Vikan

Tölublað

Vikan - 04.11.1965, Blaðsíða 41

Vikan - 04.11.1965, Blaðsíða 41
 Y~ UNDRAPÚÐINN sem festir tanngóminn, dregur úr eymslum, límist viS góminn, þarf ekki að skipta daglega SNUG er sérstaklega mjúkur plast- ic-púði, sein sýgur góminn fastan, þannig að þér getið talað, borðað og hlegið án taugaóstyrks. SNUG er ætlað bæði efri- og neðrigóm. Þér getið auðveldlega sjálf sett púð- ann á, hann situr fastur og hreins- ast um leið og tennurnar. — SNUG er skaðlaus tannholdi og gómnum. Endist lengi og þarf ekki að skipta daglega. Snug Heildsölu- birgðir: O. MÓLLER & CO., Kirkjuhvoli, Sfmi 16845. LAUGAVEGI 59..simi 18478 Dl kyrr þarna uppi maður! Verið kyrr! Turner greip andann á lofti og beið. Svo kom rödd George Spenc- er, hás af eftirvæntingu og þreytu. — Þér verðið að reyna að skilja þetta, þarna niðri. Ég er að lenda. Heyrið þér til mín? Ég lendi! Ég er með fólk í flugvélinni, sem deyr eftir minna en klukkutíma. Það get- ur vel verið að ég eyðileggi flug- vélina, en við verðum að taka þeirri áhættu. Ég finn, að ég þoli þetta ekki lengur. Þér verðið að skilja þetta, Turner! Haldið bara áfram að ná mér niður. Nú eru hjólin komin niður! — Jæja þá, Spencer, sagði Turn- er þreytulega. — Jæja þá. Hann setti heyrnartækin á sig aftur. Hann hafði endurheimt sjálfs- stjórn sína. En það fór krampakipp- ir um hálsvöðva hans, hvað eftir annað. Hann lokaði augunum eitt andartak, opnaði þau svo aftur og sagði með sinni rólegu, venju- legu og karlmannlegu rödd. — Þegar hjólin eru komin niður, verðið þið að vera viss um, að grænu Ijósin þrjú séu logandi. Hald- ið stefnunni stöðugri! Ykkur er ó- hætt að gefa svolítið meira bensín, svo þið haldið sama flughraða með hjólin niðri. Heyrið þér til mín? — Við heyrum til yðar. — Gott! Gangið nú úr skugga um, að bremsuþrýstingurinn sé um það bil fimm hundruð kíló. Mælir- inn er hægra megin við aðstoðar- dæluna. Eruð þér ennþá með? Meðan Turner hélt áfram með fyrirmæli sín, gekk flugvallarstjór- inn út að glerveggnum og hvessti sjónir út að sjóndeildarhring. Rós- rauð birta aftureldingarinnar hafði fengið gráan blæ. Flugvallarstjórinn stóð grafkyrr og hreyfingarlaus. Við hlið hans sat flugtæknifræðingur við skrif- borð. Fyrir aftan þá malaði Turner áfram, látlaust og tilbreytingar- laust. — Gott Spencer! Ég skil nákvæm- lega hvernig yður líður, og kannske getið þér rennt svolítinn grun í tilfinningar mínar líka. En við skul- um fara varlega. Eruð þér sam- mála? — Svo sannarlega. — Stillið spaðana! sagði Turner. — Snúningshraðamælirinn á að standa á fimmtíu. Ég veit, að þetta er kannske dálítið flókið, en ég skal endurtaka, ef þér þurfið. Þér verð- ið að fá örugglega rétta stillingu á alla fjóra spaðana! — Tuttugu og tveir fimmtíu, end- urtók George og hélt vökulu auga með mælinum. — Janet, sagði hann lágt. — Viltu vera svo elskuleg að hafa auga með flughraðanum. — Hann er hundrað og þrjátíu, byrjaði hún hljómlaustri röddu. — Hundrað tuttugu og fimm . . . hundr- að og tuttugu . . . hundrað tuttugu og fimm . . . hundrað og þrjátíu . . . í flugturninum hlustaði Turner á jafna og tilbreytingarlausa röddina utan úr radarklefanum. — Hæðin ennþá óregluleg. Níu hundruð fet. . . Osta-og smjörsalan sf. VIKAN 44. tbl. SÍMAR: 22206 22207 22208 llltima

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.