Vikan - 26.08.1965, Qupperneq 50
vínföngum ekki fram úr 32
krónum. Á baðströndunum geta
menn notið lífsins. Nýtízku hót-
er eru risin upp hvarvetna og
veitingahús og skemmtistaðir
mynda samfellda keðju með
baðströndunum.
En séu Spánverjar góðir i
umgengni við ferðamenn, eru
ítalir ekki síðri. Þeir geta kom-
izt í kunningsskap við hvaða
fólk, sem er. Þeir eru líka fljót-
ir að fyrirgefa og gleyma, ef
eitthvað er ekki eins og það á
að vera. Enda liefur þetta ekki
lítið að segja, þegar athugað er
hve Ítalía er orðið mikið ferða-
mannaland. Eina vikuna i sumar
komst tala erlendra ferða-
manna, sem heimsóttu „it.
alska stigvélið“ upp i hálfa millj-
ón. Fyrir utan alla gestrisnina
er það margt annað, sem ferða-
menn sjá við það að heimsækja
ítaliu. Það er eins og tíminn
hafi staðnað að nokkru leyti
þar. ítalir eru ekki eins háðir
vélmenningunni og aðrar þjóðir,
það er öllu meiri „miðaldablær"
yfir hlutunum þar. Eða eins og
sagt hefur verið, þeir hugsa enn-
þá um sálina og hjartað og lík-
amann. Þá hefur Ítalía eitthvert
seiðandi aðdráttarafl fyrir skáld
og rithöfunda. Sumir þeirra segj-
ast ekki geta skrifað, nema þeir
séu staddir á Ítalíu. Aðrir segja,
að Róm sé eina borgin, þar sem
þeim finnst að þeir séu eins og
heima hjá sér.
En það er auðvitað ekki allt
fullkomið þarna fremur en ann-
arsstaðar. Nýlega fóru sorp-
hreinsunarmenn í verkfall. Hit-
inn, þegar þetta skeði, var með
mesta móti og brátt fóru mót-
mælin og aðfinnslurnar að heyr-
ast. Hefur þetta fólk aldrei heyrt
um neinar heilbrigðisráðstafan-
ir? sagði einn ferðamannanna.
Ég gerði ráð fyrir, að ég yrði
að bera með mér sápu og salern-
ispappír sjálfur, en ekki að ég
yrði að ýta frá mér og smokra
mér fram hjá öskutunnunum og
kústum til að komast áfram,
sagði annar. Einn ferðamaður
ætlaði í óperuna til að sjá Carm-
en eitt kvöldið. Hann komst að
því, að ekki var nokkur leið
að komast áfram á götunum
vegna umferðarinnar, sem var
einn hnútur. Ástæðan var sú,
að umferðarlögreglan var í verk-
falli, og um miðbik borgarinnar
var allt yfirfullt af uppgjafa-
hermönnum, sem kröfðust hærri
lifeyris. Þegar hann um síðir
------------------------------
Ef þér eigið Ijósmynd,
stækkum við hana og litum. 18x24
kosta 90 kr. ísl. Stækkun Sn Ut-
únar kostar 45 kr. Vinsamlegast
sendið mynd eða filmu og gefið
upp Iiti. Skrifið helzt á dtínsku.
FOTO-KOLdRERIKTG.
Dantes Piads 4,
Köbenhavn V.
V.___________________„_______J
komst i óperuna, var lionum
sagt, að sýningunni hefði verið
frestað vegna þess að félag tón-
listarmanna hafði mótmælt
þeirri ákvörðun stjórnarinnar,
að minnka styrkveitingu til ó-
peruhúsanna.
ítalski skaphitinn er alþekkt-
ur, sérstaklega hvað umferðinni
viðkemur. Þá er eitt fyrirbrigði,
sem ítalir hafa, hinir svoköll-
uðu Pappagalli. Það eru piltar,
sem bjóðast til leiðsagnar ferða-
mönnum og þá sérstaklega kven-
fólki, fyrir borgun. Þessi stétt
manna hefur verið miður vel
þokkuð og fyrir skömmu skar
lögreglan upp herör gegn þeim.
En þá skeði það, að mótmæla-
alda reis frá ferðamönnum af
veikara kyninu á Italíu, sem
staðhæfðu, að þessi þáttur í
rómantikinni væri algerlega ó-
missandi á ferðalagi um ítaliu.
Það er staðreynd, að kvenfólk
yfir 30 ára fer ekki til Ítalíu
til þess að skoða rústir, heldur
er það kitlandi og skemmtilegt,
hvernig italskir karlmenn bregð-
ast við, þegar þeir sjá þær. Það
er nefnilega varla til undan-
tekning frá því, að karlmenn á
aldrinum 17 til 80 ára snúa sér
við til að horfa á eftir þeim,
þegar þær ganga framlijá, og
þetta er náttúrlega ákaflega
gaman fyrir þær.
En það eru ekki allir Pappa-
gallar eins slæmir. í Flórens
haaf þeir myndað með sér stétt-
arfélag, þar sem þeir lýsa þvi
yfir, að þeir gætu aldrei verið
þekktir fyrir að beita sömu að-
ferðum og starfsbræður þeirra
í Róm og Napóli að pressa pen-
inga út úr ferðamönnum. Þeir
eru vel klæddir og kurteisir úr
hófi fram og leiðbeina ferða-
mönnum fyrir litla eða enga
borgun á söfn, veitingahús og
næturklúbba. Kjörorð þeirra er
„Curare“, sem þýðir að gæta að.
Ef kvenfólkið óskar eftir meiri
leiðsögn af þeirra hálfu en áður
er upptalið, er heldur ekki til
þess vitað, að þeir liafi nokkuð
á móti þvi að veita hana.
Og út við hafið er líka sitt af
hverju, sem ítalir hafa upp á að
bjóða. Aga Khan er nú með stór-
ar áætlanir á prjónunum á eynni
Sardiníu. Þar við baðströndina
eiga að rísa lúxushótel með öllu
tilheyrandi, siglingaklúbbur á að
vera þar og ótal margt fleira.
En Aga hefur ekki hugsað sér,
að þetta verði eittlivert hress-
ingarhæli fyrir milljónamæringa,
heldur geti ferðamenn frá öllum
heimi leitað sér þar ánægju.
Margar fleiri vinjar hafa skot-
ið upp kollinum við Adríahafið
og eru í uppsiglingu. En ítalir
gleyma heldur ekki öðru atriði.
Eins og Frakkar og Spánverjar
leitast þeir við að halda niðri
verðlaginu á veitingahúsunum,
þannig að verðið á fiskinum og
steikinni sé í samræmi við fjár-
hag viðskiptavinarins. ★
RÚGBRAUÐSSAMLOKUR
2 þunnar, en stórar rúgbrauðs-
sneiðar, 1 þunn franskbrauðs-
sneið, e. t. v. skorin eftir endi-
löngu brauði, svo að nógu stór-
ar sneiðar fáist, smjör, laukur,
bacon, paprika, ostur.
Önnur rúgbrauðssneiðin smurð
og þakin með hráum, mjög þunn-
um lauksneiðum (lystugra ef
sneiðarnar eru aðskildar í
hringi). Ofan á þær er lagt þurr-
steikt, kalt bacon, sem fitan hef-
ur verið látin renna vel af.
Skorpan skorin af franskbrauðs-
sneiðinni og ln'in smurð báðum
megin og lögð ofan á. Þar á
eru settir hringir úr grænum
pipar og ostsneið, og svo loks
hin rúgbrauðssneiðin, með
smurðu hliðina niður. Sneiðin
skorin í þríhyrnda bita, þegar
komið er á staðinn.
FYLLT RÚNDSTYKIÍI
Rúndstykki eða pylsubrauð,
smjör, harðsoðin egg, reykt
sild, ný gúrka, kapris, fínsaxað
kryddgrænmeti (t. d. dill, pers-
ilja, graslaukur eða karsi) maj-
ones, rjómi, salt, pipar.
Skerið rúndstykkin í sundur
í miðju, en látið þau aðeins
hanga saman öðrum megin.
Krafsið með gaffli dálítið úr
þeim og smyrjið með smjöri.
Saxið harðsoðnu eggin og
hreinsaða reyktu síldina og sker-
ið í gúrkuna í litla bita. Klipp-
ið kryddmetið. Látið renna af
kapriskornunum. Blandið þessu
í majonessósuna og hrærið út
með jafnmiklum rjóma, kryddið
og fyllið brauðin með þessu.
Vefjið inn í málmpappír, en
hann er sérlega hentugur i ferða-
lög, því hægt er að nota hann
sem disk, þegar verið er að
borða.
FYLLT HEILHVEITIBRAUÐ
1 heilhveitibrauð, hakkað kjöt,
söxuð púrra, salt, pipar, hráir
gulrótarbitar, reykt skinka.
Skerið ofan af brauðinu og
takið mikið innan úr neðri hlut-
anum. Fyllið með hakkaða kjöt-
inu, sem hefur verið steikt í
kornum á pönnu, saxið púrruna
ofan á og kryddið með salti og
pipar og stráið litlum bitum af
hrárri gulrót yfir (eða rifinni
gulrót) Efst eru settir litlir bitar
af reyktu skinkunni. Lokið sett
á og skorið í sneiðar, þegar kom-
ið er í áfangastað.
RANDABRAUÐ
Rúgbrauð, hvítt brauð, kúmen-
brauð eða kryddbrauð, smjör,
tunga, soðin skinka, ostur.
Skerið 6 sneiðar af rúgbrauð-
inu og kryddbrauðinu og smyrj-
ið. Setjið tungu á rúgbrauðið,
ost á hvíta brauðið og skinku
á kryddbrauðið, setjið brauð-
sneiðarnar hverja ofan á aðra, en
síðasta sneiðin snúi niður. Legg-
ið eitthvað þungt ofan á brauðið
í nokkrar klukkustundir. Skerið
síðan röndóttar sneiðar þvers á
brauðið.
RÚLLUR
Formbrauð, smurostur, pipar-
rót, hamborgarkjöt, soðin egg.
Skerið formbrauðið í sundur
í miðju og síðan helmingana
langsum í þunnar sneiðar.
Smyrjið lengjurnar með smjöri
og síðan með smurosti, rifið
piparrót út á. Sneiðar af ham-
borgarhrygg lagðar þar ofan á
og síðast sneiðar af harðsoðnum
eggjum. Rúllið lengjunum sam-
an langsum og vefjið í smjör-
pappír.
EGGJA. OG SKINKUSAMLOKA
2 ljósar eða tvær dökkar brauð-
sneiðar eða sin af hvorri, pers-
ilja, dill, graslaukur eða púrra,
1 egg, reykt skinka, steikt bacon.
Leggið saxað grænmeti á aðra
brauðsneiðina. Þar ofan á eggið,
en það má annað hvort vera
hrært egg eða spælegg, steikt
báðum megin. Skerið skinkuna
í þunnar lengjur, steikið bacon-
ið og setjið það á hina brauð-
sneiðina og leggið svo sneiðarn-
ar saman. Gott er að setja tóm-
atsneiðar á milli þeirra líka,
eða hafa þær með, þegar brauð-
ið er borðað.
HRÖKKBRAUÐ ME3) FISKI
Smyrjið hrökkbrauð vel og
stráið smásöxuðu dill og pers-
ilju á og leggið sneiðar af niður-
soðnum rauðbeðum ofan á (látið
renna vel af þeim. Þar ofan á
er settur steiktur silungur eða
annar fiskur. Smjörpappir lát-
inn ná vel yfir sneiðina, svo að
ekkert detti af henni á leiðinni.
gQ VIKAN 34. tbl.