Fréttablaðið - 19.12.2009, Side 91

Fréttablaðið - 19.12.2009, Side 91
matur 13 Trönuberjasósa er ein af ein- földustu sósum sem hægt er að gera og passar sérstak- lega vel með flestu kjöti – og ekki er verra að hafa jafn- vel eina tegund af rjómasósu með. Þessi uppskrift er sér- staklega þægileg: 1 bolli sykur 1 bolli vatn 4 bollar fersk eða frosin trönuber Við þennan grunn getur svo fólk bætt út í því sem það langar til. Má þar leggja til rúsínur, pekanhnetur, bláber, kanil og múskat. Byrjið á því að þvo berin. Hitið þarnæst vatnið og sykur inn að suðu og hrærið vel í á meðan. Setjið berin út í og látið þau malla í tíu mínútur. Þegar þessu er lokið má bæta við því aukahráefni sem mann lystir. Látið sósuna kólna við stofu- hita og þegar hún hefur náð stofuhita skal hún færð í ísskápinn. Sósan þykknar því meira sem hún kólnar. - jma TRÖNUBERJA- SÓSA MEÐ FUGLAKJÖTI Eggjapúns, eða eggnog eins og það heitir á frum- málinu, er ættað frá Eng- landi og nýtur þar mikilla vinsælda um jólin. Púnsið er aðallega gert úr heitri mjólk, eggjarauðu, sykri og svo er áfengi bætt út, til dæmis viskíi og koníaki. Hægt er hita bjór og setja út í í stað koníaks en útkoman verð- ur þá frekar súpa heldur en drykkur. Meðfylgjandi er uppskrift að eggjapúnsi. 6 egg (rauða og hvíta aðskilin) 1½ til 2 dl sykur ½ dl viskí 1 dl koníak 2½ dl mjólk ¼ tsk. salt 4½ til 5 dl rjómi Þeytið eggjarauður í sykri þar til blandan verður þykkt, ljósleitt krem. Hellið næst mjólk, viskíi og koníaki út í og hrærið á meðalhraða. Leyfið blöndu að kólna í 2 til 3 klst. Þeytið eggjahvítur og salt á meðan – stífþeytið þó ekki – þar til úr verður þykk froða. Stífþeytið hins vegar rjóma og setjið út í eggjablöndu. Bætið eggjahvítum næst við, hrærið saman og kælið í um klst. fram að framleiðslu. Berið fram í litlum bollum eða glösum, en uppskriftin á að duga í um tuttugu slík. EGGJAPÚNS Á AÐVENTUNNI Jólalagadrottningin Helga Möller söng á sínum tíma um að aðfangadagskvöld væri enn barna- hátíðin mest og best og það eru orð að sönnu. Hins vegar vill bregða við að blessuð börnin gleymist í stressinu og tímaskortinum í aðdraganda jólanna, en fátt gæti mögulega verið fjær hinum sanna jólaanda. Því er ástæða til að brýna fyrir fólki mikilvægi þess að yngsta fólkið fái að taka þátt í undirbúningi fyrir jólin. Flest börn hafa gaman af því að fá að hjálpa til, hvort sem það er við smákökubakstur, skreytingar eða í raun hvað sem er. Slíkt styttir líka biðina löngu eftir sjálfri barnahátíðinni, aðfangadagskvöldi. HJÁLPSÖM JÓLABÖRN Þykkvabæjar Alltaf góðar, allavega! Tilbúnar á örfáum mínútum – brúnaðar, gratíneraðar, steiktar á pönnu, brytjaðar í salat eða einfaldlega hitaðar í potti eða örbylgjuofni. Leiðbeiningar á umbúðunum. A B X / S ÍA 9 0 2 1 8 0 0
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.