Vikan

Tölublað

Vikan - 04.11.1965, Blaðsíða 48

Vikan - 04.11.1965, Blaðsíða 48
/ Hin fjöShæfa S-11 verkefna trésmiðavél: Bandsög, rennibekkur, hjólsög, írœsari, band- slípa, diskslípa, smergel- skífa og útsögunarsög. Fáanlegir fylgihlutir: Afréttari þykktarhefill og borbarki. Fulikomnasla Irésmíðaverhslæðiö á minsta ðólKleti fyrir heimili, skóla og verkstœði EtViCO MAXIMAT AL- HLIÐA RENNIBEKKUR. verkfœri & járnvörur h.f. Melitta kaffikannan Framhald af bls. 47. venjulega kaffikönnu, annaðhvort fyr- ir 2 — 4 manns, eða venjulega fjöl- skyldustærð og svo fyrir stórar fjöl- skyldur eða hótel. En einnig eru litl- ir pokar, gerðir fyrir einn bolla og sérstaklega þægilegir í notkun. Ferða- kanna er líka til af Melittugerð. Þeg- ar hellt er á kaffið, verður að gæta þess að hella beint 1 miðjuna, þannig: að kaffið þyrlist upp og freyði, en. freistast ekki til að hella utan með á barmana, því að þannig nýtist kaffið bezt. Þessir pokar eru líka heppilegir til að búa til te í. Könnurnar og pok- arnir fást í mörgum búsáhaldaverzlun- um og er verðiö auðvitað misjafnt: eftir því um hvaða gerð er að ræða.. T.d. kostar hulstrið eitt (minnsta gerð- in) úr aluminíum með 10 blöðum kr.. 95.—, úr postulíni með tilheyrandi könnu kostar saman 210.— kr., ferða- kannan 315.— kr., og eins manns boll- inn kr. 128.— . Fjölskyldan hélt ég væri að slæpast Framhald af bls. 27. ferðina, hann þekktist bara ó sokk- unum, fangamarkið hans var saum- að í þá. Það er farið að húma. Rétt und- an landi liggur stórt skip, baðað Ijósum. Og Ijósin í Reykjavík og á Akranesi glitra og titra sitt hvorum megin skipsins. Hlíf og Dagur sitja í stóra glugganum, Hlíf starir á Ijósin, Dagur á föður sinn, sem er allur á valdi bernskuminninganna. Freyr stendur hjá pabba, og horfir upp á hann, hann vill ekki missa af einu orði. — Pabbi, hvað fannstu í þaran- um? spyr Dagur ( ofvæni. — Eg fann margt skrýtið í þar- anum, þegar ég var drengur, segir faðir hans og strýkur honum um kollinn. Eg sé, að það er orðið of áliðið til að tefja lengur. Sigurjón fylgir okkur út á hlað. Við horfum á eitt verka hans, konumynd, sem stend- ur þar í túni. — Áttu ekki stundum erfitt með að láta verk þín af he'ndi? — Það þýðir ekkert að safna þessu í kringum sig. Þó á ég erfitt með að láta síðasta verk mitt, þang- að til ég er búinn að gera nýtt. Það eru einhver tengsl, sem ekki má rjúfa. Hann tekur hlýlega í hönd okkar að skilnaði, og við horfum á hann hverfa inn um dyrnar á vinnustofu sinni. K.H. Bréf til ömmu Framhald af bls. 13. fólk. Hann sagði að engir væru eins. Sumir eru kannske agalega góðir fótboltamenn, aðrir eru bakarar. Svo eru iíka kennarar, lestarstjórar og leikarar. Við þurfum að hafa allt þetta fólk, og það væri asnalegt að vera reiður út í bakarann, þótt hann kunni ekki að spila fótboita, við eigum bara að vera glöð yfir því að f4 kökur hjá honum. Þetta sagði Bertil frændi... Einn sunnudag, þegar veðrið' var ekkert gott, fórum við í bíl- túr. Við fórum í kirkju í þorp- inu, sem er dálítið langt í burtu. Við förum ekki eins oft í kirkju og þegar þú varst hérna. En hérna í sveitinni er allt þetta fallega, sem guð hefir skapað, trén, blómin, fuglarnir og sólin. Og þegar kvöldgolan kemur, heyrum við að hún hvíslar að guð sé allsstaðar, það segir pabbi. Þá sagði ég honum það sem þú sagðir mér um bláklukk- urnar, að þær hringi til guðs- þjónustu úti í náttúrunni. En í kirkjunni var ég dálítið hræddur. Þar var allt svo stórt og fallegt, en svo fátt fólk. Og svo verður maður að sitja graf- kyrr óg standa stundum upp, líka þegar maður er að syngja. Mér þykir mikið betra að biðja til guðs, sem elskar börnin, á kvöldin, þegar ég er háttaður. En það ef samt afskaplega fallegt í kirkjunni og fólkið syngur voða vel. Hvernig er það í himninum,, þar sem þú býrð hjá guði. Þú sagðir einu sinni að þar gæti: maður búið í paradís. Býrð þú í: sumarbústað, eins og okkar? Nú er að verða dimmt á kvöld- in, og þá er komin tími til affi flytja í bæinn. Á sumrin er svo bjart, en á morgun kemur haust- ið. Mér finnst það slæmt að hafa dimmt á kvöidin, því að maður getur ekkert séð í myrkri og svo verður maður stundum myrk- fælinn. Einu sinni spurði ég mömmu, hversvegna það þyrfti endilega að vera dimmt á nóttunni. Þá sagði mamma, að ef það væri sól á nóttunni líka, þá þætti okk- ur ekki eins vænt um hana, það yrði bara leiðinlegt. En af því að nóttin er dimm, verðum við svo glöð, þegar bjartur dagur kemur. Ég er að verða svolítið syfj- aður, en ég ætla ekki að fara að sofa strax, ég þarf að segja þér meira. Elsku amma mín! Við vorum í afskaplega fínni veizlu í sumar. Þá átti pabbi Palla fimmtíu ára afmæli. Það var svo fín veizla, að mamma varð að fara inn í bæ til að láta greiða sér. Þegar hún kom aftur, „

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.