Fréttablaðið - 27.11.2009, Page 66
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
34 27. nóvember 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Og handhafi
gullnu
vöfflunnar í
ár er...!!! ELSA!!!! ÚPS
Nei, við getum
ekki gefið
Chigaco Town-
pizzur í æð
Ha? En
það eru
nú einu
sinni jól!
Hæ
pabbi
Hæ, Palli, Nei, bíddu, aðeins,
þú ert strákur
Og þú ert
semsagt bara
að prófa þetta
Nákvæm-
lega
Já, en
GUÐ
MINN
GÓÐUR
ÍHAA, ÍHAAA, ÍHAAA,
ÍHAAA, ÍHAAA
Hvað ertu
að gera,
Hannes
Ég er að gera
skrýtið hljóð
sem gerir
Sollu alveg
brjálaða
ÍHAA, ÍHAAA,
ÍHAAA, ÍHAAA,
ÍHAAA Farðu út, þú
ert að
gera mig
brjálaða
Hann er allavega
kominn með
áhugamál
Ekki ljúga að
mér, Herbert.
Þú varst með
þessari
sogfiskastelpu
aftur, er það
ekki?!
GUÐ
MINN
GÓÐUR
WWW.BREIK.IS/ISOLD
Þú gætir unniÐ EINTAK!
SendU SMS skeytiÐ
EST VBV á númeriÐ 1900
vinningar eru:
Ísöld 3 á dvd, aðar dvd myndir,
bíómiÐAR, GOS og margt fleira
Vinsælasta teiknimynd ársins
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum.199 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
Á DVD
og blu-ray
26. NÓVEMber!
9. hvervinnur!
Fyrir rúmri viku var dagur íslenskr-ar tungu og upphófst af því hin árlega
umræða um hnignun íslenskunnar. Á hverju
ári sekkur íslensk tunga spönn dýpra ofan
í kokið á okkur, ef marka má umræðuna.
Miðað við áhyggjukórinn, sem hefur kyrjað
svo lengi sem ég man eftir mér, ætti tungan
reyndar að vera löngu komin ofan í vélind-
að, búin að leysast upp í meltingarveginum
og spýtast út um rassgatið á okkur í kekkj-
óttum enskuslettum.
ÞEGAR ég skautaði yfir bloggsvellið var
ekki þverfótað fyrir sjálfskipuðum mál-
verndurum sem töldu upp allar ambögurnar
sem þeir heyrðu í fréttum og lásu í blöðun-
um; dýrkun við viðtengingarhátt, útskúf-
uð eignarföll og svívirt ypsílon. Það er auð-
velt að detta í þennan gír og jafnvel ágæt
skemmtun að sproksetja þá sem gera aula-
villur á borð við að skrifa „langþráð meiðsl“.
ÞETTA viðhorf getur aftur á móti keyrt
um þverbak; að benda á málvillur er orðið
að íþrótt sem gengur ekki út á velferð
íslenskunnar heldur að sýna fram á and-
lega yfirburði umvandarans gagnvart
málsóðanum. Einmitt í þessu viðhorfi
er fall íslenskunnar falið. Það er gott
og blessað að halda ambögum til
haga, benda á það sem betur má
fara og allt það. Gallinn er sá að
þeir sem taka að sér það hlut-
verk gera það oft af drýldnislegu yfirlæti,
þar sem umræðan snýst öðru fremur um
góða máltilfinningu þeirra sjálfra.
JÚ, ÞÁGUFALLSSÝKI er ljót og þeir sem
vinna með íslenskt mál, til dæmis fjölmiðla-
menn, verða að huga vel að atvinnutæki
sínu, halda því við og dengja svo það bíti. Ég
held því aftur á móti fram að margt sé vel
sagt og skrifað í íslenskum fjölmiðlum nú til
dags; í greininni starfar aragrúi fólks sem
hagnýtir sér litbrigði tungumálsins við dag-
leg störf og leggur mikla hugsun í að koma
máli sínu skýrt og hnitmiðað til skila.
EN ÞAR sem við erum svo upptekin af
hnignun tungunnar, einblínum við á hið nei-
kvæða og blásum það út; fjörfiskur breytist
í dauðakrampa. „Á íslensku má alltaf finna
svar,“ yrkir Þórarinn Eldjárn. Í íslenskri
dægurmálaumræðu er svo mikil áhersla
lögð á að höggva eftir röngu svörunum að
þau réttu fljúga oft fram hjá.
ÉG LEGG til að þeir sem eru uggandi yfir
stöðu íslenskunnar prófi eitt: Látið villurn-
ar sem vind um eyru þjóta í eina viku eða
svo en hlustið í staðinn eftir því sem vel er
gert. Ég held að það myndi koma ánægju-
lega á óvart. Og hafið í huga orð Þorsteins
frá Hamri: „Þú kaupir þér ekki nagla/ til
að krossfesta sálir –/ þú þarft einúngis/ að
hnykkja rétt á orðunum.“
Í naglabúðinni