Vikan

Issue

Vikan - 23.09.1965, Page 48

Vikan - 23.09.1965, Page 48
LANDSSMIÐJAN SÍMI 20680. HILLUEFNI INNRÉTTIÐ ALLA LAGERA OG GEYMSLUR YÐAR MEÐ D E X I O N EFNI FRÁ LANDSSMIÐJUNNI, OG FULLNÝTIÐ ÞANNIG GEYMSLU- RÚM YÐAR. ÞESSAR UMBÚÐIR OG GÚÐAR PERUR HEYRA SAMAN OSRAM HekluS kápa Framhald af bls. 47. loftl. meö heklunál nr. 3M> og myndiö úr þeim hring. Hekl siö- an fastahekl og hekl. 2 l. í hverja l. þar til hnappurinn hefur náö œskilegri stærö. Takiö þá úr meö sömu lilutföllum og aukiö var út. PressiÖ mjög lausl. yfir alla sauma ef meö þarf og festiö hnappana. OangiÖ frá hnappagötunum meö venjulegu tunguspori (kappmellu- sporij og þynntum garnþræöin- um. f fullri alvöru Framhald af bls. 2 um magnyl og aspirín, auk þess sem honum fannst sjálfsagt að menn gæfu honum að éta og ækju honum hvert sem var, af því hann var menntaður svertingi og íslendingar eru greinilega „niggerlovers". Að visu er ekki hægt að dæma heilan kynbálk af einum manni, en ef hámenntaður maður, son- ur enn menntaðra læknis, lætur það eftir sér að bíta hótelstjóra vegna litilla 1200 króna — hvaða hugmynd getur maður þá gert sér um hina, sem ekki hafa notið' menntunar? S.H. Sjö aldursstig konunnar Framhald af bls. 9. Ef hann vill ekki fara með: henni í ferðalag getur það hent sig að hún fari bara einsömul. Það er ekkert óalgengt að hjón á þessum aldri fari í ferðalög sitt í hvoru lagi, og er það síður en svo merki þess að þau séu ósátt, það er frekar merki um gott hjónaband að hjónin geti unnt hvort öðru að njóta þess sem þau hafa áhuga á. Maður á þessum aldri sagði: — Ég hefi mikið að gera, ég er á kafi í starfi mínu, þessvegna vil ég verja frístundum mínum eft- ir eigin geðþótta, — hvíla mig og slappa af. En ef konuna mína langar til að æða út um allan heim, þá má hún það mín vegna. Henni er það sannarlega ekki of gott... Flugfélag eitt lét athuga ferða- lög fólks, sem komið var yfir fimmtugt, og hafði lítið ferðazt áður. Það kom í ljós að áhugi á slíkum langferðum var miklu meiri hjá konum en körlum. Einmitt á þessum aldri er hægt að tala um „konuna á bak við manninn". Hún hjálpar honum oft við að framkvæma nýjungar í starfi hans, þannig að hann geti haldið áfram samkeppni við sér yngri menn. Karlmaður á þessum aldri hef- Ir yfirleitt ekki löngun til að skipta um bústað, en það hefir konan aftur á móti. Hún getur vel hugsað sér að skipta um íbúð, koma í nýtt umhverfi, nýtt út- sýni. Þetta er ekki merki um eirðarleysi, heldur tilbreytingar- þrá. Konur á þessum aldri eru mjög sjaldan eirðarlausar, og þær eru fljótari en karlmenn til að taka ákvarðanir. í hjónabandinu er hún venju- lega hamingjusöm. Hjónabandið er gott vegna þess að erfiðleik- amir eru yfirleitt um garð gengn- ir. Hún er eins og áður er sagt stoð og styrkur mannsins síns og það skapar góðan félagsskap. Mörg hjónabönd endurnýjast. Eins og maður nokkur sagði. í gamni: ■—■ Konan mín og ég, höf- um lagt hatrið á hilluna ... Ef hún á foreldra eða tengda- foreldra á lífi, verður samband- ið oft betra með árunum. Aldurs- mismunurinn er úr sögunni og skilningurinn betri. — Konan byrjar með því að hefta framgang mannsins og end- ar með því að útiloka undanhald, segir Osear Wilde einhversstað- ar. Ef þetta á að skiljast þannig að manninum finnist konan vera sér fjötur um fót á þessum aldri, er það venjulega honum að kenna. Það er ekki hún sem legg- ur höft á hann, heldur er það hann sem heftir þá athafnaþrá, sem konum á þessum aldri er svo nauðsynlegt að fá útrás fyr- ir. Það eru til karlmenn sem ekki vilja veita konu sinni frelsi til að sinna sínum hugðarefnum. Þá er það oft að hún hefir ekki kraft til að berja það í gegn og gefst upp. Eða þá hitt, að hún ger- ir uppreisn og maðurinn dregur sig inn í skel, þau eiga ekki sam- leið og það er illa farið. Nútímamaður verður að skilj a að hjónabandið eitt er ekki nægi- legt konunni. (Það er heldur ekki honum nóg, hann hefir sitt starf.) Nútíma þjóðfélag hefir uppá að bjóða ótal möguleika fyrir’ konur, sem hafa lokið sínum skyldustörfum við barnauppeldi'. og heimilisstörf, og eru bæði and’- lega og líkamlega á „bezta aldri“.. Konur á þessum aldri eru yfir- leitt góðir félagar og þessvegna' vel liðnar á vinnustað. En marg- ar konur neyðast til að taka að sér störf sem ekki eru við þeirra hæfi og gefur þeim ekki tæki- færi til að njóta sín. Vinnuveit- endur og þjóðfélagið í heild gæti VULAN 31. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.