Vikan - 23.09.1965, Page 7
krítarmola og merkir smábletti,
sem síðan er klesst malbiki í og
vegurinn þannig stagbættur eins
og úrelt flík. Ég hefði aldrei trú-
að því að svona vinnubrögð ættu
eftir að sjást í þessu landi, og ég
vona að einhver skammist sín
duglega.
Ferdinand.
Bara að þeir kunni að skamm-
ast sín, Feddi minn.
FJÁRHAGUR TENGDAFORELDR-
ANNA.
Viltu nú gefa mér góð ráð, kæri
Póstur, því ég veit hreint ekkert
hvað ég á að gera. Ég er trúlof-
uð yndislegum manni, og við ætl-
um að gifta okkur núna í haust.
Við höfum hugsað okkur að vinna
bæði úti til að byrja með, á með-
an við erum að koma heimilinu
á laggirnar. Kærastinn minn er
líka að læra og hefur því lítið
kaup.
En núna fyrir nokkru, þegar
við vorum að ræða um fjármál-
in og hvernig best væri að hafa
hlutina, þá kom það í ljós að
hann hefur alla tíð látið foreldra
sína og fjölskyldu fá peninga.
Foreldrar hans eru ekki vel stödd,
en þau ættu að geta séð fyrir
sér sjálf. Þau eru dálítið kæru-
laus með peninga, og láta hverj-
um degi nægja sína þjáningu.
Þau eru því oft peningalítil og
oft kaupir kærastinn minn skó
eða föt á yngri systkini sín. Þetta
ástand gerir mig dálítið kvíðna
í sambandi við okkar fjármál í
framtíðinni. Hvernig ætli fari t.d.
ef ég verð ófrísk og verð að hætta
að vinna? Það er útilokað að hann
geti þá séð fyrir okkur jafnframt
því að ausa peningum i fjöl-
skyldu sína. Ég hef ekkert vilj-
að segja um þetta við hann enn-
þá, því ég er hrædd um að missa
valdið á skipinu. Hann er líka
þannig gerður að honum er illa
við að ég sé að skipta mér of
mikið af hans málum. Annars eru
foreldrar hans prýðisfólk, en ég
á oft erfitt með að skilja við-
horf þeirra til fjármála.
Geturðu nú ekki sagt mér
hvernig ég á að fara að því að
gera honum skiljanlegt að hann
þurfi að hætta þessari fjárhags-
aðstoð við þau eftir að við erum
gift?
Hoppaðu ekki yfir girðinguna,
fyrr en þú kemur að henni. Ég
á við að þú eigir ekki að hafa
áhyggjur af þessu fyrr en það
kemur í Ijós hvað hann sjálfur
ætlar að gera. Það getur vel ver-
ið, að hann hafi þegar ákveðið
að hætta þessari fjárhagsaðstoð
við fjölskyldu sína, og ef þú fær-
ir að tala um það núna, mundir
þú bara gera illt verra. Vertu
heldur ánægð yfir því að eiga
mann, sem er svona góður í sér
og hjálpsamur. Þeir eiginleikar
eru of sjaldgæfir og þeir eiga
vafalaust eftir að verða þér dýr-
mætir. Þú gætir gjarnan lagt
tengdaforeldrum þínum það til
lofs, að hafa alið upp svona góð-
an dreng. Það er miklu meira
virði en þótt þau hefðu nurlað
saman peningum til þess að börn-
in fengju einlivern arf eftir þau.
ÓTRYGGUR EIGINMAÐUR.
Kæri Póstur!
Fyrir tveim árum síðan hélt
maðurinn minn framhjá mér með
annarri konu. Ég hélt þá að við
værum bæði hamingjusím í
hjónabandinu og þetta kom eins
og þruma úr heiðskíru lofti. Þetta
fékk svo mikið á mig að ég fór
. frá honum.
Hann þrábað mig um að koma
aftur og sór og sárt við lagði að
samband þeirra hefði aldrei geng-
ið eins langt og ég hélt. En allt
í einu núna fyrir skömmu, viður-
kenndi hann það fyrir mér, og
eftir það hefur hann ekki talað
við mig eitt orð.
Anna.
Veistu hvað ég held? Ég lield,
að þessi saga hafi verið þvæld
fram og til baka milli ykkar aft-
ur og aftur, þangað til hann
missti þolinmæðina og viður-
kenndi eitthvað, sem hann ávallt
hefur álitið að ætti ekki að koma
í dagsins ljós. Ég held að hann
hafi rétt fyrir sér í því að þetta
hafi ekki verið alvarlegt, því
karlmenn hugsa og haga sér öðru-
vísi í þeim efnum en kvenfólk.
Þú átt á hættu að eyðileggja
hjónaband þitt alveg, ef þú læt-
ur þetta ekki gleymast. Ég hef
grun um að hann hafi þegar sýnt
meiri þolinmæði en flestir karl-
menn mundu gera. Hugsaðu þig
ekki um og hikaðu ekki augna-
blik við að segja að þú skulir
gleyma þessu öllu. Þá verður allt
gott, — og passaðu svo að minn-
ast aldrei á þetta framar.
Nútíma kona notar
Yardley fegrunarvörur
fyrir yður
Yardley fegrunarvörur eru fram-
leiddar fyrir yður samkvæmt
nýjustu tækni og vísindum, eftir
margra ára rannsóknir og til-
raunir í rannsóknarstofum Yardl-
ey í London og New York.
Yardley veit að þess er vænst
af yður, sem nútíma konu, að
þér lítið sem bezt út, án tillits
til hvar þér eruð eða hvernig
yður Kður.
Þess vegna býður Yardley yður
aðeins hin réttu andlitsvötn og
krem, hvernig svo sem húð yðar
er og Yardley tízkulitirnir í
varalitum, augnskuggum og
make up, sem fara yður bezt.
BIÐJIÐ UM YARDLEY í NÝJUSTU
PAKKNINGUNUM.
Innflytjandi GLÓBUS h.f.
VXKAN 38. tbl. J