Vikan


Vikan - 17.12.1964, Page 22

Vikan - 17.12.1964, Page 22
Texti, Ijóð og fönlist eftir Leslie Bricusse og Anthony Newley V "'Ktí ’ 22 Fyrir rúmum þrem árum var frumsýndur söngleikur í Queens leikhúsinu í London. Söngleikurinn varð þegar í stað afburða vinsæll og söngvar úr honum hafa síðan borizt um allan heim. Hér á íslandi hafa margir þeirra orðið kunnir, enda oft heyrzt í útvarpinu og margir orðið mjög vinsælir, eins og t.d. „What kind of fool am I?" (Hverskonar bjálfi er ég?), „Gonna build a mountain" (Gera fjall úr þúfu), „Malenkí maltsík", „Nagg, nagg, nagg", „Múmbó júmbó" og margir fleiri. Þessi leikur heitir nú á íslenzku „Stöðvið heiminn — hér fer ég út" og verður jólaleikur Þjóðleikhúss- ins í ár, alveg vafalauSt við mikl- ar vinsældir almennings. í stuttum en hnitmiðuðum lát- bragssyrpum sjáum við hann vaxa úr grasi og verða fullorð- inn mann, sem loks fær atvinnu í verksmiðju við að framreiða te handa verksmiðjufólkinu. Þar kynnist hann Eví, dóttur for- stjórans, og verður ástfanginn af henni: '„Þegar þú talar, er það eins og englakór". Eví verð- ur barnshafandi og þau gift- ast með tregu samþykki for- stjórans, sem síðan hjálpar tengdasyninum stig af stigi upp metorðastigann, enda er Litli- karl duglegur bísnessmaður og Leikurinn er nokkurskonar sam- bland söngleiks, leikrits, látbragðs- leiks og balletts, og útfærður á nýtízkulegan hátt og einfaldan. Höfundur forðast allar langorðar og ónauðsynlegar útskýringar fyrir sjón og heyrn. Leiktjöldin eru þau sömu allan leikinn og búningar sömuleiðis, en samt sér maður ævi og feril herra Litlakarls allt frá fæðingu til dauða eins Ijóslega og skýrt og hefði maður lesið ævi- sögu hans í þrem bindum. Aðal- atriðin eru dregin fram með ein- földum hreyfingum og nokkrum orðum, krydduðum með léttum og heillandi söngvum, en boðskapur leiksins er í rauninni biturt háð á 'yfirborðsmennsku og sýndarleik fyrirmanna nútímans. Litlikarl er í sjálfu sér ósköp venjulegur maður, eins og fjöldi manna hefur og mun ávallt verða — reynir að ota sínum tota til að komast áfram í líf- inu, verða maður með mönn- um og geta státað af einhverju. Oftast vill það fara svo að ver- aldlegur hagnaður fæst aðeins með því að fórna einhverju öðru eða öðrum, og þá kannske helzt þeim, sem manni þykir raunverulega vænzt um. Við fylgjumst með herra Litlakarli allt frá fæðingu og — VIKAN 51. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.