Vikan - 04.11.1965, Side 9
Bílappófun
Vikunnar
Peugeot 204
Fyrir einhverja undarlega tilviljun
eru Peugeot bifreiðar lítið þekktar
hér á landi fyrr en nú á síðari ár-
um, og má það teljast skrýtið, því
hér höfum við yfirleitt fengið ein-
hvern slatta af öllu en ekki mikið
af neinu, en helzt hafa þó beztu
tegundir flutzt inn svo nokkru nemi.
Nú er ekki hægt að kenna því um,
að Peugeot sé svo nýr, því verk-
smiðjurnar eru einhverjar þær elztu
í álfunni.
En Peugeot 204 er glænýr bíll.
'
Hann er meira að segja sérkenni-
legur í útliti, lágur, langur fram
en stuttur aftur. Að innan er hann
nýtízkulegur og laglegur, og marg-
ir verða hissa þegar þeir gægjast
undir vélarlokið. Þar er 58 ha. vél,
og snýr þversum. Sé skyggnzt nið-
ur með henni, sjá kunnugir fljót-
lega, að farkosturinn er með fram-
hjóladrifi.
Þetta er fyrsti bíllinn, sem ég
hef fengið að prófa nokkuð vel,
þar sem ég hafði hann í 5 og hálf-
an dag. Eg notaði hann eins og
algengast er, milli húsa í Reykja-
vík; til að snatta með drasl á mel-
um og móum í kring um sumar-
bústaði, — eins og gengur og ger-
ist; — og fór í þokkalegt ferðalag
austur fyrir fjall. Ég ók alls 586
km. og eyddi til þess 57,3 lítrum
of bensíni, sem gerir 9,9 Ktra með-
aleyðslu á 100 kflómetra, þar af
fóru 23,2 I. í innanbæjarsnattið
(200 km.), sem gerir meðaleyðslu
í því 11,6 lítra á hundraðið, en af-
gangurinn, 386 km, var farinn í
langakstri á krókóttum og mishæð-
óttum sveitavegi. Þar fóru 34,1 lítri,
sem gefur meðaleyðsluna 8,8. Það
skal tekið fram í þessu sambandi,
að ekki var ekið með sparneytni
í huga né farið eftir upplýsingum
framleiðenda um ódýrast aksturs-
lag, heldur aðeins eftir því, hvernig
mér fannst koma mest út úr hæfi-
leikum bílsins og orku, þannig að
hann væri sem skemmtilegastur í
akstri. Enda er bensíneyðsla ekki
afgerandi þáttur í rekstri bíls,- frem-
ur atriði, sem maður tekur eftir sér
til gamans.
Innanbæjar er hann lipur f snún-
ingum, leggur vel á af framhjóla-
drifsbíl að vera, léttur í vöfum og
fljótur að ná upp ferð. Bremsurn-
ar eru léttar og vinna mjög vel.
Helzt mætti að honum finna f inn-
anbæjarakstri, að hann er dálítið
stífur í fyrsta gír, þótt al-samstillt-
ur sé, en þar kemur nokkuð á móti,
að ekki þarf að setja í fyrsta nema
til að taka af stað, nema ef um-
ferð er mjög silaleg eða farið er
upp bratta. Hann. er einmitt mjög
sveigjanlegur (flexible) í öllum gír-
um, þótt skemmtilegust orkunýting
komi að sjálfsögðu út úr því að
nota gfrana verulega. Skiftingin er
á stýrisstönginni og nokkuð góð,
— væri skemmtilegri í gólfinu.
Þú byrjar daginn með því að
stíga upp í Peugeot 204 þar sem
hann hefur beðið þín úti á götunni
yfr nóttina. Það er sama hvorum
megin þú kemur að honum,- hann
er með skráargati á báðum fram-
hurðunum. En hann er mjög lágur
og þú þarft svolítið að beita lagi í
fyrstu til að renna þér inn og ofan
í hann, en það veldur engum óþæg-
indum að framan. Það er heldur
lakara þegar fara skal f aftursæt-
ið, því hurðirnar að aftan opnast
tæpast nógu vel, miðað við hve
lágur bfllinn er.
En þegar inn er komið — og það
þarf ekki annað en að kippa laus-
lega í hurðirnar svo þær séu traust-
lega lokaðar, — furðar þig á, hve
mikið rúm er í svona fyrirferðar-
litlum bíl, hvort heldur er aftur í
eða frammi í. Að vfsu er heldur
þröngt um þrjá í aftursætinu, enda
er þetta upprunalega fjögra manna
bíll, þótt hann sé skráður hér fyrir
fimm. Fótarúmið er hins vegarfurðu
gott, jafnvel þótt þrfr séu aftur
f, og ég tala nú ekki um frammi
í. Sætin eru afbragð, ökumanns-
sætið heldur mjög vel við mjóhrygg
og læri, nema hvað sessan er ef til
vill óþarflega mjúk. ( sambandi
við sætin vil ég taka það fram, að
þetta er eini bíllinn, sem ég hef
enn sem komið er ekið næstum
heilan dag samfleytt, án þess að
finna fyrir þreytu f bakinu.
Nú ert þú setzt/ur undir stýrið,
og Ifklega með lykilinn í hægri
hendi, síðan þú varst að opna dyrn-
ar með honum. En nú verðurðu að
færa hann milli handa, þvf kveikju-
og stýrislásinn og startarinn, en
það er nllt f einu stykki, er vinstra
megin við stýrisstöngina. Þessu atr-
iði vandist ég ekki þann tíma, sem
ég hafði bílinn til umráða. En hvað
um það, í annarri eða þriðju til-
raun hefur venjulegur óörvhentur
maður af að pota lyklinum í gatið
og snúa upp á. En af því að bfll-
inn er kaldur verðurðu að seilast
með hinni f innsogið, sem er hægra
megin við mitt mælaborð, en engan
veginn of langt f burtu, og nú þýtur
Peugeot 204 auðveldlega í gang.
En þú verður að hafa innsogið
á, þar til hann er orðinn heitur.
Og það er ekkert í mælaborðinu,
sem segir til um hvenær þvf er
náð, fyrr en fer að sjóða á honum,
þá kviknar rautt Ijós. En þá getur
hann allt eins verið hættur að
smyrja, svo þú verður að velja á
milli þessara tveggja orsaka. Mér
þykir verksmiðjurnar teknar að
færa sig upp á skaftið með Ijósa-
ganginn, og þetta er Ijóður á ráði
Peugeot. Sem hann er þó engan-
veginn einn um. En hann er drjúg-
langan tíma að ná eðlilegum vinnu-
hita, — líklega í kring um fimm
kílómetra í innanbæjarakstri, og
kokar á meðan á hverjum gatna-
mótum, nema þú hafir höndina á
innsoginu og stillir hverju sinni.
(Reynslubíllinn var með nýstilltum
mótor, en þetta hlýtur að vera ein-
hver stillingargalli í þessum eina
bfl, því Peugeot 204 er eins og
hans bræður með rafsegulviftu,
sem ekki snýst nema þegar hita-
stilli á vélinni þykir þurfa. Það
þýðir, að viftukæling hefst ekki, fyrr
en vélin hefur náð heldur meira
en eðlilegum vinnuhita, og á þetta
að tryggja að vélin hitni sem fyrst).
Fyrstu kílómetrana hættir þér
kannski til að taka í Ijósarofann f
staðinn fyrir stefnuljósarofann, því
stefnuljósarofinn á Peugeot 204 er
hægra megin, milli stýris- og gír-
stangar. Fyrst í stað virðist honum
illa fyrir komið þarna, en þegar
leið á reynslutímann var ég stein-
hættur að ruglast og fyrst eftir
hætti mér til að káfa eftir rofanum
þarna á bílum, sem höfðu hann
hinum megin. En ef þú hefur tekið
tímann, kemstu að raun um, að þú
ert á undraskömmum tíma kominn
í áfangastað, án þess að þú hafir
ekið nokkuð gassalega. Því þú get-
ur alls staðar smeygt þessum litla,
lipra bíl, og þótt þú þurfir annað
slagið að stanza alveg eða þvf
sem næst, er hann undir eins kom-
inn á góðan hraða aftur.
Oft vill koma móða innan á
gluggana, þegar fólk kemur inn f
bíl, en miðstöðin í Peugeot 204 er
aflmikil og hreinsar vel af. Þó getur
nokkur móða setzt á afturgluggann,
enda eru fáir bílar útbúnir með
blástur á afturrúðu. Hins vegar
blæs miðstöðin vel afturí og það er
auðvelt að stilla hana. En viljir þú
Framhald á bls. 37.
....—............. I
VIKAN 44. tbl. Q