Vikan - 04.11.1965, Page 6
þingholtsstræti 3 slmi 11987
SIÐIR OG
STUTTIR
FJOLBREYTT
ÚRVAL.
Póstsendum.
OLÍUDÆLUR
ELDSNEYTISLOKAR
TENGI við olíudælur
DÝSUR og aðrir vara-
hlutir
HRÁOLÍU ogSMUROLÍU-
SÍUR
jafnan fyrirliggjandi.
ALLAR VIÐGERÐIR OG STILLINGAR A
OLÍUDÆLUM OG ELDSNEYTISLOKUM
FRAMKVÆMDAR AF SÉRMENNTUÐUM
FAGMÖNNUM OG MEÐ NÝJUSTU
TÆKJUM.
Einkaumboð á fslandi fyrir:
Björn & Halídór h.f.
SÍÐUMÚLA 9
Símar 36030 & 36930
« '
ALDREI OF MIKIÐ AF BLESSUNAR-
ORÐUM.
Kæri Póstur!
Ég ætla að biðja þig um að
skera úr í deilumáli, sem risið
hefur milli mín og annarrar per-
sónu, um það, hvort það sé bet-
ur viðeigandi, að heilsa og kveðja
persónu, sem maður talar við í
fyrsta sinn, með orðunum „Sæll“
heldur en „Blessaður". Ég held
því fram, að það skipti engu
máli, hvort sagt er, en hinn að-
ilinn heldur því fram, að seinni
kveðjan sé fremur notuð meðal
kunningja en ókunnugs fólks.
Með fyrirfram þökk.
S.G.
P.S. í þessu tilfelli er ekki um
þéringar að ræða.
S.G.
Ég held að það sé óhætt að segja
„sæll og blessaður", því að góð
vísa er sjaldan of oft kveðin, og
ekki veitir af að biðja hverjum
manni blessunar, á þessum síð-
ustu og verstu tímum.
LEIÐINLEGT HÁRLOS.
Virðulegi Póstur!
Um leið og ég þakka yður fyr-
ir allt gamalt og gott, langar
mig til að spyrja yður ráða í
miklu vandamáli, sem hefur upp
komið hér á heimilinu.
Þannig er mál með vexti, að
ég á hund, mömmu til mikillar
armæðu, því hundurinn, sem er
hvítur, hefur verið að fara úr
hárunum í hartnær heilt ár og
virðist ekkert lát á þessu hárlosi.
Samt hef ég gefið honum víta-
mínpillur (með appelsínubragði)
sem innihalda bæði A-B og C
vítamín, en ekkert gengur.
Og þess vegna spyr ég, hátt-
virti Póstur, vitið þér nokkurt
ráð við hárlosi á hundum?
Og svo ein alþýðleg. — Hvem-
ig er skriftin?
Með innilegu fyrirfram þakk-
læti fyrir svörin. Yðar einlægur
Dog-keeper.
Kæra „Dog-keeper“!
Ég ætla að hyrja á því að bjóða
þér dós, vegna þess að ég finn
svo innilega til með þér út af
þessu hárafargani. Haltu áfram
með að þræla í hundinn vítamín-
um, sérstaklega B-vítamíni. Svo
skaltu haða hann og bursta vel,
en ef það hjálpar ekki er bezt
að tala við dýralækni. Láttu okk-
ur vita hveraig gengur.
P.S. Skriftin er í bezta lagi.
INNANHÚSSSKIPULAGNING.
Vopnaf. 23. sept. 1965.
Kæra Vika!
Nú langar mig að spyrja þig
spurninga, ég veit þú svarar eft-
ir beztu getu. Er hægt að læra
innanhúss skipulagningu á ís-
landi? og þá hvar? og hvaða imd-
irbúningsmenntun þarf ég að
hafa?
Beztu kveðjur og þakkir
Ó.D.
Innanhúss-skipulagnlngu er
ekki hægt að læra á Islandi enn-
þá. Það er eingöngu hægt að
læra það fag erlendis. t Kaup-
mannahöfn er t.d. Kunsth&nd-
værkerskolen sem tekur nem-
endur í því fagi, og í Stokkhólmi
og víðar á Norðurlöndum eru
samskonar skólar. Við vitum
ekki til að sé krafizt sérstakrar
undirbúningsmenntunar til að
komast í slíka skóla. Svo er lilra
innanhúss arkitektúr háskóla-
nám, en þá þarf stúdentsmennt-
un.
ÁHUGI Á GOLFI.
Blessaður Póstur!
Þið þykist vita allt þarna hjá
Vikimni svo mér datt í hug að
spyrja ykkur að svolitlu. Ég var
á skóla í Englandi síðastliðið
sumar. Og þar á meðal margs
annars lærði ég að spila golf og
af því að þetta var bæði gaman
og skemmtilegt ætlaði ég að
halda áfram þegar ég kæmi
heim. En heima þekki ég engan
sem iðkar þessa list. Svo ég ætla
að spyrja þig hvort að það sé
ekki til einhver Golfklúbbur og
hvar get ég náð sambandi við
hann. Ég þakka þér svo fyrir
allt gamalt og gott.
ÞÆ0
t Reykjavik er starfandi Golf-
klúbbur Reykjavikur, sem hefir
golfvöll í Grafarholtslandi. Síma-
númer er 14981, og þar er að
öllum líkindum hægt að fá allar
upplýsingar um starfsemi klúbbs-
ins.
TÓNLISTARUNNANDI (EKKIGÖMUL)
Kæra Vika!
f 37. tbl. var bréf í Póstinum
um æðri tónlist en það var und-
irritað „Nútíðin“. Það er auð-
heyrt að hann hlustar ekki mik-
ið á útvarpið fyrst hann hefur
aðeins einu sinni hlýtt á dag-
skrá vikunnar, nú annars er nú
g VIKAN 44. tbl.