Vikan - 09.11.1961, Side 43
Kæri Draumráðandi.
Mig dreymdi draum um daginn,
sem mig langar til að biðja þig um
að ráða. Ég var stödd í búðinni,
sem ég vinn í og var ég ein. Þá
koma tveir menn, sem mér í'innst
ég kannast við. Þeir ganga inn fyrir
búðarborðið og byrja að rifa út
úr hillunum og skemma. Ég var
alveg í vandræðum og vissi ekkert
bvað ég ætti að gera. Einlivern-
veginn kom ég þeim innfyrir í búð-
ina. Þegar ég bafði lokið þessu var
búðin orðin full af fólki. Ég byrj-
aði að afgreiða en alltaf var meira
og meira eftir. Allt i einu var stelpa,
sem ég þekkti og var einu sinni
vinkona mín komin við hlið mína til
ClBaiUMulS In N
að hjálpa mér. Við liina hliðina
var kominn strákur, sem ég er hrif-
in af Nú gekk allt eins og i sögu.
Þegar lokað var hleyptum við strák-
unum út og þeir báðu innilega af-
sökunar á því, sem þeir höfðu gert
og fóru. Svo ætluðu þau að kveðja,
strákurinn fór út án þess að kveðja
og leit ekki á mig en stelpan kvaddi
og ég þakkaði henni fyrir hjálpina
og bað liana að skila kveðju til
stráksins. Kyssa hann fyrir mig, en
svo tók ég það aftur.
Með fyrirfram þökk,
Vonlítil.
Svar til Vonlitillar.
Upphaf draiimsins, þar sem
segir frú innbroti og brambolti
strákanna i verzluninni hjá þér,
bendir til erfiðleika, í starfi, sem
þó lcysist úr. Atligglisverðast í
dranmnum er að vinur þinn, sem
þú kveðst vera hrifin af kveður
þig ekki og fer án þess að lita
við þér. Þetta finnst mér benda
til að ekki sé a.llt búið með ykk-
ur, heldur eigi samband ykkar
lcngi að haldast. Samband þitt
og vinkonu þinnar mun hins veg-
a.r ekki verða varanlegt þar sem
hún kveður þig og bendir það
sameiginlegra ásta á maka.
Iværi Draumráðningamaður.
Mig langar svo að biðja þig að
ráða fyrir mig tvo drauma, hræði-
lega ljóta, sem mig hefur nýlega
dreymt. Sá fyrri er þannig. Mér
fannst vera maður úti fyrir, sem
ætlaði að reyna að komast inn i
íbúðina til mín. Ég var búin að
loka. Hann ýtir svo af miklum
kröftum á hurðina að hún opnast
alveg að neðan, cn lásinn gaf sig
ekki. Þá fannst mér hann gera
sér litið fyrir og fara að tálga
hurðina. Mér fannst hann ætla að
tálga hurðina upp. Mér fannst ég
sjá manninn og þekkti hann ekkert.
Svo var hann svo óhuggulegur i
útliti. Ég vaknaði við að hann var
að tálga hurðina. Síðari draumurinn
er ckki ósvipður, en þar var dýr
að verki og var ég þá að mér fannst
stödd' lijá móður minni. Mér fannst
flugvél, þyrla fljúga alveg við
gluggana og niður úr henni héngu
tvö viliidýr. Mig minnir ljón og
tígrisdýr. Flugmaðurinn var að
halda sýningu á dýrunum. Svo
hvarf flugvélin og mér varð litið
út um gluggann. Sé ég þá villidýrin
koma hlaupandi að húsinu til okk-
ar, og ég vissi að þau höfðu sloppið
Annað dýrið réðist á hurðina,
inn af búðinni, en við vorum
búnar að læsa. Það var eins og
hurðin svignði alveg til, en lásinn
liélt, svo sé ég í loppuna á dýrinu
gegnum hurðina að neðan. Ég ýtti
á hurðina á móti dýrinu og var
orðin óttaslegin um að það þyti
innfyrir þá og þegar. Ég heyrði
aldrei neitt í því og ég man að
það var ekki með klærnar úti.
Fyrir hverju eru þessir ægilegu
draumar.
Með fyrirfram þakklæti.
Ein, sem trúir á drauma, Þ. St.
Svar til Einnar, sem trúir á
drauma.
Draumarnir eru svipaðs eðlis
að merkingu og benda til þess að
einhverjir af karlkyninu sæki
nú mjög liart að þér og reyni að
sigra.st á þér, og ná yfirtökunum.
Af dra.umnum má ráða að
þetta tekst samt sem áður ekki,
þar sem hurðin lét ekki undan,
þó að fast væri drepið að dyrum.
Það er vissulega ekki gott þegap
sálarlif manns tjáir kunningja
manns í liki villidýrs. Ef til vill
er þetta Jiið alsjáandi auga, sem
sér veruleika.nn eins og hann er,
nakinn og beran, þó veraldleg
augu okkar skynji ekki annað
en hismið sem að undan glóir.
Þú ættir því að fara, varlega í
samskiptum þínum við núver-
andi kunningja þína og forðast
allar vafasa.mar gerðir.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi fyrir stuttu að ég
opnaði tösku og sá þar ofan í skó,
sem ég bafði nýlega gefið átján
ára gamalli dóttur minni. Mér
fannst að henni hefði ekki líkað
skórnir og þess vegna rifið sólana
undan og límt aðra gula, þykka
hrágúmmíbotna undir, sem mér
fundust Ijótir. Ég tók svolítið í
sólana og rifnaði svolítið frá þvi
limið var ekki harðnað og hugs-
aði ég sem svo að þetta mundi
seint festast við hjá henni, en lét
skóna samt niður í og lokaði tösk-
unni aftur.
Vestfirzk húsmóðir.
Svar til Vestfirzkrar húsmóður.
Nýir skór eru venjulega, tákn
um stutt ferðalög. Að þú skyldir
gefa dóttur jnnni nýja skó mundi
þvi vera tákn um að þú viljir að
dóttir þín fari í stutt ferðalag,
sem hún er óánægð með og fer
til o.nnars staðar, sem hún er
ánægðari með, samt veldur þú
henni að einhverju leyti von-
brigðum, sbr. að þú rífur skó-
sólana eilítið frá. Annars er hér
a.triði, sem mjög athyglisvert er
að taka til athugunar, það er að
fölk hefur oft mikla, tilhneigingu
til að stjórna öðrum, alveg eins
og það áliti allar sínar skoðanir
og gerðir einhverja endanlega
lausn á öllum málefnum, og apn-
að kemst ekki að hjá þeim.
Smekksatriði og smekkur eru
jafnmörg mönnunum á jörðinni
og ömmur og mömmur ættu að
hafa, það hugfast að þeirra sjón-
armið mólast af fertugs og sex-
tugsaldrinum, sem alls ekki pass-
ar átján ára stúlkum. Eigin a,ugu
eru oftast gleggst fyrir eigin vel-
ferð, en ekki annarra sjónarmið,
sem mótuð eru við allt aðra,r
aðstæður.
luggar fyrir verzlan-
ir og skrifstofubyggingar í
ýmsum litum og formum.
Málmgluggar fyrir verk-
smiöiubyggmgar, gróður-
hus, bílskúra o fl.
«11
Nýtt útlit
Ný tækni
Lækjargötu, Hafnarfirði. — Sími 50022.
VIKAN 43