Fréttablaðið - 27.11.2009, Page 73
FÖSTUDAGUR 27. nóvember 2009
Jónas Halldórsson, ant-
íksali í Hafnarfirði, gerði
merkilegan fund fyrir
stuttu þegar hann var að
ganga frá dánarbúi. Fund-
urinn var veggstytta með
dularfullri áletrun.
Antík- og listmunasalinn Jónas
Halldórsson gerði nýlega upp dán-
arbú þar sem hann fann meðal ann-
ars fallega veggstyttu af ljóshærðri
konu en aftan á styttunni mátti sjá
undarlega áletrun. Eftir nokkra
eftirgrennslan komst Jónas að því
að áletrunin var í raun ástarjátn-
ing. „Aftan á styttunni stendur á
ítölsku: „Ó, Maggí mín guðdóm-
lega“ og er það maður að nafni
Sergio sem ritar þetta. Auk þess
fann ég aðra áletrun sem var tölu-
stafurinn sautján ritaður í róm-
verskum tölum. Ég hef komist að
því að þetta þýddi að sautján ár
höfðu verið liðin frá uppgangi fas-
ismans á Ítalíu og ekki ólíklegt
að Sergio hafi verið háttsett-
ur innan fasistaflokksins.“
Aðspurður segir Jónas erf-
itt að segja til um hver
þessi guðdómlega Maggí
hafi verið, enda hafi hann
ekki fengið neinar upplýs-
ingar um eiganda búsins,
en útilokar ekki að hún hafi
verið ljóshærð eins og konan
á styttunni.
Jónas segir styttuna ekki
hafa verið það eina skrítna
sem hann hafi fundið í
þessu tiltekna dánarbúi því
hann hafi að auki fundið mikið
af fallegum sparikjólum frá 1920,
óopnaða kryddstauka sem voru um
hálfrar aldar gamlir og gömul ávís-
anahefti.
„Í mínu starfi er maður alltaf í
leit að fjársjóðum og ég hef fundið
ótrúlegustu hluti. Eitt sinn fann ég
til dæmis blóði drifinn sjóliða-
búning uppi á háalofti í húsi
einu í miðbænum,“ segir
Jónas og bætir við að ant-
íksalan hafi blómstrað
eftir að kreppan skall á.
„Antíksala var að leggj-
ast af í góðærinu, en nú er
fólk hætt að henda göml-
um munum auk þess sem
fólk vill nú hluti frá fortíð-
inni sem milda umhverfið.“
- sm
Ástarjátning
á veggstyttu
MAGGÍ HIN GUÐDÓMLEGA
Styttan var jólagjöf frá hinum
ítalska Sergio og er frá árinu
1938.
FJÁRSJÓÐSLEIT Jónas Halldórsson ant-
íksali fann forláta styttu í dánarbúi fyrir
stuttu. MYND/BJÖRGVIN