farið á Íslend-
ingaslóðir til að spila. Nokkrir þeirra munu stíga á svið og
skemmta gestum,“ segir Ásta Sól en meðal þeirra sem koma
fram eru Björn Thoroddsen og Guitar Islancio, Álftagerðis-
bræður og Bagga lútur. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
solveig@frettabladid.is
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA: SJÖTÍU ÁRA
Eflir samskipti milli Íslands og
afkomenda landnema í vestri
timamot@frettabladid.is
FRAMKVÆMDASTJÓRI OG FORMAÐUR Ásta Sól Kristjánsdóttir og
Almar Grímsson standa fyrir afmælisdagskrá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu
við andlát og útför elskulegrar móður
minnar, tengdamóður og ömmu,
Millýjar Birnu
Haraldsdóttur
Ofanleiti 29 Reykjavík.
Líney Ólafsdóttir Karl Tómasson
Ólafur Karlsson Erla Hrund Halldórsdóttir
Birna Karlsdóttir
Hjartans þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Rúnars Guðmannssonar
Guð blessi ykkur öll.
Sjöfn H. Jóhannesdóttir
Jón Árni Rúnarsson
Jóhannes Rúnarsson Lilja Bjarnþórsdóttir
Rannveig Rúnarsdóttir Kári Tryggvason
Sigurður Rúnarsson Elín Hallsteinsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýju við andlát
og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Úlfars Haraldssonar
verkfræðings, Seiðakvísl 30, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Karitas, deildar 11E á
Landspítala og líknardeildar í Kópavogi fyrir kærleiks-
ríka umönnun.
Margrét Ríkarðsdóttir
Haraldur Úlfarsson Elín Helena Bjarnadóttir
Ríkarður Úlfarsson Berghildur Magnúsdóttir
Ásdís Úlfarsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
Helga Eiríkssonar
aðalbókara.
Sigrún Dúfa Helgadóttir Gunnar Karlsson
Eiríkur Helgason Þórunn Kristinsdóttir
Sigurjón Helgason Vilhelmína Haraldsdóttir
Ingólfur Helgason
Jón Helgason Sigrún Gréta Magnúsdóttir
Anna Sigríður Helgadóttir Ívar Gunnarsson
70 ára afmæli
Björgvin M.
Snorrason
er 70 ára í dag 27. nóvember Í tilefni
þess og nýlokins doktorsprófs - Ph.D.
í guðfræði og kirkjusögu, verður opið
hús sunnudaginn 29. nóv. á milli kl.
15 og 18 í Loftsalnum að Hólshrauni
3, Hafnarfi rði, fyrir þá sem vilja sam-
gleðjast honum á þessum timamótum.
75 ára afmæli
Sigurður
Albertsson
verður 75 ára 30. nóvember
nk. Í tilefni afmælisins mun hann taka
á móti ættingjum og vinum í Frímúrara-
húsinu v/ Bakkastíg 260 Reykjanesbæ
laugardaginn 28. nóvember nk. frá kl.
18.00 -21.00.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Tryggva Margrét
Eggertsdóttir
Garðavegi 14, Hvammstanga,
lést á Heilbrigðisstofnun Hvammstanga miðviku-
daginn 25. nóvember. Útförin verður auglýst síðar.
Erna Snorradóttir Marteinn Reimarsson
Jóhannes Snorrason Valdís Valbergsdóttir
Elín Snorradóttir Högni Jónsson
Eggert Snorrason Guðfinna Jónsdóttir
Hulda Snorradóttir Ragnar Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Kæri sambýlismaður, faðir, tengdafaðir,
sonur, bróðir og afi,
Jón Sturla Axelsson
lést mánudaginn 16. nóvember á sjúkrahúsinu í Lundi.
Útförin hefur þegar farið fram í Svíþjóð.
Marsela Torres
Ólafur Örn Jónsson
Gísli Már Jónsson
Geirmundur Hrafn Jónsson
Edda Björg Jónsdóttir
Guðrún Erna Jónsdóttir
Guðrún Þórdís Axelsdóttir
Einar Rúnar Axelsson
tengdabörn og barnabörn.
Hjartkær dóttir mín, systir, mágkona
og frænka,
Ragnhildur Fanney
Þorsteinsdóttir
sérkennari Skeggjastöðum Garði,
er látin. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
laugardaginn 28. nóv. og hefst athöfnin kl. 14. Blóm
og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Barnaheill eða Dýrahjálp
Íslands, dyrahjalp.is.
Hólmfríður S. Jakobsdóttir
Bergþóra S. Þorsteinsdóttir Jóhann Runólfsson
Jón Þorsteinsson
Þorsteinn J. Þorsteinsson Sigríður H. Þórðardóttir
Þyri E. Þorsteinsdóttir Karl Geirsson
Kristín Þorsteinsdóttir Pálmar Magnússon
Arna Þorsteinsdóttir Gunnlaugur Magnússon
Steini, Nonni, Palli, Lilý, Hólmfríður Hulda, Þórður,
Sigfríður Ólöf, Daníel, Hólmfríður, Jóhanna, Ingibjörg og
Matthías.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.