Vikan

Eksemplar

Vikan - 19.08.1965, Side 3

Vikan - 19.08.1965, Side 3
Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.). Blaðamcnn: Guð- mundur Karlsson, Sigurður Hreiðar. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson. Auglýsingar: Ásta Bjarnadóttir. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Simar: 35320, 35321, 35322, 35323. Pósthólf 533. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 36720. Dreifingar- stjóri: Óskar Karlsson. Verð í lausasölu kr. 25. Áskrift- arverð er 300 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram. Prentun; Hilmir h.f. Myndamót: Rafgraf h.f. VÖGGUVÍSA FYRIR MORÐINGJANN, fimmti hluti þessarar hörkuspennandi framhaldssögu Bls. 4 PÓSTURINN ........................... Bls. 6 SAMKEPPNI UM ÁRÓÐURSMYND GEGN REYKING- UM, grein og myndir frá teiknisamkeppni, sem skólarnir tóku þátt ! ............... Bls. 8 VIÐ VILJUM VERA VEIKARI AÐILINN, viðtal við Andreu Oddsteinsdóttur um kurteisi, þéringar og framkomu yfirleitt .................. Bls. 10 INTERMEZZO, smás. eftir Kerstin Nilsson Bls. 12 SÍÐAN SÍÐAST, fréttir úr víðri veröld . . Bls. 14 ANGELIQUE, bezta framhaldssaga, sem komið hef- ur í Vikunni......................... Bls. 16 HVE LANGT NÆR ÞOLINMÆÐI NÁUNGANS? Vikan hefur gert út leiðangur í því skyni að prófa, hve þolinmóðir reykvískir vegfarendur eru . . Bls. 18 FÍFLDJARFUR FLÓTTI UNDIR BERLÍNARMÚRINN, þýdd grein um ævintýralegan flótta frá Austur- til Vestur-Berlínar ................. Bls. 22 EINHLEYP KONA í NÚTÍMAÞJÓÐFÉLAGI, grein um erfiðleika piparmeyjarinnar nú á dögum Bls. 24 ÓÞÆGILEGT ÁSTAND, smás. eftir Burgess Bls. 25 VIÐ ÁTTUM AÐ SEGJA HEIL HITLER í ÓPERUNNI, Einar Kristjánsson heldur áfram að rifja upp endur- rriinningar sínar. Þetta er annar hlutinn Bls. 26 KROSSGÁTAN........................... Bls. 29 KVENNAEFNI .......................... Bls. 30 FORSÍÐAN ViS gerum fastlega ráð fyrir, að stúlkan á forsíð- unni sé sammála Andreu Oddsteinsdóttur, sem seg- ir í viðtali hér í blaðinu fyrir hönd kvenfólksins: — Við viljum vera veikari aðilinn í samskiptum við karlmennina. Ef til vill er forsíðustúlkan líka á sama máli um þéringar, kurteisi á almannafæri, hvernig á að halda uppi samræðum við dömu á dansgólf- inu, og fleiri atriði, sem frú Andrea ræðir í sama við- tali. Kannski hefur forsíðustúlkan okkar líka farið í tízkuskóia. I NÆSTA BLAÐI ÉG BRENN í SKINNINU EFTIR AÐ MÁLA EITTHVAÐ HRYLLILEGT, viðtal við Karólínu Lárusdóttur mynd- listarnema og myndir af verkum hennar. EINHLEYP KONA í NÚTÍMAÞJÓÐFÉLAGI, síðari hluti greinarinnar um stöðu piparmeyjarinnar í þjóð- félaginu. HVERSU LANGT Á STARFSSVIÐ GIFTRAR KONU AÐ NÁ? Vikan hefur gengizt fyrir skoðanakönnun með- al kvenna um það, hvort æskilegt sé, að húsmóð- irin vinni úti, jafnframt heimilisstörfunum. MÉR FINNST ÞAÐ ÐÁSAMLEGT, smásaga. ANGELIQUE, framhaldssaga. ÁSTIN ER SKÆÐASTA VOPNIÐ, frásögn af frægustu kvennjósnurum sögunnar. LÍFSSKILYRÐI ÁSTARINNAR í JAPAN, þýdd grein um venjur og siði varðandi ástina í Japan. ÍSLENDINGAR FERÐAST MEIRA EN NOKKRU SINNI FYRR, grein um ferðalög og fyrirgreiðslu í ýmsum Evrópulöndum. VÖGGUVÍSA FYRIR MORÐINGJANN, sjötti hluti framhaldssögunnar. SUNGIÐ í SPRENGJUREGNINU, þriðji hluti af endur- minningum Einars Kristjánssonar óperusöngvara. í ÞESSARI VIKU BRÉF FRÁ RITSTJÓRNtNNI Við lifum á öld hraðans og taugaveiklun er ein- hver algengasti sjúkdómur í okkar þjóðfélagi, eins og víðar. Á íþráttavellina flykkist múgur og marg- menni til þess að sjá hver geti hlaupið á skemmst- um tíma tiltekna vegalengd, það þykir ekki bíll með bilum, sem ekki kemst yfir hundrað milna hraða á klukkustund, flugvélaframleiðendur eru í sifelldu kapphlaupi við að gera vélarnar hraðfleyg- ari og stórskipaeigendur eru hættir að keppa um „Bláa bandið" í Atlantshafssiglingunum. „Það þýð- ir ekkert að keppa við þoturnar", segja þeir. „Menn hafa ekki orðið tíma til að ferðast með skipum". Það er talsvert til í þessu, þótt ef til vill sé full djúpt í árinni tekið. Gamla máltækið um að þolin- mæðin vinni allar þrautir er orðið úrelt. Það er hrað- inn, sem hefur meira að segja en þolinmæðin nú til dags. Sá, sem er fljótur að átta sig á hlutunum, ber iðulega meira úr býtum en hinn, sem bíður þolin- móður. Þrátt fyrir það viljum við halda því fram, að það sé kostur að hafa til að bera þolinmæði og taugaró, og til þess að athuga nokkuð nánar hve algengt það er, að menn hér um slóðir séu bún- ir þeim kosti, sendum við menn út af örkinni hér á dögunum. Árangur þeirrar ferðar geta lesendur svo kynnt sér nánar hér í blaðinu. HÚMOR í VIKUBYRJUN ' ■ " 1... ’:■■'••' i .................................. "■' • ■■ ■;; ..vwwöctt ;-'.t xffr KpaŒpi Ítt* :-"'• ■*»> i-l>V>V><<'< << < 1 >X\V>«1 4\.;<»'« \mm Ui ’■ ■ : . ú".\x\Vv*<iW l ■•>-\<>">.V<y.':>' >>»..>;. .V 4'" •». •■.'■>'"•'•"• L\V«<tttí>,'íW .»«V. •-"-■<> *yi "v»\» UxWttttt.'.'.ttvW VIKAN 33. tbl. g

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.