Vikan

Tölublað

Vikan - 19.08.1965, Blaðsíða 18

Vikan - 19.08.1965, Blaðsíða 18
íslendingar hafa aldrei fengið orð, fyrir að vera þolinmóðir í viðskiptum sínum við aðra. Hvernig móttökur fengju menn, ef þeir færu niður í bæ og svifu á bláókunnugan náungann um hvers kyns upplýsingar: Hvað klukkan væri, hvort hann ætti eld, hvort mætti bjóða honum i bió eða jafnvel biðja hann um að fara inn i banka og skipta seðtum. Hvernig móttöknr gœtuð þið hugsað ykkur að fá? Sjálf- sagt nokkuð misjafnar eftir at- vikum. Það tekur það varla neinn óstinnt upp, þótt hann sé spnrður hvað klukkan sé, en þegar farið cr að spyrja fleiri spnrninga á eftir og jafnvel að halda mönnum uppi á snakki; þá missa margir þolinmæðina og þeim getur jafnvel hitnað í hamsi. Og hvað ef viðkomandi er að flýta sér í strœtó og sér hann einmitt renna i burtu, meðan bláókunnuyt fólk er að tefja hann með. einhverju .vitleysishjali? Ætli það fari þá ekki að verða heldur lítið tir langlundargeðinu hjá fólki. Við ákváðum að reyna hversu háttað vœri þolinmæði íslendinga, hve mikið þyrfti til að fólk ryki burtu í ftissi. Og einn góðan veðurdag skruppum við niður í miðbæ í þessu augna- miði. Veður var hið bezta þenn- an dag og um kvöldið átti að fara fram landsleikur milli Dana og íslendinga. Við tókum okkur fyrst stöðn niðri í Lækjargötu á móts við B.S.R.. Ljósmyndar- inn var búinn að setja aðdráttar- linsuna á vélina og búinn að taka sér stöðu, svo að hann sæist ekki af væntanlegum viðtalend- um. Svo vék ég mér að manni, sem kom gangandi eftir gang- stéttinni og tók hann tali: 1. „Getið þér sagt mér hvað klukkan er?“ Hann varð alveg undr- andi — Þér getið víst ekki sagt mér hvað klukkan er? Án þess að stanza leit hann á úrið og svaraði: — Vantar 5 mínútur í þrjú. En ég liafði ekki liugsað mér að láta manninn sleppa og kallaði upp: — Nei, mikið er þetta fallegt úr, lof mér að sjá betur. Hann stanzaði rétt sem snöggvast og furðusvipur kom á hann, svo hváði hann og liélt leiðar sinnar. Einum tvisvar eða þrisvar sinnum leit hann um öxl i þögulli forundr- an yfir þessum sveitamanni, sem vildi fá að sjá úrið lians. 2. En mátti ekki vera að því að spjalla Iengur, því að hann var að missa af vagninum. Einn, sem var aS vestan Svo kom sá næsti gangandi. Það var ósköp rólegur maður að sjá. Ég gekk að lionum og spurði, hvort hann gæti gefið mér eld, ég væri alveg eld- spýtnalaus. Jú, hann hélt það nú, dró upp stokk og kveikti í síga- rettu fyrir mig. -—Það má víst ekki bjóða yður sígarettu? spurði ég. Nei, hann vildi ekki síga- rettu, og það var sama, hvernig ég reyndi að troða inn á hann tóbaki, hann vildi það alls ekki. — Mikið kannast ég annars vel við yður, sagði ég svo, þér eruð þó ekki að vestan? sagði ég til að segja eitthvað. Jú, hann kvaðst vera úr Djúpinu. Svo leit hann á klukkuna, og ég spurði, hvort hann væri að flýta sér. Já, heldur var hann það. — Já það eru margir að flýta sér nú á dögum, bætti ég við. — Þér ætlið auðvitað á völlinn i kvöld? Jú, hann ætlaði á völlinn, en mátti ekki vera að því að ræða neitt við mig um væntanleg úr- slit, því að vagninn var alveg að renna. Hann gekk burt án þess að kveðja. Vonandi, að Vest- mannaeyingum verði eitthvað úr hvalkjötinu Næsti maður var líka við B.S.R. og fór mjög hægt yfir. — Mikið er gott veður i dag, sagði ég við hann upp úr þurru. Hann stanzaði og tók undir það; það væri alveg fyrirtak. — Þér eruð ekki héðan úr bænum, sagði ég. Nei, nei. Hann kvaðst vera frá Bolungarvík, en vera fluttur þaðan fyrir nokkru og vinna í áburðarverksmiðjunni. — Og er ekki nóg vinna þar? hélt ég áfram. Jú, það var alveg nóg að gera þar. — Er þetta ekki mikið uppgangspláss, Bol- ungarvík? spurði ég. Alveg nóg að- gera þar, svaraði hann og var alltaf jafn rólegur í svörum. Því næst spurði ég hann, hvort hann hefði heyrt um alla hval- 3. „Þér hafið ekki heyrt um alla hvalina í Vestmannaeyjum?“ ina, sem þeir hefðu rekið á land í Vestmannaeyjum. Nei, það hafði hann ekki heyrt. (sem ekki var von). Já það voru eitt- hvað tvöhundruð stykki, sem þeir komu á land, sagði ég. — Nú einmitt já, það er vonandi, að þeim verði eitthvað úr þessu, svaraði hann á móti og var ekk- ert nema kurteisin við mig. Ég þóttist nú vera fullviss um, að þolinmæði þessa manns væru engin takmörk sett, þakkaði hon- um alúðlega fyrir og kvaddi liann síðan. En nú voru menn farnir að gjóta auga til ljósmyndarans, svo að okkur þótti vissara að flytja okkur yfir á aðrar vig- stöðvar. 4. „En reykið þér þá nokkurn tímann vindla?“ Og reykti Camel aS staðaldri Úti í Austurstræti var verið að selja aðgöngumiða á fyrr nefndan landsleik, og þar var margt um manninn. Ég vatt mér að einum og spurði, hvort hann gæti gefið mér eld. Já, hann dró upp stokk og rétti mér. — Ég hefði nú boðið yður sígarettu, ef þér væruð ekki að reykja, sagði ég við hann. — Já þetta er allt í lagi, svaraði hann. — Annars reykið þér kannske ekki Chesterfield? bætti ég við. Jú hann kvaðst reykja Chester- field en hann reykti nú Camel að staðaldri. — En þér eruð með Salem núna, sagði ég. — Já það Jg VIKAN 33. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.