Fréttablaðið - 10.12.2009, Page 72

Fréttablaðið - 10.12.2009, Page 72
52 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR bio@frettabladid.is > SANDLER OG ANISTON Adam Sandler verður seint sak- aður um leti og nú heyrast frétt- ir þess efnis að hann sé að leggja drög að gamanmynd með Jennifer Aniston. Sam- kvæmt fyrstu fregnum eiga Sandler og Aniston að ganga í hjónaband til að gabba hið opinbera. Aðdáendur kvikmynda frá draumaverksmiðj- unni í Hollywood eru fyrir löngu orðnir vanir því að endurvinnsla er lykilorð hjá stóru kvikmyndaverunum. Ef eitthvað skilar pen- ingum aftur í kassann er gullkálfinum síður en svo slátrað heldur er hann alinn á öllu því besta þar til hann springur úr ofáti. Ef svo má að orði komast. Væntanlega þarf því ekki að koma neinum á óvart að í undirbúningi skuli vera Spider Man 4. Sú þriðja olli reynd- ar töluverðum vonbrigðum hjá gagnrýn- endum en aðsóknin var prýðileg. Og til þess er horft í Hollywood. Samkvæmt frétt- um vestanhafs standa nú yfir viðræður við John Malkovich um að hann leiki vonda karl- inn Vulture. Slíkt væri mikill happafengur fyrir myndaflokkinn því fáir eru jafn góðir að leika illmenni og Malkovich. Þá er víst einnig orðrómur á kreiki um að Anne Hathaway leiki Feliciu Hardy en samkvæmt myndasögu- bókunum breytist hún í Svörtu læðuna. Sannarlega spennandi. Hin framhaldsmyndin sem nú er sögð vera í bígerð kemur hins vegar ögn meira á óvart, því samkvæmt Los Angeles Times er Josh Brolin nú orðaður við Men in Black 3. Mynd númer tvö var afleit en nú á að horfa aftur til fyrstu myndarinnar og gera alvöru geimveruhasarg- rín. Will Smith er að sjálfsögðu í aðalhlutverkinu en vonandi fær Brolin að njóta sín eftir stórkostlega frammistöðu í No Country for Old Men, W. og American Gangster. Framhaldsmyndir gera sig líklegar Í FRAMHALDSMYNDIRNAR John Malkovich og Josh Brolin eru að íhuga tilboð um að leika í framhaldsmyndum. Leikstjóri Happy Feet, vinsælu teiknimynd- arinnar um hina dansandi mörgæs Mumble, er að undirbúa kvikmynd númer tvö. En ekki hvað. Myndin sló í gegn beggja vegna Atl- antshafsins. Kvikmyndavefur Empire greindi síðan frá því í gær að samningar hefðu tekist við bæði Elijah Wood og Robin Williams um að þeir endurtækju radd-rullur sínar. Wood tal- aði fyrir Mumble en Williams fór, að sjálf- sögðu, á kostum sem Ramon. Hollywood Reporter var fyrst með fréttirnar en þar kemur ekki fram hver söguþráðurinn verður. Hins vegar er vitað að þeir Wood og Williams verða í Ástralíu einhvern tímann snemma á næsta ári til að taka upp raddirnar sínar ef ein- hver skyldi hafa áhuga á því. Wood talar fyrir dans- andi mörgæs Bandaríski leikarinn Robin Williams hefur á undan- förnum þremur áratugum heillað áhorfendur með ein- stökum leik. Honum hefur tekist það sem fáir grínistar hafa getað leikið eftir: að sameina dramatík og húmor í eina sæng. Williams leikur aðalhlutverkið í Disney-kvikmyndinni Old Dogs á móti John Travolta sem frumsýnd verður í kvikmyndahúsum borg- arinnar um helgina. Williams fær nú sennilega enga Óskarstilnefn- ingu fyrir leik sinn eða húrrahróp frá gagnrýnendum enda þykir Old Dogs ekkert sérstaklega merki- legur pappír ef marka má dóma á kvikmyndavefsíðunni imdb.com. Myndin fjallar um tvo viðskipta- félaga sem óvænt þurfa að taka að sér tvíbura með ófyrirséðum afleiðingum. Robin Williams er eiginlega Íslendingavinur. Því hann styrkir íslenska leikarann Þorvald Davíð Kristjánsson til náms í Julliard- háskólanum í New York. Þar lærði Williams fræði sín ásamt Ofur- menninu Christopher Reeve. Þeir tveir héldu ákaflega traustri og góðri vináttu allt til dauðadags Reeves. Ferill Williams hófst fyrir alvöru í sjónvarpsþáttunum Happy Days. Sagan segir að framleiðandi þáttanna, Garry Marshall, hafi beðið Williams um að setjast niður enda hafði hann verið á iði alla áheyrendaprufuna. Williams stóð á haus ofan á stólnum og Mars- hall réð hann á staðnum. „Hann var eina geimveran sem mætti í inntökuprófið,“ sagði Marshall seinna meir um þessa stund með Williams. Ferillinn á hvíta tjaldinu hófst með titilhlutverkinu í Stjána bláa en hann vakti fyrst athygli fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni The World According to Garp sem byggð er á samnefndri skáldsögu Johns Irving. Williams fékk þó ekki Óskarstilnefningu eins og meðleik- arar hans, John Lithgow og Glenn Close, og þurfti að bíða í fimm ár eftir henni. Williams sló þá í gegn með stórkostlegri frammistöðu í Good Morning Vietnam. Túlkun hans á útvarpsmanninum Adri- an Cronauer var stórfengleg og þar sýndi Williams hvers hann er megnugur, að ná því í nánast einni og sömu tökunni að fá áhorf- endur til að veltast um af hlátri en um leið fyllast samúð og sam- kennd. Williams er nefnilega ekk- ert síður góður þegar hann tekur að sér dramatísk hlutverk í kvik- myndum á borð við Fisher King og Good Will Hunting en þegar hann bregður sér í hlutverk trúðsins. Einkalíf Williams hefur síður en svo verið dans á rósum, hann er tvíkvæntur og glímdi við kókaín- fíkn á níunda áratug síðustu aldar. „Kókaín er leið Guðs til að segja þér að þú sért að græða of mikið af peningum,“ sagði Williams eitt sinn. Hann skráði sig í meðferð við misnotkun áfengis fyrir þremur árum og hefur haldið sér frá flösk- unni síðan þá. fgg@frettabladid.is Meistari gamanleiksins The World According To Garp (1982) Good Morning Vietnam (1987) Dead Poets Society (1989) The Fisher King (1991) Aladdin (1992) GAMLAR OG GÓÐAR WILLIAMS-MYNDIR Hún er fjölbreytt flóran sem ratar í kvikmyndahús borgarinnar um þessa helgina. Fyrst ber að nefna heimildarmyndina Anvil sem fjallar um samnefnda rokkhljómsveit frá Kanada. Þrátt fyrir að hún hafi haft áhrif á hljómsveitir á borð við Metallicu, Slayer og Anthrax þá hefur henni sjálfri aldrei tekist að slá almennilega í gegn. Heimildarmyndin fjallar um síð- ustu tilraun þeirra til að „meikaða“ í Evrópu. Næst ber að nefna The Bad Lieutenant: Port of Call – New Orleans. Myndin er sögð vera endurgerð frægrar kvikmyndar Abels Ferrara, The Bad Lieut- enant, þar sem Harvey Keitel fór á kostum í hlut- verki The Lieutenant. Að þessu sinni er það Nichol- as Cage sem leikur gjörspilltan lögreglumann í New Orleans en hann lendir í mikilli klemmu þegar hann verður uppvís að því að stela kókaíni á morðstað. Með önnur hlutverk fara þau Eva Mendes og Val Kilmer en myndin fær prýðilega dóma á imdb.com. Leikstjóri er hinn sérvitri Werner Herzog. Þriðja myndin sem verður frumsýnd heitir Sorority Row. Söguþráðurinn er kunnuglegur: hópur háskóla- stelpna ákveður að reyna að fela dauða einnar úr systrafélaginu þeirra eftir að ósmekklegur hrekk- ur misheppnast. Þegar dularfull morð hefjast ári seinna uppgötva stelpurnar að morðinginn veit hvað þær gerðu. Rumer Willis, dóttir Bruce Willis og Demi Moore, leikur aðalhlutverk- ið í myndinni. Síðast ber að nefna að sjötta myndin í Saw-flokkn- um verður frumsýnd um helgina. Alvörurokk og hryllingur Allt útlit er fyrir að fleiri gamlir vinir úr Hringa- dróttinssögu-bálkinum snúi aftur í kvikmynd- inni Hobbitanum sem byggð er á samnefndri bók J.R.R. Tolkien. Peter Jackson upplýsti í samtali við MTV- sjónvarpsstöðina nýverið að viðræð- ur stæðu yfir við Hugo Weaving og Cate Blanchett um að bregða sér aftur í hlutverk álfakóngsins Elrond og álfadrottn- ingarinnar Galadriel. Eins og flestir ættu að vita er Hobbitinn forleikurinn að Hringa- drottinssögu. Guillermo del Toro leikstýrir en Jack- son sér um framleiðslu og kemur að handritsgerðinni. Þegar hefur verið greint frá því að Ian McKellen ætli að endurtaka leik sinn sem Gandálfur og að Andy Serkis verði enn og aftur Gollrir. Sam- kvæmt imdb.com er ráðgert að mynd- in verði frumsýnd 2011. Gamlir snúa aftur SPILLTUR Nicholas Cage og Eva Mendes leika í kvikmyndinni The Bad Lieutenant: Port of Call – New Orleans. EINN AF ÞEIM BESTU Samkvæmt Entertainment Weekly er Williams einn af 25 fyndnustu leikurum allra tíma. Hæfileikar hans eru þó ekkert síðri á dramatíska sviðinu þar sem ferill hans hefur náð hæstu hæðum. Þorvaldur Davíð Kristjáns- son er einn af þeim sem hafa notið góðs af rómaðri góðmennsku leik- arans en Williams styrkir íslenska leikarann til náms í Julliard-skólan- um í New York. SPENNANDI Peter Jackson hefur upp- lýst að gamlir vinir úr Hringadrottins- sögu gætu snúið aftur í The Hobbit. TALAR FYRIR MÖRGÆS Elijah Wood tala fyrir mörgæsina Mumble í Happy Feet 2.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.