Vikan - 03.06.1965, Qupperneq 15
Danmörk
vann
Sænskt blað hélt því fram kinnroðalaust fyrir
nokkru, að þar í landi væru fegurstu kvinnur
Skandinavíu. Ekstrablaðið í Danmörku svaraði auð-
vitað um hæl og stóð á því fastar en fótunum, að
það væri nú hreint ekki svo. Þessu lauk með því
að Danir og Svíar fóru í keppni og tefldi hvor
fram sínu fegursta. Danskur og sænskur ljósmynd-
ari fengu það starf að finna flikkurnar og mynda
þær, sem síðan voru birtar í blöðunum og svo
voru lesendur látnir um að dæma.
Hin danska Jytte Klindrup fór með sigur af
hólmi, en Svíar urðu að láta sér lynda að segja
„hún er vissulega sænsk að sjá“. Myndin sýnir
blaðamann frá sænska blaðinu, þar sem hann veif-
ar hvítu flaggi til öryggis um að nú sé búið að
grafa stríðsöxina.
Eigum við að bjóða þeim út.... ?
Fegurflardrottning
Finnlands
Stærsta Bítlahljómsveitin
Bostella
Það er nýjasti dansinn, sem heitir Bostella, og að sjálfsögðu
aðeins vegna þess að hann heitir Honore Bostel, sá sem fann hann
upp. Dansinn breiðist óðfluga út um allt, og myndin er tekin í
Svíþjóð, þar sem hann er orðinn hreinasta plága, auðvitað.
Aðalatriðið í dansinum er að klappa saman höndunum fyrir
ofan höfuð, síðan leggjast pörin á kné, — og loks leggjast þau
alveg marflöt á gólfið. Þetta kvað vera svakalega gaman, og dans-
inum er spáð glæsilegri og bjartri framtíð.
Hún heitir „Köbenhavns disharmoniske Symphoniorkester" og við gefumst
upp á að þýða það á íslenzku. Það er heldur ekki aðalatriðið, heldur hitt
að þar eru samankomnar fjórar bítlahljómsveitir, „The Lennons“, „The
Needles“, „The Rollings" og The Black Beats“. Þær hafa slegið sér saman
og mynda nú heimsins stærstu bítlahljómsveit.
Músikin sem þeir framleiða, er oft — meðal ekki-aðdáenda — kölluð
„gaddavírsgarg", og það eru þeir einmitt að sýna á myndinni. Piltarnir
hafa stillt sér upp fyrir utan Kristjánsborg í Kaupmannahöfn og mynda
gaddavír með höndunum.
pau tíðindi berast frá Finnlandl, að þar hafi ungfrú Virpi
Miettinen verið kjörin fegurst allra kvenna þar í ár. Virpi
er 18 ára göxnul. Vinstra megin við liana á myndinni
sjáum við þá næstfegurstu, Estri Östring og hinumegln
auðvltað númcr þrjú: Raija Salminen.
Síðan síðast
VIKAN 22. tbl. Jg