Vikan


Vikan - 19.09.1963, Qupperneq 31

Vikan - 19.09.1963, Qupperneq 31
ERFIÐ HREINSUN ÞARFNAST VIM Vim gerir potta, pönnur, vaska, eldavélar, veggflísar og hvað sem er, sem nytt. Fljótvirkt — fitublettir hverfa á svipstundu. Fjarlægir prálát óhreinindi. Drepur sóttkveikjur. Ilmandi Vim — endurnýjar allt. X-V 556/lC OiW7-5D eiginlega orðið? Það hafði svo sem ekki verið sérstaklega ham- ingjusamt, og mér hafði stund- um flogið í hug, einkum þegar ég var í félagsskap einliverra lirífandi kvenna, að ég sýndi mikla fórnfýsi með þvi að lialda áfram að lifa með Jenny. En það hugarflug náði aldrei langt. Ein kona hreif mig ef til vill með háttprýði sinni, Önnur incð félagslyndi sínu. En ég missti alltaf áhugann, þvi slíkar kon- ur eru alltof sjálfráðar. Aðeins ein kona gat geðjast mér, þrátt fyrir allar takmark- anir, og það var Jenny. Vissu- lega var hún hvorki sérlega hríf- andi né glaðvær. Ég bar langt af henni hvað snerti vitsmuni, listrænan skilning og félags- þroska. Hún var taugaóstyrk, hræðslugjörn og yfirleitt held- ur leiðinleg. Samt sem áður fullnægði lnin þörfum mínum að því marki, að ég gat ekki án hennar verið. Ég trommaði með fingrunum á borðplötuna og hugsaði mitt ráð. Síðan ákvað ég að snúa aftur til smáhýsisins. Á leið- inni ihugaði ég málið betur. Ég kærði mig ekki um að Jenny kæmist að því að ég tortryggði Gil. Alla okkar hjónabandstið hafði ég komið fram sem imynd sjálfsöryggisins. Þvi kom ekki til greina að láta nokkurn ó- styrk í ljós. Þess í stað hallaðist ég að annarri áætlun. Á liverju ári, siðla um sumarið, var ég vanur að bregða mér til Evrópu að afla listmuna fyrir fyrirtækið. Eftir fyrstu ferð mína austur, hafði Jenny hugsað sér að verða mér samferða næsta ár, en mér tókst að fá hana til að fresta því þangað til árið þar á eftir og svo ár frá ári. Ég ákvað að breyta áætlunum mínum varðandi starfið, fara austur úm tveggja vikna skeið og taka Jenny með mér. Hún myndi verða fegin og þar með var komið tækifæri til að binda endi á kunningsskap hennar við Gil. Þegar til Evrópu kæmi, myndi ég svo koma henni fyrir á einhverju hvíldarhóteli, þar sem hún gæti dvalið meðan ég ferðaðist um. Ég komst á leiðarenda fyrir miðnætti. Jenny var eklci heima, svo ég hélt áfram upp að húsi Gils. Þau sátu í bókaherberginu, reyktu vindlinga og ræddust við i lágum hljóðum. Þau urðu auð- vitað liissa þegar ég kom. Mér vafðist tunga um tönn, en uml- aði eitthvað um að hitinn i borg- inni væri að verða illþolandi. Gil bauð mér að drekka en ég afþakkaði. Mér leið óþægilega, rétt eins og ég væri boðflenna. Ég sagði að það væri orðið nokkuð áliðið, svo að Jenny bauð Gil góða nótt og við geng- um niðureftir til okkar. Á leiðinni kvaðst ég hafa dá- samlegar fréttir að segja henni, og væru þær raunverulega á- stæðan til þess, að ég hefði kom- ið svo fljótt aftur. Við námum staðar i myrkrinu í anddyrinu og ég sagði henni að ég þyrfti að skreppa i tveggja vikna ferð til Evrópu. „Og mér tókst að koma þvi svo fyrir, að ég get tekið þig með mér.“ Hún sagði ekkert að heldur og við fórum inn. Mér féll lirifn- ingarleysi hennar þungt. Aug- ljóst var, að Gil hafði náð sterk- um tökum á henni. Morguninn eftir sagði Jenny mér, að Gil hefði boðið okkur til hófs í New York i næstu viku. Tilefnið var, að ljúka átti sýningu á frægasta leikriti hans, sem hafði gengið á Broadway í þrjú ár og síðan fjögur ár annarsstaðar, en var nú komið til New York aftur, þar sem átti að sýna það nokkrum sinn- um á ný. Það átti að veita ó- spart i liófinu, sem haldið skyldi af tilefni lokasýningunnar. Vissulega langaði mig ekkert til að fara. Ég kærði mig ekkert um að Jenny sæi Gil i hans eigin glæsilega hóp, þar sem ég hlaut að verða utangátta. En ég ákvað að afþakka ekki. Ég taldi mig geta treyst á óframfærni Jennyar. „Ég er hræddur um að þú verðir ekki í essinu þinu þarna,“ sagði ég. „Þið Gil eruð orðnir svo nánir vinir, að liann vill áreiðanlega hafa okkur hjá sér í leikhúsinu og lika við borðið. Og auk þess áttu engan kvöldkjól." Ég hristi höfuðið dapurlega. Hún var farin að sýna merki um taugaóstyrk, og hún sagði: „Ég ætlaði að hringja til þin i dag og segja þér að ég ætlaði í borgina. En ég get alveg eins fárið seinna i vikunni. Dagur- á-ný er að láta sauma mér kvöld- kjól.“ Ég gerði aðra tilraun. „Jenny,“ sagði ég, „ég vildi helzt ekki minnast á þetta, en þú getur varla tekið þátt í slíku sam- sæti og setið þegjandi allan tim- ann. Gil ætlaðist áreiðanlega til að þú talir við þau, og —“. Ég þagnaði í miðri setningu og gaf henni gætur. Hún horfði stöðugt niður á hendur sér. Svo sagði hún hægt og kyrrlátlega: „Engu að siður - 31 VIKAN 38. tbl.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.