Fréttablaðið - 10.12.2009, Page 94

Fréttablaðið - 10.12.2009, Page 94
74 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR FÓTBOLTI Antonio Cassano lenti upp á kant við reiða stuðnings- menn félagsins sem fjölmenntu á æfingasvæði liðsins eftir að það steinlá gegn AC Milan um helgina. Stuðningsmennirnir voru afar reiðir og létu Antonio Cassano og félaga fá það óþvegið. Köll þeirra reyndu á þolrif leik- manna sem allir héldu út nema Cassano. Honum ofbauð, öskraði á áhorfendurna og gaf þeim putt- ann áður en hann rauk inn í klefa til þess að róa sig niður. Framkvæmdastjóri Sampdor- ia brá sér í gervi Georgs Bjarn- freðarsonar er hann útskýrði atvikið. Sagði að málið væri einn stór misskilningur. Cassano hefði misheyrst hvað einn áhorfandi sagði og hefði þess vegna brugð- ist illa við. Verður áhugavert að sjá hvern- ig stuðningsmenn félagsins taka í þessa nýjustu uppákomu fram- herjans en það líður varla vika án þess að hann sé ekki í blöðunum út af vafasamri hegðun utan vall- ar. - hbg Antonio Cassano: Reifst við stuðningsmenn FÓTBOLTI Það kom verulega á óvart að Slóvenía skyldi slá Rússa út í umspilinu fyrir HM. Ef upp- lýsingar rússneskrar sjónvarps- stöðvar eru réttar þá er ástæðan drykkjuskapur leikmanna liðs- ins en sjónvarpsstöðin heldur því fram að leikmenn hafi verið vel við skál langt fram undir morgun daginn fyrir leik. Rússneska knattspyrnusam- bandið lítur þessar ásakanir afar alvarlegum augum og hefur beðið stöðina um upplýsingar vegna málsins svo hægt sé að kanna sannleiksgildi fréttarinnar. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er með einn besta leikmann rúss- neska liðsins, Andrey Arshavin, í sínu liði og hann trúir ekki slíkri hegðun upp á sinn mann. „Hann er alvörugefinn leik- maður og ég hef aldrei efast um hann. Ég trúi ekki orði af þessum fréttaflutningi. Miðað við hvern- ig hann undirbýr sig fyrir leiki er hann öðrum leikmönnum til fyr- irmyndar,” sagði Wenger. - hbg Ástæða taps Rússa fundin? Drukknir dag- inn fyrir leik? DATT HANN Í ´ÐA? Andrey Arshavin á að hafa verið við skál kvöldið fyrir Slóvena- leikinn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Mörgum knattspyrnu- áhugamanninum brá í brún í gær- morgun þegar Sol Campbell var orðaður við Man. Utd. Hugmynd- in er kannski ekki svo vitlaus enda eru nánast allir varnarmenn Man. Utd meiddir. Á móti kemur að Campbell gæti ekki spilað með United fyrr en eftir áramót þó svo að hann sé samningslaus. Þá verða líklega flestir af meiddu mönnunum komn- ir til baka og því lítið að gera fyrir hinn 35 ára gamla Campbell. Campbell hætti eins og kunn- ugt er hjá Notts County eftir afar skamma viðdvöl. Hann hefur síðan haldið sér í formi með því að æfa hjá Arsenal með það fyrir augum að fá samning í janúar. Hann viðurkenndi í viðtölum í gær að vera spenntur fyrir United en sagðist þó ekkert hafa heyrt frá forráðamönnum félagsins. „Það hefur ekki komið nein formleg fyrirspurn frá Man. Utd en þetta hefur aðeins verið í loft- inu. Að sjálfsögðu væri það frá- bært fyrir mig að komast til félags eins og Man. Utd,“ sagði Campbell við fréttastofu ESPN. „Ég verð bara að bíða og sjá hvort það komi símtal í gegnum réttar leiðir. Augljóslega myndi ég stökkva á tækifærið en ég er samt ekki að gera mér miklar vonir um að þetta gerist. Ég mun bara halda áfram að æfa með Arsenal. Ef mér stendur til boða að æfa með Manchester United þá mun ég að sjálfsögðu gera það,“ sagði hinn reynslumikli Campbell. Lítið hefur heyrst úr herbúðum Manchester United vegna málsins en það yrði óneitanlega áhugavert ef gamli Arsenal-maðurinn myndi spila með United. - hbg Óvæntar fréttir þegar Sol Campbell var orðaður við Manchester United: Frábært væri að fara til United LÍTIÐ AÐ GERA Campbell hefur lítið gert síðustu mánuði. Hann brá sér þó á NBA-leik í Chicago þar sem hann hitti landa sinn, Luol Deng, sem spilar með Bulls. NORDICPHOTOS/GETTY
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.