Fréttablaðið - 10.12.2009, Page 96

Fréttablaðið - 10.12.2009, Page 96
76 10. desember 2009 FIMMTUDAGUR FÓTBOLTI Það var ekki að sjá á Portúgalanum Cristiano Ronaldo að hann hefði verið meiddur í tvo mánuði þegar Real Madrid sótti Marseille heim í Meistaradeild- inni. Ronaldo skoraði tvö mörk í leiknum og það fyrra úr hreint út sagt stórkostlegri aukaspyrnu. Hann var svo góður að Zinedine Zidane, fyrrum leikmaður Real, kallaði Ronaldo einstakan eftir leikinn. „Ég er glaður að hafa skor- að sem og að við unnum riðilinn okkar. Þetta var frábær leikur og ég verð að hrósa liðinu okkar sem spilaði frábæran fótbolta,“ sagði Ronaldo hógvær en hann segist enn eiga nokkuð í land með að ná fullum styrk. „Ég er ekki alveg orðinn 100 prósent góður. Ég get gert meira og líkamlega á ég nokkuð í land. Þetta er samt allt á réttri leið og ég hef unnið vel með sjúkraþjálf- urum og læknum síðustu vikur,“ sagði Ronaldo. Ronaldo verður ekki með Real Madrid um helgina gegn Valenc- ia þar sem hann fékk rautt spjald fyrir að sparka í andstæðing í leik Real um síðustu helgi. - hbg Cristiano Ronaldo: Ekki orðinn 100 prósent góður CRISTIANO RONALDO Sýndi ótrúleg tilþrif gegn Marseille í Frakklandi. NORDIC PHOTOS/AFP HANDBOLTI Það vakti nokkra athygli síðasta sumar þegar Ragnar Snær Njálsson yfirgaf herbúðir HK til þess að spila með A.O. Dimou Thermaikou í Grikklandi. Honum stóð til boða að fara annað en ákvað að kýla á tilboðið í Grikklandi þó svo að hann vissi ekkert hvað hann væri að fara út í. „Ég er verulega ánægður með dvölina hérna. Þetta er búið að vera vonum framar og þá sérstak- lega handboltinn. Liðið er sterk- ara en ég bjóst við og deildin er það líka. Ég vissi ekkert við hverju væri að búast og hélt kannski að ég hefði gert vitleysu með því að hafna hinum tilboðunum,“ segir Ragnar Snær. Ætlast var til þess af liðinu fyrir mót að það berðist um eitt efstu þriggja sætanna. Gengi liðsins var gott í upphafi en nokkuð hefur hallað undan fæti í síðustu leikjum. Dimou hefur nú tapað fjórum leikj- um í röð og er komið í neðri hluta deildarinnar. Ekki er þó við Ragn- ar að sakast því hann hefur leikið mjög vel. „Það hefur verið mikill stíg- andi í mínum leik og ég er að læra meira og meira inn á sjálfan mig á hverjum degi. Ég er búinn að skora svona 7-10 mörk í flestum leikjum. Svo skoraði ég 14 mörk í 15 skot- um í Evrópuleik um daginn,“ segir Ragnar en þökk sé hans framlagi er Dimou komið í sextán liða úrslit í Áskorendakeppni Evrópu. Ragnar segir að fín stemning sé á leikjunum í Grikklandi þó svo að áhorfendur séu kannski ekki alltaf mjög margir. Þeir sem mæti láti í sér heyra. „Við erum með sterkan kjarna af stuðningsmönnum. Það eru svona menn sem deyja fyrir klúbb- inn. Á laugardaginn mætum við nágrannaliðinu en liðin hatast. Það er búist við algjörri geðveiki á þeim leik enda er von á fótbolta- bullunum líka sem mæta ekki oft á handboltaleiki. Úr verður mergj- uð stemning,“ segir Ragnar Snær, sem kann afar vel við líf atvinnu- mannsins. „Venjulegur dagur hjá mér er að vakna um 10 og fara í ræktina. Svo er það hádegismatur með liðinu áður en maður fer kannski á strönd- ina í einn kaffibolla og kíkir á netið í leiðinni. Á kvöldin er maður síðan bara í Playstation eða glamrar á gít- arinn þegar æfing er búin.“ Ragnar býr í 50 þúsund manna strandbæ rétt hjá Þessalóniku. Bærinn er mikill sumarleyfisstað- ur og því er rólegt í bænum yfir vetrartímann. „Ég er aðeins búinn að ná lit en samt ekkert miðað við hina súkk- ulaðistrákana. Þeir eru svakalegir. Ég er enn bara hvíti víkingurinn,“ segir Ragnar hlæjandi. Hann var nýkominn af húðflúr- stofu þegar blaðamaður Frétta- blaðsins náði í hann. Var það í fyrsta skipti sem Ragnar fær sér húðflúr en hann sagði það óumflýj- anlegt. „Fylgir það ekki atvinnumennsk- unni að fá sér húðflúr?“ segir Ragn- ar og hlær við. „Ég fékk mér meira að segja tvö húðflúr. Það dugar ekkert minna. Ég fékk vin minn, sem er graf- ískur hönnuður, til þess að hanna fimm stjörnur sem liggja saman innan á úlnliðnum. Svo er ég með The sky is the limit innan á vinstri byssunni. Stjörnurnar þýða margt en það er ákveðinn stigi sem ég sé fyrir mér. Ég er að klífa þennan stiga. Er að klára fyrstu stjörn- una og næsta stjarna er stærri. Sú síðasta er síðan stærst og þangað ætla ég mér að ná.“ henry@frettabladid.is Er bara hvíti víkingurinn við hliðina á súkkulaðistrákunum Handknattleiksmaðurinn Ragnar Snær Njálsson hélt út í óvissuna í sumar er hann gekk til liðs við gríska félagið A.O. Dimou Thermaikou. Dvölin í Grikklandi hefur komið Ragnari skemmtilega á óvart. Hann spil- ar vel sjálfur og nýtur lífsins í sólinni til hins ítrasta. Nú síðast fékk hann sér tvö húðflúr. HÚFLÚRIN Ragnar fékk sér tvö húðflúr í vikunni. MYND/ÚR EINKASAFNI Á VÍTALÍNUNNI Ragnar hefur verið iðinn við markaskorun. MYND/ÚR EINKASAFNI
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.