Vikan - 19.08.1965, Page 6
ULTRfl+LfiSH Mascara
TIL AÐ LENGJA OG LENGJA ENNÞÁ
MEIR SILKIMJOK AUGNAHAR.
ULTRA*LASH er fyrsti augnháraliturinn sem
Jengir og þéttir augnahárin án þess að gera
þau stíf. Þessi einstaka efnablanda lengir án
gerviþráða. Allt sem þér þurfið að gera er að
bera ULTRA*LASH á með hinum hentuga
TAPER-BRU9H sem byggir upp um leið og
hann litar hvert augnhár. Ekkert auka erfiði
og ekkert ergelsi út af gljáalausum og klístr-
uðum augnhárum. ULTRA*LASH hleypur ekki
í kekki, né skilur eftir klessur eða bletti. Þetta
er fyrsta skaðlausa efnið sem lengir og þéttir
augnhárin, þolir vatn og er lyktarlaust. Sér-
staklega auðvelt að hreinsa á nokkrum sekúnd-
um með Maybelline Mascara Remover. Kemur
í þrem góðum litum: VELVET BLACK, SABLE
BROWN og MIDNIGHT BLUE.
olltaf það hreinasfa og bezta fyrir fegurð augnanna:
Húsgdjiiiiveriliiiiin SEDRUS
auglýsir
Einsmanns svefnsófi — lengd 185 cm — breidd 73
cm, sængurfatageymsla í baki. Stólar fóst í stíl
við sófann. (Fjórar aðrar gerðir einnig til). Við
erum með mjög hentug húsgögn í litlar íbúðir og
einstaklingsherbergi. Athugið, flestar þær gerðir
af húsgögnum sem við höfum, eru aðeins fram-
leidd af okkur.
Húsgagnaverzlunin Sedrus
Hverfisgötu 50. — Sími 18830.
Q VIKAN 33. 'tW.
RÁÐ VIÐ TIMBRINU.
Kæri Póstur!
Ég er einn af þeim ógæfusömu
mönnum, sem sífellt þjást af óg-
urlegum timburmönnum hvern
einasta dag eftir að ég hef bragð-
að vín. Er virkilega ekki búið að
finna upp neitt við þessu nú á
þessum tímum vísindanna og
tækninnar. f guðanna bænum
segðu mér það, ef þú veizt það.
Timbraður.
Jú ég þekki eitt ágætis ráð,
sem ég notaði sjálfur í þessum
kringumstæðum. Ég hætti að
drekka.
ER RÉTT AÐ VARA HANA VIÐ?
Kæra Vika!
Þar sem ég vinn, er stúlka ut-
an af landi. Hún hefur verið mik-
ið með strák héðan úr bænum,
sem hefur vægast sagt ekki gott
orð á sér, hefur lent í sínu af
hverju. Þetta sér hún ekki, og
allt útlit er fyrir trúlofun eins
og málin standa. Hann hefur far-
ið með henni heim til foreldra
hennar og þau urðu víst álíka
hrifin af honum og hún sjálf. Við
sem vinnum með henni erum eig-
inlega í rusli yfir þessu. Ef hún
fer nú að flana út í eitthvað með
manni af þessari tegund. Við höf-
um reynt að minnast á hann við
hana smávegis, það er að segja,
við höfum spurt hana, hvar þau
hafi kynnzt o.s.frv. og það er
sýnilegt, að hún veit ekkert um
fortíð hans. Þetta er ákaflega
geðug og elskuleg stúlka, sem öll-
um líkar vel við. Það er þess
vegna, sem við viljum reyna að
bjarga henni frá þessu. Finnst
þér ekki, að við eigum að tala
við hana og vara hana við því
að binda sig slíkum manni?
Starfssystur.
Nei, það finnst mér ekki að þið
ættuð að gera. Til að mynda vit-
ið þið ekki, hvað hún veit um
hann. Það getur vel átt sér stað,
að hann hafi lagt spilin á borðið
og treysti því, að með hennar til-
komu komist hann á réttan kjöl.
En hafi hann ekkert sagt henni
og hún treystir honum, sé ég
ekki, að þið getið neitt gert í
þessu máli nema þá til hins verra.
Og fyrir utan þetta. Eruð þið
vissar um, að allt, sem þið hafið
heyrt, sé heilagur sannleikur.
Gæti þetta ekki verið svipað
sögunni um f jöðrina og hænurnar
fimm? Svo ættu menn ekki að
dæma aðra eftir þeim tíma, sem
liðinn er, heldur reyna að finna
þá út eftir núverandi tíma. Það,
sem mér finnst, að þið ættuð að
gera, er að fylgjast með sam-
bandinu milli þeirra og vera al-
úðlegar við hana, ef hún skyldi
einhvern tímann sjá hinar slæmu
hliðar hans, sem ég ætla nú að
vona að séu ekki svo slæmar
þrátt fyrir allt.
MISSKILNINGUR.
Kæri Póstur!
Fyrir nokkru síðan fengum við
nýja nágranna, ung hjón. Við
hjónin erum sjálf á bezta aldri
og það tókst með okkur vinátta.
Þau eiga tvö böm, dreng og telpu.
Svo var það um daginn, þeg-
ar ég var hjá þeim, að talið barst
að börnunum og ég sagði, að mér
fyndist telpan vera lík hvorugu
þeirra. Nú nýlega fékk ég að
vita hjá öðrum, að konan eign-
aðist telpuna áður en þau gift-
ust. Mér finnst það ákaflega leið-
inlegt að hafa orðið til að minn-
ast á þetta. Þau hafa getað tekið
þetta sem rætni frá minni hálfu,
í það minnsta er eins og þau hafi
forðazt okkur síðan. Hvað á ég
að gera í þessu? Á ég að tala við
þau um þetta eða bíða og sjá
hvort það jafnar sig aftur.Gréta.
Ég er hræddur um að það geri
aðeins illt verra að fara að minn-
ast aftur á þetta við þau hjónin.
Eins og málin koma mér fyrir
sjónir, sé ég ekki ástæðu til ann-
ars en þú komir alveg eðlilega
fram við þau og eins og ekkert
hafi í skorizt. Þá held ég, að þessi
misskilningur hljóti að verða úr
sögunni. Ef þau halda virkilega,
að fólk segi þetta af illgirni eða
rætni, hljóta þau að hafa mjög
slæma reynslu af slíku. Ef þau
ekki jafna sig á þessu, ætla ég
að vona, að þau sjái þessar línur
í blaðinu og að augu þeirra ljúk-
ist upp fyrir því, að þú sagðir
þetta ekki í illum tilgangi.
ÞÆR FÉLLU FYRIR HONUM.
Kæra Vika!
Við erum hérna tvær vinkon-
ur, sem lesum þig alltaf. Við
þökkum þér fyrir framhaldssög-
una Angelique og kóngurinn, sem
er mjög góð.
Við sáum hinn skemmtilega
leik Ævintýri á gönguför og féll-