Vikan - 19.09.1963, Síða 18
Þegar okkur ber að garði, að Garði við Mývatn, mætum við Starra
bónda Björgvinssyni, þar sem hann er á leið til mjalta út í fjós.
larri er bróðursonur Þuru í Garði, sem nú er nýlátin. Kona Starra
er Jakobína Sigurðardóttir, landsþekkt skáldkona, ættuð af Vest-
fjörðum. Þau hjónin eiga 4 börn sem eru á aldrinum 4—13 ára.
Starri býður okkur til stofu, en þar hittum við föður hans, Björg-
vin, sem margir munu kannast við. Björgvin er landsþekktur maður
fyrir þær svaðilfarir sem hann lenti í er hann fór með Fjalla-Bensa,
í eftirleitir. Björgvin er afar fastur fyrir í skoðunum og lætur ekki
sinn hlut í nokkru máli fyrr en í fulla hnefana.
Hann er góður fulltrúi eldri kynslóðarinnar í landinu, alinn upp
í einni fegurstu sveit landsins, á tímum mikilla atburða og byltingar
í búnaðar- og lifnaðarháttum. Sumir mundu vafalaust segja að
Björgvin væri sérvitur, vegna sérstæðra skoðana sinna á ýmsum
hlutum, en aðrir mundu telja þær bera vott um sjálfstæða hugsun