Vikan - 06.06.1963, Side 49
ur og kvíði rílcti við völd, sem
Þjóðverjarnir voru valdir að, voru
árekstrar milli þess manns annars
vegar, sem vildi leiSréttingu mála
sinna og hins, sem hafSi framiS
verknaSinn, óhjákvæmilegur. Það
voru svo margir sem sóttust eftir
leiðréttingu og þrátt fyrir ákafa
sinn höfðu þeir skilið eftir mörg
lifandi fórnarlömb. Það gengu iSu-
legá sögur um menn i Evrópu, sem
höfðu verið í fjöldafangabúðun-
um og sem höfðu hitt kvalara sína
eftir striðið og tilkynnt um tilveru
þeirra til viðkomandi stjórnar-
valda og höfðu síðan notið þess
að horfa á þá tekna af lífi. En til
hvaða aðila gat hann snúið sér við-
vikjandi þessum þýzka manni, —
svissnesku lögreglunnar? Og þá
fyrir þvaða ,glæp? Eftir hvaða
glæpalögum gat hann fengið hann
dæmdan?
Hann gat gert það sama og fyrr-
verandi fangi hafði gert i Budapest
þremur eða fjórum árum eftir
stríðið, þegar liann hafði hitt einn
af fyrrverandi fangavörðum sín-
um á brú yfir Dóná, hafði hann
einfaldlega tekið manninn upp,
hent lionum yfir brúargrindina og
horft á hann drukkna. Fyrrverandi
fanginn liafði sagt frá, hver hann
væri og hver drukknaði maðurinn
var og hann hafði verið látinn laus
og var litið á hann sem hetju. En
Sviss var ekki Ungverjaland, Dóná
var langt í burtu, stríðinu var lok-
ið fyrir mörgum árum.
Robert hreyfði sig æstur í hinni
þéttskipuðu sldðalyftu. Hann fann
svitann renna óþægilega niður rif-
bein sín undir hinni þykku skiða-
peysu. Nærvera svo margra, sem
sífellt töluðu um hversu fullkom-
in hin nýja austurriska skiðaað-
ferð væri eða matinn, sem þau
myndu fá i leiðarlok hafði trufl-
andi áhrif á hann og gerði honum
erfiðara með að liugsa. Og hann
varð að hugsa. Eftir nokkrar mín-
útur myndu þau vera komin upp á
fjallstoppinn og ákvörðun varð að
vera tekin, ákvörðun, sem myndi
breyta rás lífs hans.
Það var alveg sama livað hann
gerði, hann var að losna við Mac.
Þetta var dálítið, sem hann varð að
leysa upp á eigin spýtur. Ef Mac
væri hvergi nálægt gæti hann fylgt
manninum eftir og beðið tækifær-
is að atburðarásin yrði honum hag-
stæð. Hann gæti einnig lcomið
Þjóðverjanum i opna skjöldu í
fjallshlíðunum og gæti þar framið
morð, sem myndi líta út eins og
um slys væri að ræða. E. t. v.
myndi maðurinn móðga hann og
reita hann til svo mikillar reiði,
að hann myndi gera það sem hon-
um dytti í hug, öllu hiki svipt
burt.
Hvað svo sem hann gerði þenn-
an dag vissi Robert, að það yrði
ekki nein tegund einvigis. Hann
vildi hegningu, elcki virðingar-
verknað. Hann lokaði augunum og
sá fyrir sér sig drepandi mann-
inn á afskekktum stað huldum
skýjum, — hvernig hann ætlaði
að drepa hann var honum ekki
ljóst. Einhvern veginn. Síðan
myndi hann draga likið til skóg-
arins og skilja það eftir þar og
láta snjóinn hylja það vikum eða
mánuðum saman. (MAÐUR DREP-
INN Á SKÍÐUM. LÍKIÐ FINNST
TVEIM MÁNUÐUM EFTIR HVARF
MANNSINS). Síðan myndi hann
fara af landi brott, myndi engan
láta vita um verknaðinn.
Robert hafði aldrei drepið mann.
Meðan á striðinu stóð hafði hann ,
verið valinn af ameríska hernum
i hóp með öðrum hermönnum til
að halda uppi sambandinu við
frauska herdeild, og þó margsinn-
is hefði verið skotið á hann hafði
hann aldrei svo mikið sem skotið
af byssu i Evrópu. Þegar striðinu
lauk var hann innst inni feginn
að vera aldrei spurður, livort hann
væir fær um að drepa eða ekki.
Það rann upp fyrir honum, að
spurningunnni var beint að hon-
um núna. Striðinu var ekki enn
lokið.
Og ef hann ekki dræpi — þá
hvað? Hann þurfti að ná Þjóð-
verjanum einhvers staðar einum,
lemja hann þar niður, berja haus-
inn á honum með hinum þunga
skíðaklossa hans, skilja hann eft-
ir limlestann og að eilífu merktan
í andlitið, sem bæri vitni um
hefndina, Sem hann hafði svo mjög
kallað yfir sig.
Ef til vill var þetta lausnin,
hugsaði Robert. Fá náungann til
að kæra til lögreglunnar. Það
myndi ég vilja, hugsaði hann. Hann
hafði það á tilfinningunni, að al-
veg sama hvað hann tæki sér fyrir
hendur þá myndi Þjóðverjinn allt-
af reyna að halda lögreglunni utan
við þetta.
Þess vegna, hugsaði Robert, er
bezt að ég fylgi honum eftir og
sjái hverju fram vindur. Misstu ekki
sjónar af honum, það sem á að ske
verður að ske.
Og fljótt, þetta yrði að ske fljótt,
áður en inaðurinn uppgötvaði að
hann liafði vakið einliverja sér-
staka athygli einhvers, áður en
lian færi að veita eftirtekt Amerí-
kananum, sem fylgdi .honum, áður
en hið granna andlit fjórtán ára
drengs á hinu dimma, drungalega
fjalli árið 1938 rynni upp fyrin
hugskoti hans í stað andlitsins,
sem h'ann myndi sjá fyrir sér núna,
ef hann uppgötvaði hann; andliti
manns í hefndarhug.
„Heyrðu, Róbert,“ rödd Macs
rauf skyndilega hugsanir Roberts
og kom honum til meðvitundar
aftur. „Hvað er að? Ég lief verið
að tala við þig í þrjátíu sekúndur
og þú hefur ekki svo mikið sem
heyrt orð af því sem ég verið að
segja. Ertu lasinn eða eitthvað
annað? Þú ert eitthvað hálf skrít-
inn finnst mér.“
„Það er allt í lagi með mig,“
sagði Robert. Hann lagði sig allan
fram við að koma andlitinu á sér
í sömu skorðurnar og það hafði
verið í s.l. viku með Mac. „Ég er
með höfuðverlc, það er allt og
sumt. E. t. v. væri bezt fyrir mig
að fá mér eitthvað, t. d. eittlivað
heitt að drekka. Þú skalt fara á
undan mér niður.“
,Ekki til að tala um,“ sagði Mac,
„ég bíð eftir þér.“
„Vertu ekki með neiiia vitleysu,“
sagði Robert og gerði allt í sinu
valdi til að láta rödd sína hljóma
eðlilega og vingjarnlega. „Þú
missir af itölsku greifynjunni. Ef
satt bezt skal segja er ég ekki upp-
lagður til að vera meira á skiðum
í dag Veðrið er orðið svo leiðin-
legt.“ Hann bandaði hendinni til
skýjanna sem voru að þekja fjöll-
in. „Þú getur ekkert séð. Ég tek
liklegast lyftuna niður aftur.“
„Heyrðu, ég er farinn að hafa
áhyggjur af þér,“ sagði Mac
áhyggjufullur. „Ég verð með þér.
Viltu að ég nái í lækni?“
„l.áttu mig vera, i guðs bænum,
Mac,“ sagði Robert. Hann varð að
losa sig við Mac. Ef liann yrði með
því að særa hann myndi liann
bæta lionum það upp síðar. „Þeg-
ar ég fæ þessi höfuðveikiköst vil
ég helzt vera einn.“
„Ertu nú alveg viss um það?“
spurði Mac.
„Já, alveg viss.“
„Allt í lagi. Sjáumst við ekki
niður á lióteli fyrir te?“
„Jú,“ anzaði Robert. Eftir að ég
er búinn að kála Þjóðverjanum
eða hvað svo sem skeður verður
tesopinn góður. Hann bað til guðs
um að sú ítalska myndi láta sldðin
strax á sig, þegar þau kæmu upp
á fjallstoppinn og renna sér niður
með Mac á eftir, svo að þau yrðu
farin áður en hann legði upp i
eltingaleikinn við manninn með
svörtu húfuna.
Nú sveiflaðist lyftan yfir siðasta
hnjúkinn. Farþegarnir fóru að ó-
lcyrrast, laga á sér skíðafatnaðinn,
reyndu á sér skiðabindingarnar
o. fl. viðvíkjandi skíðaferðinni nið-
ur. Robert leit snöggt á Þjóðverj-
ann. Konan var að binda silki-
klút um háls lians heldur óblíð-
lega, fannst Itobert. Hún var með
svip matreiðslukonu og klessulegt
rautt nef.. Hvorki hún né h'anh
litu i áttina til Roberts. Ég mun
hugsa fyrir konunni, þegar þar að
kemur, hugsaði Robert.
Lyftan stöðvaðist og skiðafólltið
byrjaði að fara niður úr hepni. Ro-
bert var svo nálægt dyrunum að
hann varð einn af þeim fyrstu út.
Án þess að lita við gekk liann rösk-
um skrefum burt frá skiðapallin-
um í hina margumbreytilegu ský
fjallstoppsins. Fjallið breyttist i
snarbratt fjallaklif öðrum megin
við stöðvarpallinn og Robert gekk
þangað og gekk út að- brúninni og
horfði út yfir. Ef Þjóðverjinn ein-
hverra hluta vegna myndi nálgast
hann til að sjá hversu þykk skýin
væru hérna megin eða til að sjá,
hvernig snjórinn væri á Keisara-
garðsbrautinni, sem lá lengra i
burtu, þar sem brekkurnar voru
jafnari, þá myndi hann ,fá gott
tækifæri til að lirynda ho.num fram
af í 100 metra fall í klettana fyrir
neðan og þá myndi þessu vera:
lokið. Robert sneri sér við og
liorfði á þann hluta pallsins, þar
sem fólkið gekk út af honum s og
leitaði í hinum marglita hóp að
manninum með afrísku herdeild-
arhúfuna.
Afríska húfan sást livergi. Þjóð-
verjinn og konan voru ekki enn
komin út af pallinum. Það var
ekkert óeðlilegt við það. Fólkið
lét oft vax á skíðin sin á pallinum
eða fór niður á snyrtinguna áður
en það hélt niður skíðabrekkurn-
ar. Það var bara betra, hugsaði Ro-
bert, því þvi lengur, sem hann
væri að dunda, því færra fólk yrði
í kring til að taka eftir, þegar Ro-
bert legði af stað eftir manninum.
Robert beið við barmsbrúnina. í
hinum svífandi og köldu skýjum
fannst lionum liann vera krafta-
mikill og einkennilega létt yfir
höfði sér. í fyrsta skipti i lífi sínu
uppgötvaði hann hina djúpu gleði
yfir að eyðileggja eitthvað. Ég
liugsa, að ég geti gert það, hugsaði
hann; ég held raunverulega, að ég
geti gert það. Iíann veifaði glað-
lega til Mac og þeirrar itölsku um
leið og þau brunuðu af stað niður.
Þá opnuðust dyrnar á stöðinni
aftur og konan sem liafði verið
með Þjóðverjanum kom út. Hún
var búin að setja upp skiðin og
Robert varð ljóst, að þau höfðu
verið svona lengi inni, af því að
þau höfðu sett upp skíðin inni i
biðsalnum. í slæmum veðrum gerði
fólk þetta oft svo að hendur þeirra
myndu ekki kala á isilögðum
skiðabindinganna. Konan hélt
dyrunum opnum og Robert sá
manninn með Afriku-húfuna koma
út um dyrnar. En hann kom ekki
út eins og liitt fólkið; liann hopp-
aði á einum fæti. Hinn fóturinn
hafði verið höggvinn af um mitt
læri. Til að halda jafnvægi hafði
hann smásldði fest neðan á skíða-
stafina i stað gaddanna, sem venju-
lega eru neðan á sldðastöfum.
Robert liafði séð marga einfætta
skiðamenn áður; uppgjafahermenn
úr hersveitum Hitlers, sem liöfðu
neitað að láta limlestingar þær,
sem þeir höfðu orðið fyrir svifta
sig skíðaíþróttinni, sem þeir elsk-
uðu, og hann hafði dáðst að hug-
prýði þeirra og hæfni. En liann
fann ekki til neinnar aðdáunar yfir
maninum með afrisku liúfuna. Það
eina, sem komst að í liuga hans var
sár sviði yfir að liafa á siðasta
augnabliki verið sviftur því, sem
lionum með réttu bar og sem hann
vildi svo ákaflega og þurfti svo
mikils, þvi að hann vissi, að hann
myndi ekki vera nógu andlega
sterkur til að myrða eða limlesta
mann, sem limlestur var fyrir, að
refsa einliverjum, sem þegar hafði
verið refsað. Hann fyrirleit sjálfan
sig fyrir veikleika sinn. Nú skildi
liann dálitið annað. Hann skildi,
hvers vegna Þjóðverjinn liafði svo
fyrirferðarmikið lýst yfir fyrirlitn-
ingu sinni á Amerikönum. Skertur
fótur lians tryggði honum öryggi
hins bæklaða manns; i trausti þess
naut hann kaldhæðninnar til fulln-
ustu.
Robert horfði á eftir manninum
fara yfir snjóinn; hann liallaði sér
yfir skiðastafina með barnaskíð-
unum á endanum. Tvisvar eða
þrisvar sinnum, er konan og mað-
urinn kom að liæð fór konan þegj-
VIKAN 23. tbl. —