Vikan

Eksemplar

Vikan - 19.08.1965, Side 47

Vikan - 19.08.1965, Side 47
o Á þessum kjól er töluvert verk, því að efnið er gert eins og gömlu, ensku klútateppin, þ. e. a. s. pappi lagður undir sexhyrningana, hvern fyrir sig og hliðarnar svo saumaðar saman, pappinn svo losaður frá á eftir, auðvitað. ■O Hér er blússan einlit og pilsið úr ferhyrndum köflum af 5 tegundum, sem eiga vel saman. Hér eru klútarnir af misjafnri > stærð og lögun. Gæta verður þess, að hafa eitthvert samræmi í niður- röðuninni. Stórir tíglar í þrem litum. >> Þessir kjólar koma beint frá París, og nú skuluð þið byrja að róta í tuskupokan- um. Flestir muna eftir klútateppunum hennar ömmu sinnar. Hér eru klút- arnir hafnir til enn meiri vegs og virðingar og not- aðir í tízkukjóla. Það þarf varla að taka það fram, að tuskurnar verða allar að vera af svipaðri efnisgerð - ekki er hægt að nota saman þunntog þykkt, gróft og fíngert. Sömuleiðis þarf að athuga, að eins liggi j öllu efninu, ganga vel frá saumum og svo auðvitað fóðra kjólinn. Þá er ekkert því til fyrirstöðu að klæð- ast sannkölluðum módel- kjólum, því að engar líkur eru til að nokkur kona fái nákvæmlega sömu hug- mynd og einhver önnur. Þessir kjólareru alltaf hafð- ir beinir og sléttir — og helzt stuttir.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.