Vikan

Tölublað

Vikan - 15.07.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 15.07.1965, Blaðsíða 32
ELDHÚS RÚLLAN HÚSMÆÐUR! 1001, eldhúsrúllan er fram- leidd sérstaklega fyrir notkun í eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur viö dagleg störf. ELDHUSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI * , i Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkia (21. marz — 20. apríl): Ýmislegt í einkalífinu gengur ekki eins og bezt verður á kosið, en þú mátt ekki gera þér neina rellu út af því. Þetta er tímabundið ástand, og þú hefur verðugri verkefnum að sinna en vorkenna sjálfum þér. Nautsmerkið (21. apríi — 21. maí): Þú ert fremur þreyttur á tilverunni og starfi þínu. Þú skalt leggja þið fram við að leysa störf þín sam- vizkusamlega af hendi. Ung persóna verður til að draga nokkuð úr tilbreytingarleysi hversdagslífsins. Tviburamerkið (22. maí — 21. júní): Maður nokkur sem þú þekkir litillega sýnir þér grunsamlega mikinn áhuga. Gættu allra orða og athafna í návist hans og gakktu ekki í nokkurs- konar bandalag með honum. Heillatölur eru 4 og 9. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí); Akveðin persóna á vinnustað þínum sýnir glögg karaktereinkenni sem gera þér mjög gramt í geði. Þú verður þátttakandi £ ferðalagi þar sem troðnar verða ókunnar slóðir. Vertu ekki heima á mánu- dagskvöld. Ljónsmcrkið (24. júlí — 23. ágúst): Einhver reynir mjög til að fá þig til að skipta um skoðanir á ákveðnu máli, en ef þú stendur þig vel gæti sá hinn sami orðið ágætur liðsmaður þinn. Þú færð ekki svarið um helgina sem þú væntir. I Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september); Þú færð að súpa seyðið af löngu liðnum atburðum og mun það verða til þess að þú verður að breyta nokkuð út af laginu. Kunningi þinn reynir að hafa samband við þig en einhvernveginn farið þið alltaf HT? á mis. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Maður sem þú hefur nýlega kynnzt sýnir þér ótvi- rætt að honum er ekki um nærveru þfna gefið. Þú vinnur dagstund eða svo við að aðstoða einn kunn- ingja þinn við erfitt verk. Farðu eitthvað um helg- ina til að skemmta þér. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember). Vonbrigði þín stafa aðallega af því að þú situr auð- um höndum, þú getur ekki ætlazt til að fólk taki eftir þér ef þú lætur sem þú takir ekki eftir því. Reyndu að vera viðmótsþýðari og sýna oftar grænt ljós. © Bogmannsmerkið 23. nóvember — 21. desember): Þú veldur ákveðinni persónu nokkrum áhyggjum og leiðindum. Þú ættir að forðast að drepa á mál sem vakið gætu deilur. Vinkona þin leitar ráða hjá þér og skaltu varast að taka á nokkurn hátt fram fyrir hendurnar á henni. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Unglingur í fjölskyldu þinni leitar oft á náðir þín- ar í frítímum sínum. Reyndu eins og þú getur að vera félagi hans. Þér berst bréf sem flytur þér boð sem koma þér talsvert á óvart. Vatnsberamcrkið (21. janúar — 19. febrúar): Til að svíkjast undan skyldum þínum berðu fyrir þig smá lygi sem þó gæti stækkað í meðförum ill- gjarnra manna. Leggðu þig allan fram við verk þín og láttu ekkert koma þér úr jafnvægi, þótt á þig verði ráðizt. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Eldri maður ætlast tii mikillar fulikomnunar þinn- ar á ákveðnu sviði. Notaðu fritima þina vel og bættu það sem þér finnst tilfinnanlega vanta á þekkingu þína. Þú ferð í ferðalag um óbyggðar slóðir. 22 VIKAN 28. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.