Fréttablaðið - 19.12.2009, Page 68
6 matur
Ég fékk upp-skriftina upphaflega
úr einhverjum
pésa sem var
sendur í hús fyrir
jólin,“ segir Mar-
grét Kjartansdóttir, sem varð
strax hrifin af hugmyndinni um
eina stóra söru í stað þeirra litlu
sem mikið umstang er að gera.
„Ég gerði tertuna strax og hætti
alveg að búa til litlu sörurnar sem
ég hafði áður gert á hverju ári,“
segir hún og bætir við að ólíkt
þægilegra og skemmtilegra sé að
búa til stóru söruna.
Tertan er langt frá því að vera
hvunndagsleg og býr Margrét
hana til við hátíðleg tækifæri á
við fermingarveislur, brúðkaup og
fjölskylduveislur. „Ég hef stundum
bakað hana fyrir sjálfa mig en þá
set ég aðeins á einn botn og gef
hinn vinkonu minni sem á afmæli
milli jóla og nýárs,“ segir hún.
Margrét hefur bakað mikið í
gegnum tíðina en gerir ekki jafn
mikið af því þessa dagana. „Það
var alltaf bakað á fimmtudögum á
mínu æskuheimili á Ísafirði enda
þurfti að laga margar máltíðir á
dag. Það var morgunmatur, tíu-
kaffi, hádegismatur, hálffjögur-
kaffi, kvöldmatur og tíukaffi
um kvöldið,“ segir hún og hlær.
„Þegar maður fór að læra mat-
reiðslu í kjallaranum í húsmæðra-
skólanum var maður fenginn til
að hjálpa til við baksturinn,“ segir
hún. En hvað var bakað? „Við bök-
uðum jólakökur, brúnkökur, vínar-
brauð, snúða og ýmislegt annað.
Það varð líka alltaf að vera
til kaffibrauð ef gesti bar
að garði.“ - sg
Síðustu ár hefur fólk í síauknum mæli verið duglegt
við að finna upp á einhverju heimagerðu til að gefa
í jólagjafir og sýna sumir ótrúlega hugmyndaauðgi
í þeim efnum. Þar á meðal er vinsælt að gefa alls
kyns heimagert góðgæti, svo sem konfekt, rauðkál
og fleira í þeim dúr. Önnur og ekki síðri hugmynd
er svo að gefa hreinlega uppskrift að einhverju lost-
æti, hugsanlega í einfaldari kantinum, sem hægt er
að útbúa um jólin og láta svo hráefnin fylgja með í
fallegum krukkum.
FYRIRTAKS GJAFAHUGMYND
Sykursæt stór sara
Jólalegt er um að litast á heimili Margrétar og stóra sara setur punktinn yfir i-ið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BOTNAR
6 eggjahvítur
400 g flórsykur
400 g möndlur (heilar með
hýði)
Þeytið hvítur og sykur vel stíft.
Blandið möluðum möndlum
saman við með sleikju. Bakið
í 2 botnum við 150° í 1 klst.
Kælt.
KREM
2 1/4 dl sykur
1 1/2 dl kaffi (flestir nota
vatn en kaffi gefur meira
bragð)
6 eggjarauður
390 g ósaltað smjör (við
stofuhita)
2 1/2 msk. kakóduft
Sjóðið saman sykur og kaffi
(vatn) þar til þykknar. Þeytið
eggjarauður vel og hellið syk-
urleginum saman við í mjórri
bunu. Þeytið vel og kælið
aðeins. Hrærið linu smjörinu
saman við smátt og smátt.
Síðan er kakó hrært í. Smyrjið
hluta af kreminu milli botnanna
og afganginum ofan á og á
hliðarnar. Kælið vel.
HJÚPUR
250 g suðusúkkulaði saxað
3/4 bolli rjómi
3 msk síróp
Hitið rjóma og síróp að suðu
og hellið yfir súkkulaðið. Hellið
hjúpnum yfir kökuna. Kælið.
Einnig er hægt að gera tvær
einfaldar kökur. Mjög góð kaka
til að eiga í frysti.
STÓRA SARA
E
TIL HÁTÍÐABRIGÐA
Á æskuheimili Margrétar Kjartansdóttur var bakað á hverjum fimmtudegi. Þær
kökur voru þó ólíkt hversdagslegri en saran sem hún bakar við hátíðleg tækifæri.
Nammi
namm!