Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 26.10.1961, Qupperneq 20

Vikan - 26.10.1961, Qupperneq 20
Treyja og húfa á ungbarn SÍLDARRÉTTIR. Sild er holl, góð og heima- íengin. Þessvegna ber okkur að auka neyzlu hennar. Hér á eftir koma nokkrir síldarréttir úr nýrri og saltaðri síld. Hreinsun á síld. Ný sild á að vera fersk og stinn, með góðri fisklykt. Nýja síld á að hreinsa sama dag og hún er veidd og matreiða eins fljótt og mögulegt er. Salt- síld er geymd á köldum stað, og afvötnuð áður en hún er borðuð. (Meðfylgjandi myndir sýna hvernig beinin eru tekin úr slldinni). Síldarrúllur. 1 kg ný sild, V-i 1. vatn, 2 msk. borðedik, 1 msk. salt, 4 lárviðarlauf, piparkorn. Sildin er flökuð, þannig að flökin séu samföst hryggmegin. Salti og steinselju stráð yfir, (steinseljunni má sleppa). Rúll- að upp frá sporði og raðað í pott eða eldfast mót. Lögurinn soðinn og heilt yfir síldina. Soðið í 10—15 mín. Bornar fram heitar eða kaldar með soðnum kart- öflum. Síld á fati með hrærðum kartöflum. 1 kg ný sild, 2 laukar, 1 tsk. salt, 2 msk. smjörliki, 2 msk. sítrónusafi, 1 lárviðarlauf (fínmulið), piparkorn eða heill negull, söxuð stein- selja, ca. 1 dl rjómi eða rjómabland. Sildin er flökuð og raðað í eldfast mót. Laukurinn er skor- inn i sneiðar, raðað yfir. Siðan er kryddi, sitrónusafa, smjörlíki og rjóma eða rjómablandi dreifl jafnt yfir síldina. Þétt lok látið yfir og soðið við hægan hita 10— 15 mín. Borið fram vel heitt, með soðn- um eða hrærðum kartöflum. G'ulrótasalat er gott hér með. Síldarkökur. % kg hreinsuð síld, 1 tesk. salt, (V‘i tesk. pipar, honum má sleppa), 3 stórir laukar, 50—100 gr smjörlíki. Það má nota hvort sem er nýja eða saltaða sild í þennan rétt. Sé notuð saltsíld, þarf að útvatna liana vel. Síldin er hreinsuð, bein og roð tekið af og flökin þerruð. Hakkað einu sinni til tvisvar. Mótað í jafnar flatar kökur. Laukurinn skorinn í sneiðar og brúnaður. Kökurnar eru brúnað- ar þar eftir, salti og pipar stráð yfir. Þegar kökurnar eru full- steiktar er þeim raðað á heitt fat og laukurinn látinn yfir. Borið fram með soðnum kart- öflum og hráu grænmetissalati. Hér sjáið þið hnappagatakapp- melluspor, sem er talið vera mjög sterkt. Treyja og húfa á ungbarn........ E'fni: 150 gr af mjúku 4 þráða ullargarni í ljósbláum, hvítum, gulum, bleikum eða grænum lit. Prjónar nr. 2%. Mynztrið er deilanlegt með 2 + 1 1. Mynztur: 1. umferð, * 1 1. brugðin, takið 1 1. óprjónaða fram af prjóninum og hafið garnið á réttunni. Endur- takið frá * til * umf. á enda og endið með 1 1. brugðna. 2. umf. brugðin. 3. umf., * 1 1. brugðin, 1 1. sl. Endurtakið frá * til * umf. á enda og endið með 1 1. brugðna. 4. umf. brugðin. Endurtakið síðan þessar 4 umferð- ir og myndið þannig mynztrið. 32 1. sl. gera 10 cm. Treyja: Fitjið upp 68 1. á prjóna nr. 2% og prjónið sléttprjón. Eftir 2 cm er gert 1 hnapapgat þannig, að 2 1. eru felldar af 3 1. frá jaðri, síðan fitjaðar upp 2 1. í næstu um- ferð, yfir þeim affelldu frá fyrri umferð. Prjónið sléttprjón, aukið út 14 1. með jöfnu millibili yfir 1 um- ferð. Prjónið 2 umf. og aukið þá út þannig: prjónið 5 1. með garða- prjóni, eða alltaf sléttar bæði frá réttu og röngu, 12 1. sléttprjón, bregðið bandinu um prjóninn og myndið þannig 1 lykkju, 1 1. sl., bregðið bandinu um prjóninn og myndið þannig aðra lykkju, 8 1. sléttar (= önnur ermin), bregðið bandinu um prjóninn, 1 1. sl., bregðið bandinu um prjóninn, 28 1. sl. (= bakið), bregðið bandinu um prjóninn, 1 1. sl., 8 1. sl. ( = hin ermin), bregðið bandinu um prjóninn, 1 I. sl., bregðið bandinu um prjóninn, 12 1. sléttar, 5 1. garðaprjón. — 1 umferðinni til baka prjónast öll böndin brugðin. Aukið siðan út á Þennan sama hátt, alltaf frá réttu, ath. að út- aukningar standist á og komi sitt hvorum megin við sléttu lykkjuna. Framhald á bls. 40. Eftir hverju dæmið þér bílinn? Ödýrasti bíllinn er nýr bíll, segir amerískt máltceki, og þaS mcetti œtla, aö reynsla vceri fengin fyrir þessu í Bandaríkjunum, því aö þar seljast miklu fleiri notaöir bílar en nýir, •— og um þaö bil helmingur hinna milljóna bílaeigenda þar hafa cddrei efni á því aö fá sér nýjan bíl. Nýr bíll en mjög dýr, en hinn not- aði getur orðið enn dýrari: viðgerðar- Gljáandi lakk og skínandi króm hefur segulmögnuð áhrif. reikningar hafa yfirleitt að geyma á- hrifamiklar tölur. Bezta ráðið, sem hægt er að gefa Þeim, sem hafa í hyggju að kaupa bíl, er því þetta: „Kaupið heldur nýjan, lítinn bíl en stóran og glæsilegan, notaðan." En það eru ekki allir, sem eiga þess kost að velja frjálst. Margir bílkaup- endur neyðast oft til að snúa sér til hins áhættusama markaðs, þar sem bílar eru seldir af milliliði. Þvi að öllum er ekki gefið, að eiga troðið veski, og margir þurfa hreint og beint rúmgóðan bíl. Lysthafandi hrífst gjarnan af hinni glæsilegu innansmíði. Það þarf ekki að efna til skoðana- könnunar til að komast að raun um að, hvað það sé, sem flestir falli fyrir, þegar þeir velja sér bíl. Það er út- litið. Gljáandi lakk og skínandi króm hefur segulmögnuð áhrif. Þar næst hrífst hinn væntanlegi kaupandi af hinni glæsilegu og ríkulegu innan- smíði. 1 þriðja og síðasta lagi kannar hann vélina og hina einstöku hluta hennar, — hin innri gæði. En við skulum ekki hneykslast! Hversu oft er ekki aðeins bíllinn, heldur einn- ig bilstjórinn metinn á sama hátt! HVAR Á AÐ KAUPA BlLINN? Hér á landi eru aðstæðurnar til bíla- kaupa svo ólíkar því, sem er viðast er- lendis að það kæmi að takmörkuðu gagni hér að nema þau ráð, sem vænt- anlegum bílkaupendum eru gefin þar. ETn ýmis ráð má að sjálfsögðu gefa fyrir íslenzkar aðstæður, enda engu minni vanþörf en erlendis, og einnig má búast við því, að aðstæðurnar hér- lendis þróist æ meir í áttina til þess, sem gerist erlendis. Og að þvi hefur þegar verið stefnt hér í Reykjavík undanfarið með hinni stórauknu um- boðssölu á notuðum bílum. Það sem hér vantar tilfinnanlega, er fyrirtæki, sem taki notaða bíla upp 2D VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.