Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2009, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 08.12.2009, Qupperneq 39
ÞRIÐJUDAGUR 8. desember 2009 3 Ný rannsókn sýnir að um fjöru- tíu prósent bandarískra foreldra ræða ekki um kynlíf við börn sín fyrr en þau hafa þegar haft samfarir. Ræðan um blómin og býflugurnar er aldrei auðveld. Foreldrar hræð- ast að tala um kynlíf við börnin og börnin dauðskammast sín þegar umræðunni er beint að málefninu. Líklega er það ástæða þess að þess- um kynlífssamtölum foreldra og barna er oft skotið á frest og fara oft fram allt of seint. Í nýlegri rannsókn sem sagt er frá í vefriti tímaritsins Time kemur fram að yfir fjörutíu prósent ungl- inga sem tóku þátt í rannsókninni höfðu þegar haft samfarir þegar for- eldrarnir ræddu við þá um kynlíf, getnaðarvarnir og kynsjúkdóma. Þetta þykir bagalegt þar sem fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að unglingar sem hafa rætt við for- eldra sína um kynlíf eru líklegri til að stunda kynlíf seinna og stunda öruggara kynlíf þegar þar að kemur. Einnig hefur komið í ljós að þó að börn kvíði því að tala um kynlíf við foreldra sína langi þau flest að læra um kynlíf af þeim. Í rannsókninni, sem framkvæmd var við Kaliforníuháskóla, var rætt við 141 fjölskyldu þar sem börnin voru á aldrinum 13 til 17 ára. Þær fengu lista yfir 24 atriði sem sneru að kynlífi, kynsjúkdómum, líkams- breytingum og fleiru og áttu að svara því hvert af þessum atrið- um hefði verið rætt um í fjölskyld- unni og hvenær. Hver fjölskylda var athuguð fjórum sinnum, við upphaf rannsóknarinnar og þrem, sex og tólf mánuðum seinna. Ræða of seint um kynlíf við börnin Rætt var við 141 fjölskyldu í rannsókn um samræður foreldra og barna um kynlíf. Ef þú vilt ná varanleg- um árangri skaltu setja þér lítil, viðráðanleg og raunhæf markmið og hafa þau skrifleg. Þú ert mun líklegri til að ná markmiðum sem þú sérð fyrir endann á og það gefur þér aukið sjálfstraust og löngun til að setja þér ný markmið. 500 hollráð Reykingamenn sem kveikja sér í sígarettu nánast um leið og þeir vakna á morgnana hafa almennt meira nikótín í líkamanum en þeir sem bíða í hálftíma eða lengur. Gild- ir þá einu hversu margar sígarettur eru reyktar yfir daginn. Þetta eru niðurstöður könnunar sem fram- kvæmd var á vegum Penn State- háskólans í Bandaríkjunum og greint er frá á fréttavef BBC. Vísindamennirnir rannsökuðu magn efnisins cotitine, sem er niðurbrotsefni nikótíns og þykir gefa góða vísbendingu um hættuna á lungnakrabbameini, í yfir 250 heil- brigðum dagreykingamönnum. Í ljós kom að mun minna var af efn- inu hjá þeim sem biðu þar til eftir morgunmat með að fá sér sígarettu. Talsmaður enska lungnakrabba- meinsfélagsins Roy Castle, sem er virkt á sviði rannsókna sem tengjast áhrifum reykinga á heilsu fólks, fagnar rannsókninni. Hann segir þó að úrtakið sé það lítið að niðurstöð- unum verði að taka með fyrirvara. Hann hvetur til umfangsmeiri rann- sókna á þessu sviði. Best að bíða með að kveikja í rettu ÞEIR SEM KVEIKJA SÉR Í SÍGARETTU SNEMMA MORGUNS HAFA MEIRA NÍKÓTÍN Í LÍKAMANUM EN ÞEIR SEM REYKJA EFTIR MORGUNMAT. Betra er að bíða með að reykja fram yfir morgunmat. Gefðu góða jólagjöf sem veitir vellíðan. Þessi glæsilega gjöf fylgir öllum keyptum gjafakortum að upphæð 10.000 eða meira.* Gjafabréf *Á meðan birgðir endast HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS Oprah Winfrey haldarinn kominn! Verð 7.990 kr. telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g r a f í s k h ö n n u n Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi. Sérstök áhersla lögð á miðjuna – kvið og bak. Hentar öllum aldurshópum og líkamsgerðum. Þú finnur strax árangur eftir fyrstu æfinguna án þess að reyna of mikið á þig. Lokuð 9 vikna námskeið 2x í viku í 60 mínútur: l Þriðjudaga og fimmtudaga kl 6:15 og 7:20. l Nýr tími þriðjudaga og fimmtudaga kl 8:30. l Miðvikudaga og föstudaga kl 10:00, l Mánudaga og miðvikudaga kl 16:30. Verð kr. 19.900. Barnagæsla - Leikland JSB RopeYoga Staðurinn - Ræktin Velkomin í okkar hóp! Frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal Innritun hafin á janúarnámskeið! Sími 581 3730 telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g r a f í s k h ö n n u n 9 vikna námskeið 2x í viku. Ath aðeins 15 í hóp. Verð kr: 29.900. Kennari: Bára Magnúsdóttir. ü Vaxtarmótun ü Mýkt - liðleiki ü Styrkur - reisn ü Upphitun í tækjasal 20 mín ü MÓTUN, æfingakerfi 40 mín ü Hentar öllum aldursflokkum Miðvikudaga og föstudaga ü Kl 16:20 ü Kl 17:00 Þriðjudaga og fimmtudaga ü kl 8:30 ü kl 10:30 Barnagæsla - Leikland JSB Staðurinn - Ræktin Velkomin í okkar hóp! Mótun - Nýtt námskeið í boði! Æfingakerfi hannað af Báru Magnúsdóttur Frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal Innritun hafin á janúarnámskeið! Sími 581 3730
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.