Fréttablaðið - 10.12.2009, Side 70

Fréttablaðið - 10.12.2009, Side 70
50 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson > Í SPILARANUM Snorri Helgason - I‘m gonna put my name on your door The Go-Go Darkness - The Go-Go Darkness Ellen Kristjánsdóttir - Draumey Jóhann G. Jóhannsson - Á langri leið Fjallabræður - Fjallabræður SNORRI HELGASON FJALLABRÆÐUR > Plata vikunnar Bloodgroup - Dry Land Stórt stökk í þróunarferli Bloodgroup. Hljóðgervla- og trommuheilaknúið rosapopp nær hér áður óþekktum hæðum á Íslandi. Önnur af tveimur bestu íslensku plötum ársins. - Dr. Gunni Það er mikil gróska í tónlist víða í Afríku og útgáfa á afrískri tón- list á Vesturlöndum hefur verið mjög öflug síðustu ár. Annars vegar er um að ræða nýjar plötur með starfandi tónlistarmönn- um. Í þeim flokki hefur tónlist frá Malí verið áberandi og árið 2009 er engin undantekning hvað það varðar. Nokkrar af bestu plötum ársins koma þaðan. Fyrsta má nefna fjórðu plötu eyðimerkurgítar- sveitarinnar Tinariwen, Imidiwan: Compan- ions. Algjörlega frábær plata sem er á mörgum listum yfir bestu plöt- ur ársins, meðal ann- ars í fimmta sæti hjá Mojo. Af öðrum flottum Malíplötum frá 2009 má nefna nýjustu plötu Íslandsvinarins Oumou Sangare, Seya og plöt- una I Speak Fula með Bassekou Kouyate & Ngoni Ba. Loks verður að geta políó-sjúkling- anna og snillinganna í Staff Benda Bilili sem eru ekki frá Malí held- ur Kongó, en platan þeirra Tres Tres Fort er sannkallað eyrna- konfekt. Hinn flokkurinn í afrísku útgáfunni er endurútgáfa á tónlist frá sjöunda og áttunda áratugnum. Á þeim tíma voru miklar hræring- ar víða í Afríku, nýlendurnar voru margar nýbúnar að fá sjálfstæði og mikil gerjun í menningarlífinu. Afríska tónlistin hafði áhrif á bandaríska fönkið og vestrænir straumar lituðu afrísku tónlistina. Nokkur fyrirtæki eru öflug í útgáfu á tónlist frá þessum tíma og þau eiga það sameiginlegt að vera rekin af ástríðufullum áhuga- mönnum sem hafa eytt stórum hluta síðustu ára með hausinn ofan í afrískum kassettu- og vínilplötukössum. Soundway-útgáfan er ein þeirra. Hún er rekin af Miles Cleret og gefur bæði út tónlist frá Suður-Ameríku og Afríku þar á meðal mikið af nígerísku fönki og highlife. Nýjasta útgáfan er Ghana Special með tónlist frá 1968- 1981. Svo er það Analog Africa-útgáfan. Maðurinn á bak við hana heitir Samy Ben Redjeb. Hann hefur sérhæft sig í tónlist frá Benín undanfarið, gaf út safnplötuna Legends of Benin í mars og plötu með Orchestre Poly-Rythmo de Cotonou fyrir skemmstu. Frábær hljómsveit sem byrjaði sem skemmtisveit fyrir börn, en þróaðist út í eina af mögnuðustu afró-beat, fönk og voodoo-sveitum síns tíma. Upplýsingar og tóndæmi eru á http://analogafrica.blogspot.com/ Allt að gerast í Afríku FÖNK FRÁ BENÍN Orchestre Poly-Rythmo de Cotonou. Platan Milljón mismunandi manns með tónlist- armanninum Steve Sampling verður fáanleg á Gogoyoko frá og með morgundeginum. Platan er metnaðarfullur rappópus sem fjallar um dag í lífi ónefnds aðila, eiginlega fyrsta íslenska „conc- ept“-platan. Steve fékk íslenska rapplandsliðið – menn eins og Didda Fel, Mezzias MC, Dabba T og Steinar Fjeldsted – til að semja texta og flytja á íslensku á plötunni. Planið er svo að koma verk- inu út á CD og vínylplötu eftir kannski einn, tvo mánuði. Upphaflega stóð til að platan yrði höfð frítt á síðunni Coxbutter.com en frá því var horfið. Sú síða er hins vegar glæsileg veita fyrir íslenskt gæðarapp og þar liggja ókeypis plötur í hrönnum. Þar á meðal eru plöturnar Lögmál hafsins með hinum dularfulla Vald Wegan, Ljósvaki EP með Ljósvaka og Of góður dagur til að borga reikninga með 7berg. - drg Milljón mismunandi manns STEVE SAMPLING Gefur út metnaðarfullan rappópus. Áramótin nálgast svo hver sem vettlingi getur valdið velur nú plötur ársins. Margir marktækir hafa kveðið upp sinn dóm. Amer- íska indí-rokkblaðið Spin segir að Merri- weather Post Pavilion með tilraunasveitinni Animal Collective sé besta plata ársins, en andlegum bróður Spin í Bretlandi, vikublað- inu NME, finnst platan Primary Colours með The Horrors best. Platan Veckatimest með Grizzly Bear er hins vegar best sam- kvæmt hlustendum National Public Radio í Ameríku. Breska gáfumannarokkbandið Wild Beasts er að gera það gott með sinni annarri plötu, Two Dancers. Netmiðillinn Muso‘s Guide segir að platan sé besta plata ársins og því mati er annar netmiðill, Gig- wise, sammála. Fjölmennt á toppnum VILLIDÝR Önnur plata breska bandsins Wild Beasts skorar víða hátt. Easy Music for Difficult People er þriðja stúdíóplata Kimono. Lögin voru að mestu spiluð beint inn. Með- limirnir – Alex MacNeil, Gylfi Blöndal og Kjartan Bragi Bjarnason – kíktu á Dr. Gunna. Sé hlustað á glimrandi gott gítar- rokkið á nýju plötu Kimono finnst manni það minna á eitthvað, en maður kemur bara ekki alveg fingri á hvað það er. Það er lítil hjálp í strákunum. „Við hlustum á mjög mismun- andi tónlist svo ég veit eiginlega ekki hvaðan músíkin okkar kemur,“ segir Gylfa. „Ég hef verið að hlusta á Lynyrd Skynyrd og Fleetwood Mac.“ „Ég hef verið að hlusta mikið á popp eins og Phoenix upp á síðkast- ið,“ segir trommarinn Kjartan. „Hjá mér er það aðallega einhver seventísmúsík,“ segir Alex. „Kraut- rokk og T-Rex og stöff.“ Þrír á eyðieyju Þetta er fyrsta plata Kimono sem tríós því bassaleikarinn Dóri Hall- dórs er hættur. „Hann hætti nú bara þegar við vorum á byrjunarreit með þessa plötu. Við reyndum að fá aðra bassaleikara en fundum svo út að besta leiðin væri að Gylfi færi að spila á barítón-gítar [gítar með þykkri strengjum en hefðbundinn gítar]. Þannig gátum við haldið inni samspili tveggja gítara og þurftum ekki að draga grunlausar sálir inn í hópinn,“ segir Alex. „Okkur er umhugað um það hvernig sambandið er í bandinu. Svo virkar líka lýðræðið mjög vel þegar það eru bara þrír,“ segir Gylfi. „Einum finnst eitt, öðrum finnst annað, og þá er það sá þriðji sem ræður,“ segir Kjartan. „Og það er yfirleitt ég svo þetta er mjög gott kerfi fyrir mig!“ Hvar er þessi auðvelda tónlist sem titill plötunnar vitnar í? „Mér finnst ég alltaf vera að semja popp,“ segir Alex. „Ég hef oft rætt þetta við Curver og honum finnst hann alltaf vera að búa til popp líka.“ „Ég held við höfum alltaf viljað vera að búa til popp en samt aldrei alveg detta fram af brúninni,“ segir Gylfi. „Við erum mjög meðvitaðir þegar við erum að semja. Stundum kemur eitthvað og við dæsum: Æ, þetta er nú einum of 95,7-legt. Og þá snúum við við og rétt sleppum.“ En væri það ekki áskorun: Að komast á plei-listann hjá FM95,7? „Við þokumst allavega nær og nær, eða þannig líður okkur stund- um,“ segir Alex. „Oft er kannski eitt hljóðfæri að spila eitthvað sem gæti gengið á 95,7 en þá bjarga hin tvö hljóðfærin mál- unum. Við erum eins og þrír á eyði- eyju. Þegar einn okkar er að klikk- ast verða hinir tveir að reyna að bjarga honum!“ segir Gylfi. Fúl gamalmenni Það eru þrjár stúdíóplötur komn- ar frá bandinu en það er eiginlega í sömu sporunum og þegar það byrj- aði. Finnst ykkur ekki kominn tími til að setja stefnuna „hærra“, eða að minnsta kosti eitthvað annað? Kim- ono í Eurovision? Þessi tillaga fær fádæma lélegar viðtökur. „Okkar markmið er nú eig- inlega bara að byggja upp katalók. Okkur finnst bara gaman að búa til plötur,“ segir Alex. „Já, við erum ægilega sjálfmiðað band. Það sem við gerum gerum við bara fyrir okkur sjálfa,“ staðfestir Gylfi. „Ú je!“ segir Alex. Og er alltaf jafn gaman í æfinga- húsnæðinu? Er ekki fullorðins-stöff sem þið þurfið að sinna? Konur og börn? „Jú jú, Alex á eina tveggja ára, það er eitt á leiðinni hjá Kjartani, en ég er ófrjór. Nei grín, ég er bara ekkert að flýta mér,“ segir Gylfi. „Það er lítið mál að setja til hlið- ar þrjá tíma nokkrum sinnum í viku fyrir eitthvað sem við höfum jafn gaman af og þessu,“ segir Alex. „Maður finnur fyrir því þegar við æfum ekki í einhvern tíma. Maður verður fúll og leiðinlegur. Konurnar hvetja okkur þá eiginlega bara til að fara að æfa aftur,“ segir Kjartan. „Þetta er meðferðarmúsík fyrir fúl gamalmenni!“ segir Alex og hinir kinka glottandi kolli. Kimonostrákarnir ætla að geyma útgáfugigg fram yfir áramót, en það má sjá þetta þétta og skemmtilega rokkband á Paddy‘s í Keflavík nú á föstudagskvöldið og svo á Sódómu á laugardagskvöldið. Þokast nær og nær FM95,7 MEÐFERÐARMÚSÍK Kimono. Alex, Kjartan og Gylfi – stjörnur framtíðarinnar á FM95,7! FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.