Fréttablaðið - 19.12.2009, Síða 130

Fréttablaðið - 19.12.2009, Síða 130
 19. desember 2009 LAUGARDAGUR Opið: Alla daga til jóla frá 11 til 22 Sími 578 9400 *Gildir ekki af DVD-diskum. Afslátturinn er alfarið á kostnað MerkjaOutlet. KORPUTORGI TAX-FREE DAGAR Vörum er hægt að skipta í aðrar vörur til 31. desember 2009. ALLAR VÖRUR VE RSLUNARINNAR ÁN VSK!* TIL JÓLA! Outlet verð kr. 4.995 TAX-FREE VERÐ kr. 4.012Outlet verð kr. 4.995TAX-FREE VERÐ kr. 4.012 Outlet verð kr. 1.695 TAX-FREE VERÐ kr. 1.361 Outlet verð kr. 1.695 TAX-FREE VERÐ kr. 1.361 Outlet verð kr. 4.995 TAX-FREE VERÐ kr. 4.012 Outlet verð kr. 4.995 TAX-FREE VERÐ kr. 4.012 H et tu pe ys a, m /á le tr un H et tu pe ys a, m /á le tr un Æ fi n ga bu xu r fy ri r dö m ur M yn da bo lu r, M oo C ow M yn da bo lu r, Le bo w sk i Fl ís pe ys a fy ri r dö m ur MIKIÐ ÚRVAL AF MYNDABOLUM O G HETTUPEYSUM MYNDIR Á FACEBOO K Bókmenntir ★★★ Finnur finnur Rúsínu Sigrún Eldjárn Strákur í sveit Upp um miðja öldina var tilhneigingin hjá íslensk- um höfundum barnabóka að vísa skipulega til dýranna í sveitinni, svona rétt í þann mund sem hugsandi fólk tók að gera sér grein fyrir að upp var að vaxa kynslóð í landinu sem hafði ekkert samband við skepnur. Ætli þetta megi ekki fyrst greina í myndskreytingum Halldórs Péturssonar við Vísnabókina, eitt áhrifamesta rit síðustu aldar. Í öðrum ritum rann þetta saman við sveitasæluskáldskap, eftirsjá þeirra fullorðnu við heimi á hverf- anda hveli. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar: húsdýragarðar eru það lengsta sem börn komast í viðkynningu við húsdýr nema hunda og ketti, heimilishúsdýr, sem eru einhvers konar uppbót fyrir þann heim náttúrunnar sem er annars horfinn og sést ekki nema út um bílrúðu. Sigrún Eldjárn hefur verið að sem sögukona í áratugi. Hún hefur lagt fyrir sig margar greinar sagnaskáldskapar fyrir börn og nýtt gáfur sínar bæði á teikniborðinu og við textasmíðina. Hún er kyndugur höfundur, alltaf persónuleg í húmor og sér veröldina sínum augum. Finnur finnur Rúsínu ber þess merki. Einhvers konar kennslusaga um dýralíf, fuglar hafa hljóð, húsdýr, sauðfé, nautgripir, hænsnfé og grísir koma við sögu þar sem Finnur, sem er dökkur á hörund, dvelur hjá ömmu í sveit, en hún málar og er fjarri staðalmyndinni líka, býr í burstabæ. Hann fer á rand í einstæðingsskap sínum og lærir í sögunni bæði heiti dýra og hljóð og tölustafi í leiðinni. Svo finnur hann sér Rúsínu, litla stelpu sem hann bregður á leik við. Þau fara um hættulegustu staði í íslensku landslagi: fossa, gjár og hamra – hvergi bangin. Þessa sögu myndskreytir Sigrún í glæstum björtum litum. Tölustafir hverfa stundum í litina sem er galli en að öðru leyti er grafísk úrvinnsla skemmtilega fjölbreytt og lifandi. Anatómísk teikning var aldrei sterkasta hlið Sigrúnar en hún vinnur þá ágalla upp með glettnislegu yfirbragði texta og myndefnis. Þetta er skemmtileg og falleg saga til lesturs með ungum börnum og ætti að skila erindinu: við erum ekki ein í heiminum. Páll Baldvin Baldvinsson Niðurstaða: Litrík bók og gagnleg í öllum skilningi. Bókmenntir ★★★★★ Skrímsli í heimsókn Kalle Guettler, Rakel Helmsdal og Áslaug Jónsdóttir Fjórða sagan um skrímsli Fyrsta sagan eftir þetta þríeyki varð til í norrænu samstarfsátaki og small: höfundar komust niður á sáraeinfalda hugmynd, mörkuðu sér afmark- aðan bás í lesendahópi; foreldra með ung börn. Leturhugsun laut að vísu tísku þar sem leikið var með fontastærð og inn í lesmálið skotið sérsmíð- uðu letri, útklipptu(?), sem rímaði við grunnlínur í persónusköpun teiknarans. Persónur og bakgrunnar voru útklippt unnin á svartan pappír og litur lagður ofan á með vaxlitum(?) Alla vega þá er myndáferðin afar nærri því sem börnin sem njóta sagnanna gera sjálf. Þau þekkja vinnuna af eigin raun sem býr að baki tjáningaraðferð teiknarans. Þá voru söguefnin ekki síður vel heppnuð. Einfaldar sögur með skýrum kjarna, tilfinningahlaðið söguefni sem stóð nærri njótandanum. Lesara – því sögur í mynd og máli varð að lesa fyrir börnin – er jafnvel gefinn kostur á að taka þátt í leiknum í lestrinum: tvær gerólíkar raddir litla og stóra skrímslis kalla beinlínis á flutning með leik. Þannig sameina sögurnar margt: samveruna, ánægju af stöðu í fléttunni, fögnuðinn yfir myndunum, jafnvel ábendingu um stafagerð og stafastærð kjósi lesandi að nota söguna til að leiða barnið í stafrófið. Línur eru líka stuttar og lifandi í umbroti á síðunni. Þetta er allt fagmannlega unnið. Bækurnar fara vel í hendi eru í samstilltu broti allar fjórar, ekki svo síðumargar að þær gefi sig í límingu en gott hefði verið að sauma þær svo þær entust nokkrar kynslóðir. Sem þær hafa efni til. Páll Baldvin Baldvinsson Niðurstaða: Súpergott stöff. Bókmenntir ★ Bakkabræður Kristín Arngrímsdóttir mynd- skreytir Bræður frá Bakka Aulasögurnar af þeim Bakka- bræðrum eru nú komnar á bók á vegum Skruddu, ekki er getið um hver hefur umritað þær, enda ekki vel ljóst hverjum þær eru ætlaðar: leturstærð bendir til að þær séu ætlaðar börnum sem hafa nýlega lært að lesa en þá eru línur of langar þótt leturstærðin sé bærileg ungum augum. Þá koma víða fyrir í textanum setningar sem eru svo snúnar að börnum mun veitast erfitt að lesa þær og skilja. Svo má reyndar efast um að margt efn- isatriðið verði jafnvel fullorðnum lesanda augljóst, svo langt er liðið frá þeim efnisheimi sem sögurnar lýsa: hvað er blöndukútur? Þeir finna Brúnku berbakaða. Hvernig skilja menn þetta nú? Það er efast um erindi þessara texta á markað, jafnvel fyrir fullorðna. Myndir Kristínar eru vatnslitaðar blýantsteikningar, líflitlar og skila líkamsbyggingu á mönnum en eru afleitar í dýrum. Og eftir lestur spyr maður: til hvers er verið að gefa þetta út? Páll Baldvin Baldvinsson Niðurstaða: Mislukkuð tilraun til að flytja fornan menningararf. Bókmenntir ★★★ Tröllagleði Steinar Berg og Brian Pilkington Vandamál tröllanna Goðmögn eins og tröll eiga erfitt uppdráttar í okkar heimi. Þau gátu lengi treyst á að þau væru lesin inn í landið, klettar og hraunstrýtur gáfu okkur tækifæri til að lesa í grjótið mannamyndir og þar voru þau lifandi komin. Íslenski sagnaheimurinn er reyndar býsna mótsagnakenndur með sínum álfum, sem lítið eru nýttir þessi dægrin, dvergum sem eru heldur ekki mjög vinsælt sagnaefni; það eru raunar tröllin sem hafa átt best fram- haldslíf á blöðum bóka og á Brian Pilkington nokkra sök í því. Hann hefur lýst sögur höfunda eins og Guðrúnar Helgadóttur og Steinars Berg. Þeir Steinar og Brian senda nú frá sér nýja bók – fyrir börn á öllum aldri. Hún er prýðis lesefni, hugkvæm og hugmyndarík saga og afar fallega unnin í myndum. Steinar nýtir sér landkosti í Borgarfirði til að finna sögunni stað og sögukjarninn er ágætis hugmynd. Textinn er settur í býsna langar línur og hentar því helst fullorðnum lesendum, jafnvel snemmlæs börn munu eiga í vandkvæðum með svo langar línur, smátt letur og langar setningar. Það er galli á verkinu að höfundum og útgefanda er ekki fullljóst hverjum sagan er ætluð í lesskilningi; helst fullorðnum sem vilja lesa fyrir ung börn. Steinar er að vaxa sem höfundur texta þótt hann þurfi leiðsögn og lag- færingu frá vönum ritstjóra, setningar eru stundum full stirðbusalegar, skortir mýkt, en merkingin er skýr og tilgangurinn góður. Bókin fellur því svolítið milli vita, hefur svolítinn fullorðinsblæ sem kann að vera fjarlægur börnum, tilhugalíf trölla og gjaforð eru börnum fjarlæg þótt staðalímynd karlkyns og kvenkyns séu enn bundin í pör. Páll Baldvin Baldvinsson Niðurstaða: Fallega lýst saga og ratar vonandi til sinna. Bókmenntir ★★ Tíu vísur Helga Egilsson myndskreytir Vísast Tíu vísur eftir nafnkunna höfunda og óþekkta verða Helgu Egilsson teiknara tækifæri til að mynd- skeyta vísnaheiminn í harðspjalda bók í stóru broti. Valið á vísunum er margbreytilegt, margt er vel kunnugt, annað óþekkt. Þjóðvísur og barnagælur í meirihluta, en sumt torkennilegt: Þér frjálst er að sjá eftir Þorstein Erlingsson er varla við hæfi ungra barna. En það er ekki aðalatriðið, hér skipta teikningarnar eða myndirnar mestu. Þær eru að vísu flestar settar í íslenskt landslag, kunnug- legan heim en sverja sig í alþjóð- lega skreytistíl á barnaefni. Ekki falla þær að mínum smekk, heldur ófrumlegar í hugsun og vinnslu en kunna þó að vera dægilegar þeim sem vanastir eru umgengni við þróaða erlenda framleiðslu á þessu sviði sem nóg er af. Páll Baldvin Baldvinsson Niðurstaða: Fáar vísur við stórar myndir með alþjóðlegum blæ.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.