Vikan - 23.09.1965, Qupperneq 36
gg VIKAN 38. tbl.
Dunning beindi vélinni upp ó við
og nólin ó hæðarmælinum sýndi
stöðuga hæðarhækkun um 5000
fet ó mínútu. Langar þurrkurnar
sveifluðust taktvisst fram og til
baka ó framrúðunni.
— Eg verð feginn, þegar við er-
um komin út úr þessari súpu, muldr-
aði Pete Dunbar.
Dunning svaraði ekki. Hann
fylgdist með mælunum. Hvorugur
flugmannanna heyrði, þegar flug-
freyjan kom aftur. Hún lagði hönd-
ina ó öxl Dunnings.
— Flugstjóri, sagði hún óköf. —
Kpnan er verri, og annar farþegi
er orðinn veikur, einn af karlmönn-
unum!
Dunning sneri sér ekki. Hann
rétti upp annan handlegginn og
kveikti ó sterkum Ijóskösturunum
sem lýstu inn í iðandi regn.
— Eg get ekki farið aftur í núna,
sagði hann. Reyndu að hafa upp
ó lækni! Og sjóðu um, að allir hafi
öryggsbeltin spennt.
Janet sneri aftur til farþeganna.
Frú Childer ló kengbogin í stólnum
sínum og stundi. Janet þaut til henn-
ar og þurrkaði svitann af enni
hennar. Childer starði skelfdur ó
hana.
— Hvað getur það verið? Hvað
getum við gert fyrir hana?
— Gæta þess, að henni verði
ekki kalt, sagði Janet. — Eg ætla
að gó, hvort nokkur farþeganna er
læknir . . .
Janet hafði spurzt fyrir öðrum
megin, þegar hönd greip um henn-
ar; það var einn úr viskýkvartett-
num og andlit mannsins var gul-
bleikt og svitastorkið.
— Mér þykir slæmt að þurfa að
ónóða yður, sagði hann. — En mér
líður hræðilega illa.
Hann féll aftur í sætið og stundi.
Janet greip í handlegg George
Spencer og hristi hann lítið eitt. —
Fyrirgefið, að ég skuli vek|a yður,
sagði hún, — en er annarhvor ykk-
ar læknir?
Spencer opnað svefndrukkin aug-
un. — Læknir. Er einhver veikur?
— Svolítið, svaraði Janet.
— Vaknið, læknir, vaknið! sagði
Spencer hótt.
Fellman glaðvaknaði um leið.
— Hvað er að? spurði hann.
— Þrír farþeganna eru fórveik-
ir, sagði Janet. — Mynduð þér vilja
líta ó þó?
— Sjólfsagt . . .
Spencer reis ó fætur og hleypti
lækninum framhjó.
— Það er bezt að vð lítum ó
frúna fyrsta, sagði Janet, og gekk
ó undan Fellman að sæti hennar.
Frú Childer andaði þungt og með
erfiðismunum. Hörund hennar var
gróhvítt, og andlitið svitastorkið.
Fellman horfði ó hana ( nokkrar
sekúndur. Svo lagðist hann ó hnén
við hlið hennar og tók um úlnlið
hennar.
— Reynið að slappa af, sagði
hann vlngjarnlega.
Konan kinkaði kolli. Fellman
sleppti úlnlið hennar og lagði flat-
an lófann varlega ó kvið hennar.
SAAB bifreiðin er nú betri en nokkru sinni áð-
ur. — Argerð 1965 seldist upp í júlí. — Fyrsta
sending af árgerð 1966 um miðjan september
er uppseld. — Næsta sending væntanleg um
mánaðarmót september og október, er líka
rtærri uppseld.
Auk allra kosta eldri árgerða hefir SAAB 1966 þessar nýjungar: Allir 4ra gíra áfram, allir gírar
„synchromesh". Aukin hestorka í 46 SAE. — Þrír blöndungar (carburators) er auka viðbragðsflýti í öll-
um gírum. — Nýir hjöruliðir smurðir af verksmiðjunni til lífstíðar. — Nýir hjólkoppar úr ryðfríu stáli.
— Framúrtökuljós (blikkljós) auk stefnuljósa í stýri. — Nýjar læsingar og kveikjurofar. — Nýir litir:
GULUR og DÖKKGRÁR.
MUNIÐ: Gæði skýjum ofar — Öryggi framar öllu.
Gerið hærri kröfur við bifreiðakaup yðar.
Því fyrr, sem þér pantið — því fyrr eruð þér örugg.
SVEINN BJÖRNSSON & CO.
Langholtsvegi 113. — Sími 3-05-30.
Viðgerðarþjónustan — Sími 3-11-50.
SAAB verksmiðjurnar, sem eru frægar fyrir flug-
vélasmiðar eru að hefja smiði 800 J 37 VIGGEN
herflugvéla, sem er ný gerð. — SAAB hefur
ávallt gætt öryggis framar öllu, ekki aðeins í
fiugvélasmiði heldur er SAAB bifreiðin byggð
með ÖRYGGI FRAMAR ÖLLU.